Enn óákveðið hvað verður um allar öndunarvélarnar á Landspítalanum

Land­spít­al­inn hefur ekki tekið ákvörðun um það hvað verður um allar þær önd­un­ar­vélar sem spít­al­inn fékk að gjöf, en nú eru alls 55 full­komnar vélar á spít­al­anum. Alls þurftu 15 ein­stak­lingar að leggj­ast í önd­un­ar­vél á meðan far­aldr­inum stóð.

Öndunarvél á Landspítalanum
Önd­un­ar­vél á Land­spít­al­anum Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Land­spít­al­inn á nú 55 full­komnar gjör­gæslu­önd­un­ar­vélar. Þegar mest lét voru þrettán COVID-sjúk­lingar inniliggj­andi á gjör­gæslu í einu og þar af voru níu í önd­un­ar­vél. Þetta kemur fram í svari spít­al­ans við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þá segir að sam­tals hafi fimmtán COVID-sjúk­lingar þurft að leggj­ast í önd­un­ar­vél. „Við eigum eftir að taka sam­talið um hvað við gerum við þær önd­un­ar­vélar sem við teljum okkur ekki þurfa.“

Samkvæmt Land­spít­al­anum er enn óákveðið hver æski­legur fjöldi þess­ara véla sé með hlið­sjón af hugs­an­legri heil­brigð­isvá í fram­tíð­inni, annarri en COVID-19. Spít­al­inn reiknar með að vilja koma sér upp ein­hverjum lág­marks­vara­lager.

Ákvarð­anir um þetta liggja fyrir á næstu vikum, segir í svar­inu.

[adspot]

Kjarninn greindi frá því þann 9. apríl síð­ast­lið­inn að Land­spít­al­inn hefði fengið 17 önd­un­ar­vélar frá 14 íslenskum fyr­ir­tækjum. Fyr­ir­tækin vildu ekki láta nafns síns getið en með gjöf­inni vildu þau leggja sitt að mörkum við að styðja við íslenskt heil­brigð­is­kerfi á erf­iðum tímum.

Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­al­ans sagði á sínum tíma að þrot­laus vinna, útsjón­ar­semi og harð­fylgi lægi að baki því að koma þessum bún­aði til lands­ins enda væru öll ríki heims í kapp­hlaupi um þessar vörur um þessar mund­ir. Öll sú vinna hefði verið unnin í sam­vinnu við Land­spít­al­ann og gerð til að mæta þörfum hans. „Gjöfin er einkar vel tíma­sett og snýst um búnað sem munar mikið um,“ sagði hann.

Áður höfðu vel­unn­arar Land­spít­al­ans fært honum 15 hátækniönd­un­ar­vélar að gjöf en gjöfin barst frá Banda­ríkj­unum, að því er fram kom í frétt RÚV um málið. Vélarnar kost­uðu um þrjár millj­ónir stykkið og var verð­mæti þeirra sam­an­lagt því á fimmta tug millj­óna. Fyrir voru til 26 önd­un­ar­vélar á spít­al­anum.

Gef­and­inn kaus nafn­leynd, en sam­kvæmt heim­ildum RÚV var um að ræða hóp fólks með tengsl við Ísland.

Samkvæmt svörum frá Land­spít­al­anum falla þrjár vélar ekki undir skil­grein­ing­una „full­komnar önd­un­ar­vélar“ og því séu þær ekki taldar með í heild­ar­töl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár