2.200 færri nýjar þotur á loft næsta áratuginn

Sér­fræð­ingar Boeing segja að það muni taka far­þega­flugið þrjú ár að ná sömu hæðum og það gerði árið 2019. Flug­véla­fram­leið­and­inn banda­ríski spáir því að mun færri þotur verði afhentar á næstu árum en til stóð.

Þær verða flestar á jörðu niðri, enn um sinn.
Þær verða flestar á jörðu niðri, enn um sinn. Mynd: EPA

Boeing telur að ell­efu pró­sent færri nýjar þotur verði afhentar næsta ára­tug­inn en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Skýr­ingin: COVID-19.

Ellefu pró­sent hljóma kannski ekki eins og há tala. En hún er það – sér­stak­lega í ljósi þess að áætl­unin nær til allra flug­véla­fram­leið­enda. Gangi spá Boeing eftir munu 2.200 færri stórar flug­vélar verða afhentar næstu tíu árin en ef far­aldur COVID-19 hefði ekki komið til sög­unnar. Í frétt Seattle Times um málið segir að spáin nái yfir bæði Boeing og Airbus, ris­ana á mark­aðnum, en einnig smærri fyr­ir­tækja og sam­keppn­is­að­ila í Kína sem höfðu stór áform á prjón­unum.

Þessi mögu­lega sviðs­mynd er hluti af spá sem Boeing gefur út á hverju ári þar sem reynt er að horfa tvo ára­tugi fram í tím­ann um mögu­lega eft­ir­spurn í flug­geir­anum.

Að mati Boeing verður höggið harð­ast næstu þrjú árin og Darren Hulst, yfir­maður hjá fyr­ir­tæk­inu, sagði á blaða­manna­fundi í dag að það muni taka far­þega­flugið þrjú ár að kom­ast á svip­aðar slóðir og það var í fyrra.

Á síð­ustu tíu árum hefur far­þega­flug vaxið hratt – um helm­ingi hraðar en spár höfðu gert ráð fyrir. En svo kom COVID-19 til sög­unnar og flugið er meðal þeirra geira efna­hags­lífs­ins sem hafa orðið hvað verst úti.

Í nýj­ustu upp­lýs­ingum Alþjóð­legu flug­mála­stofn­un­ar­innar IATA kemur fram að far­þega­flug hafi dreg­ist saman um 75 pró­sent í heim­inum í ágúst miðað við sama mánuð í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár