Virði veðsettra bréfa dróst saman um 30 milljarða í mars

Heild­ar­virði allra félaga sem skráð eru á aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands og First North mark­að­inn dróst saman um 184 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020.

Mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa í Kauphöll Íslands hefur dreg­ist saman um næstum 30 millj­arða króna frá ára­mótum. Í lok des­em­ber síð­ast­lið­ins var mark­aðsvirði þeirra 195,1 millj­arður króna en við lok við­skipta síð­ast­lið­inn þriðju­dag var það 165,6 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina.

Veð­setn­ing hluta­bréfa skarpt á síð­ast ári. Í byrjun þess var mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa 129 millj­arðar króna. Í lok þess var það komið upp í rúm­lega 195 millj­arða króna og virði veð­settra hluta­bréfa því auk­ist um 66 millj­arða króna, eða 50 pró­sent.

Það er vel umfram þá hækkun sem varð á mark­aðsvirði allra hluta­bréfa í íslensku Kaup­höll­inni á árinu 2019, en þau hækk­uðu í heild um 30 pró­sent.

Alls er hlut­fall veð­töku um 15,5 pró­sent,

Heildarvirði félaga hríðfallið ár ársfjórðungnum

Árið 2020 hefur svo reynst fjár­festum erfitt. Heild­ar­virði hluta­bréfa þeirra félaga sem skráð eru á Aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands og First North mark­að­inn, alls 24 tals­ins, var 1.251 millj­arður króna í lok árs 2019.

Í lok mars var það 1.067 millj­arðar króna og hafði dreg­ist saman um 184 millj­arða króna á þremur mán­uðum.

[adspot]Þetta hefur enda verið hörmu­legur árs­fjórð­ungur, sér­stak­lega frá lokum febr­úar og út mars, eftir að áhrif af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum komu fram af fullum þunga. Einungis

Eftir að heild­­ar­­mark­aðsvirðið skreið aftur yfir eitt þús­und millj­­arða króna árið 2015 og fram á haustið 2018 var mark­aðsvirði veð­­settra hluta nokkuð stöðugt í lengri tíma, frá um 105 millj­­örðum kóna og upp í 123 millj­­arða króna. Hlut­­fall veð­töku af heild­­ar­­mark­aðsvirði skráðra félaga á þessu tíma­bili var frá um tíu pró­­sent og upp í tæp­­lega 14 pró­­sent.

Þá virð­ist hafa átt sér stað ein­hver breyt­ing sam­hliða því að fleiri einka­fjár­festar eru að gera sig gild­andi á mark­aðn­um. Frá því í lok sept­em­ber 2018 og fram til loka des­em­ber 2019 jókst mark­aðsvirði veð­­settra hluta­bréfa um 71 millj­arð króna. Á síð­asta ári einu saman jókst hún um 65 millj­arða króna og ef síð­asti árs­fjórð­ungur árs­ins 2019 er skoð­aður einn og sér þá jókst hún um 25 millj­arða króna, eða um 15 pró­sent.

Mikil veð­­setn­ing á árunum fyrir hrun

Veð­­setn­ing hluta­bréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal ann­­ars til mikla kerf­is­lega áhættu hér­­­lend­­is. Stór fjár­­­fest­ing­­ar­­fé­lög, sem áttu meðal ann­­ars stóra hluti í bönk­­um, fengu þá lán­aðar háar fjár­­hæðir með veði í bréf­um, til að kaupa önnur hluta­bréf. Þegar eitt­hvað súrn­aði varð keðju­verkun vegna kross­­eign­­ar­halds.

Auk þess lán­uðu íslenskir bankar fyrir hluta­bréfa­­kaupum í sjálfum sér með veði í bréf­unum sjálf­­um. Með því var öll áhættan hjá bönk­­unum sjálfum ef illa færi. Til­­­gang­­ur­inn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðli­­leg eft­ir­­spurn var eft­ir, og þar með til að hafa áhrif á eðli­­lega verð­­mynd­un. Hæst­i­­réttur Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­­ur­­stöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönk­­unum þremur að þetta atferli hafi falið í sér mark­aðs­mis­­­not­k­un.

Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með laga­breyt­ingum á und­an­­förnum árum.

Hafta­losun hleypti fag­fjár­festum út

Eftir hrun voru sett fjár­magns­höft. Þau gerðu það að verkum að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir voru fastir inni í íslensku efna­hags­lífi með þá nýju fjár­muni sem þeir þurftu að ávaxta ár hvert. Þeir þurftu því að kaupa all­flest sem var á boðstól­um, þar með talið hluta­bréf í þeim félögum sem skráð voru á markað í end­ur­reisn­ar­ferli íslensku Kaup­hall­ar­inn­ar.

[adspot]Auk þess voru fjöl­margir erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir sem veðjað höfðu á að hægt væri að ávaxta fjár­muni veru­lega á Íslandi í eft­ir­köstum banka­hruns­ins, meðal ann­ars með því að kaupa kröfur á föllnu bank­ana, umsvifa­miklir í kaupum á skráðum hluta­bréfum um tíma á meðan að höftin hengu uppi.

Þegar höft­unum var lyft, sem gerð­ist að stærstu leyti vorið 2017, gátu fag­fjár­fest­arnir farið með fjár­muni sína í ann­ars­konar fjár­fest­ing­ar. Það hafa þeir margir hverjir gert. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa verið að taka fjár­muni úr virkri stýr­ingu hjá verð­bréfa­sjóðum til að fjár­festa meira erlendis og erlendu fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir hafa minnkað nær allar stöður sínar nema í Marel og Arion banka.

Lít­ill sem eng­inn áhugi virð­ist vera erlendis frá á mik­illi fjár­fest­ingu hér­lend­is, eins og sást ljós­lega þegar bindi­skylda var lækkuð niður í núll snemma árs í fyrra, aðgerð sem var til þess fall­inn að reyna að örva erlenda fjár­fest­ingu. Síðan að það var gert hefur erlend fjár­fest­ing verið minni en hún var á sama tíma árið áður.

Jókst hratt í fyrra

Veð­­sett hluta­bréfa­­kaup hafa ekki verið jafn algengt tísku­­fyr­ir­brigði síð­­ast­lið­inn ára­tug og þau voru áður, þótt vissu­­lega séu und­an­­tekn­ingar þar á. Í lok árs 2014 var mark­aðsvirði veð­­settra hluta 11,25 pró­­sent af heild­­ar­­mark­aðsvirði félaga í Kaup­höll Íslands.

[links]Eftir að heild­­ar­­mark­aðsvirðið skreið aftur yfir eitt þús­und millj­­arða króna árið 2015 og fram á haustið 2018 var mark­aðsvirði veð­­settra hluta nokkuð stöðugt í lengri tíma, frá um 105 millj­­örðum kóna og upp í 123 millj­­arða króna. Hlut­­fall veð­töku af heild­­ar­­mark­aðsvirði skráðra félaga á þessu tíma­bili var frá um tíu pró­­sent og upp í tæp­­lega 14 pró­­sent.

Þá virð­ist hafa átt sér stað ein­hver breyt­ing sam­hliða því að fleiri einka­fjár­festar eru að gera sig gild­andi á mark­aðn­um. Frá því í lok sept­em­ber 2018 og fram til loka des­em­ber 2019 jókst mark­aðsvirði veð­­settra hluta­bréfa um 72 millj­arð króna. Á síð­asta ári einu saman jókst hún um 66 millj­arða króna og ef síð­asti árs­fjórð­ungur árs­ins 2019 er skoð­aður einn og sér þá jókst hún um 25 millj­arða króna, eða um 15 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár