LÍN frumvarp Illuga búið að vera í mánuð á milli ráðuneyta

Frumvarp Illuga Gunn­ars­sonar um breyt­ingar á lögum um LÍN er enn í kostn­að­ar­mati á milli fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins. Til stóð að klára frum­varpið fyrir meira en tveimur vikum. LÍN skil­aði millj­arða­af­gangi á síð­asta rekstr­ar­ári.

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað töluverðar breytingar á Lánasóði íslenskra námsmanna.
Illugi Gunn­ars­son mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefur boðað tölu­verðar breyt­ingar á Lánasóði íslenskra náms­manna.

Frumvarp til laga um breyt­ingar á Lána­sjóði íslenskra náms­manna (LÍN) hefur verið í kostn­að­ar­mati og vinnslu á milli fjár­mála- og mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins í tæpa tvo mánði. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu stóð til að afgreiða frum­varpið í síð­asta mán­uði, en ekk­ert hefur bólað á því. Frum­varpið felur í sér heild­ar­end­ur­skoðun á lög­gjöf um LÍN og þess vegna tekur svo langan tíma að ljúka yfir­ferð, segir upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við Kjarnann.

Afgangur í ársreikningi

LÍN var rek­inn með sjö millj­arða króna afgangi á síð­asta rekstr­ar­ári, er fram kemur í Frétta­blað­inu í dag, en Hrafn­hildur Ásta Þor­valds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri LÍN, segir þar að sjóð­ur­inn sé félags­legur jöfn­un­ar­sjóður og ekki eiga að vera rek­inn með hagn­aði. Ef frá er dregið fram­lag rík­is­sjóðs til sjóðs­ins sé tap á rekstr­inum.

„Í árs­reikn­ingi LÍN kemur fram að halli er á rekstri sjóðs­ins sem nemur 1,3 millj­örðum króna án rík­is­fram­lags í sam­an­burði við níu millj­arða króna halla á árinu 2014,“ segir Hrafn­hildur Ásta. „Hér er vert að hafa í huga að ríkið styrkir náms­menn á náms­lánum að með­al­tali um 47 pró­sent af útlánum sjóðs­ins á hverju ári,“ er haft eftir Höllu í Frétta­blað­inu.

Námsmenn erlendis gagnrýna breytingar

Úthlut­un­ar­reglum til náms­manna erlendis hefur verið breytt, sem fela í sumum til­vikum í sér allt að 20 pró­senta lægri fram­færslu frá sjóðnum til þeirra. Þessar breyt­ingar hafa þó ekki með frum­varpið að gera.

Hjördís Jóns­dóttir, full­trúi Samtaka íslenskra náms­manna erlendis (SÍNE) í stjórn LÍN, segir í Frétta­blað­inu að á sama tíma og sjóð­ur­inn skilar afgangi sé verið að skera úthlut­anir niður.

„Við hjá SÍNE höfum mót­mælt því harð­lega að verið sé að skerða fram­lag til nema erlendis. Til að mynda skrif­aði ég ekki undir nýjar úthlut­un­ar­reglur og okkur finnst við ekki hafa fengið nægan stuðn­ing frá stúd­entum hér á landi því full­trúar stúd­enta sam­þykktu úthlut­un­ar­regl­urnar,“ segir Hjördís. „Við teljum sjóð­inn vel geta staðið undir öfl­ugum útlánum til náms­manna erlendis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár