Trúnaðarráð harmar brotthvarf Sólveigar Önnu og kosningu nýs formanns flýtt

Trún­að­ar­ráð Eflingar, sem fer með æðsta vald í mál­efnum félags­ins milli félags­funda, hefur mælst til þess að stjórn­ar­kosn­ingu í Eflingu verði flýtt. Í ályktun ráðs­ins segir að í „for­mann­s­tíð Sól­veigar Önnu hefur þjón­usta félags­ins tekið miklum fram­förum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Næsta stjórn­ar­kosn­ing í Eflingu, þar með talin kosn­ing nýs for­manns, hefur verið flýtt og mun fara fram fyrir 15. febr­úar næst­kom­andi. Samkvæmt lögum félags­ins þarf kosn­ingin að fara fram fyrir lok mars en trún­að­ar­ráð Eflingar ákvað í gær, í ljósi aðstæðna, að halda bæði stjórn­ar­kosn­ingu og aðal­fund eins fljótt og auðið.

Í ályktun sem sam­þykkt var á fundið trún­að­ar­ráðs í gær er, líkt og áður sagði, mælst til þess að kosn­ing stjórnar fari fram fyrir 15. febr­úar næst­kom­andi og að aðal­fundur verði hald­inn fyrir 15. mars.

Fráfarandi formanni þakkað

Á fund­inum í gær var einnig sam­þykkt ályktun um frá­far­andi for­mann, Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, sem sagði af sér í síð­ustu viku. Í henni segir að Sólveig Anna hafi gefið „fyr­ir­heit um breyt­ingar í Eflingu í kosn­inga­bar­áttu vorið 2018. Við þau fyr­ir­heit hefur hún staðið. Í for­mann­s­tíð Sól­veigar Önnu hefur þjón­usta félags­ins tekið miklum fram­förum.

[adspot]Mik­il­væg­ust er þó umbreyt­ing félags­ins yfir í bar­áttu­sam­tök. Með því að virkja félags­fólk til þátt­töku í verk­falls­að­gerðum, samn­inga­nefndum, fjölda­fundum og opin­berum mál­flutn­ingi hefur félagið tekið algjörum stakka­skiptum.

Sólveig Anna sýndi að Efling gæti ekki aðeins leitt end­ur­nýj­aða bar­áttu verka- og lág­launa­fólks heldur náð raun­veru­legum árangri í þeirri bar­áttu. Þetta er ræki­lega stað­fest í tölum yfir launa­þróun síð­ustu ára.“

Trún­að­ar­ráðið þakkar Sólveigu Önnu „fyrir linnu­lausa bar­áttu hennar fyrir hags­munum Efl­ing­ar­fé­laga og harmar brott­hvarf hennar.“

Trún­að­ar­ráð Eflingar fer með æðsta vald í mál­efnum félags­ins milli félags­funda sé ekki ann­ars getið í lögum þess. Trún­að­ar­ráðið skipa stjórn félags­ins ásamt 115 full­trúum félags­manna. Full­skipað trún­að­ar­ráð er 130 manns.

Ekki búin að ákveða hvort hún bjóði sig aftur fram

Í við­tali við Kjarnann um síð­ustu helgi sagð­ist Sólveig Anna ekki vera búin að ákveða hvort hún muni bjóða sig aftur fram til for­manns Eflingar.

[links]Hún skilji þó að það séu bolla­legg­ingar um hvort hún muni fara aftur fram í kom­andi for­manns­kosn­ingum í Efl­ingu, sem þurfa að fara fram fyrir lok mars á næsta ári. „Ég hef fengið gríð­ar­legt magn af skila­boðum frá alls­konar fólki sem lýsir yfir upp­námi yfir því að þetta sé að ger­ast og inn­takið í þessum skila­boðum frá félags­fólki Efl­ingar er ein­beitt ósk um að þetta megi ekki vera að ger­ast. Það er ekki vegna þess að þeim finnst ég svo skemmti­leg mann­eskja, heldur út af þeim árangri sem hefur náðst. Og vegna þess að það fólk sem ég hef unnið með, til dæmis í samn­inga­nefnd­um, veit að ég gefst ekki upp. Ég segi alltaf satt og rétt frá og leita alltaf eftir lýð­ræð­is­legu umboði fyrir því sem ég geri og hef reynt að vera alltaf til staðar fyrir félags­fólk. En ég lít svo á núna að ég geti ekki hugsað lengra fram í tím­ann en einn dag í einu núna. Ég er bara þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár