Líneik Anna vill leiða Framsókn í Norðausturkjördæmi

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður býður sig fram til þess að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þórunn Egils­dóttir sem hefur leitt Framsókn í kjör­dæm­inu til­kynnti í síð­ustu viku að hún myndi hætta á þingi.

Líneik Anna Sævarsdóttir alþingismaður.
Líneik Anna Sæv­ars­dóttir alþing­is­maður. Mynd: Bára Huld Beck

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir alþing­is­maður býður sig fram í fyrsta sæti á fram­boðs­lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hún tók fyrst sæti á þingi árið 2013 og sat til árs­ins 2016, en kom síðan aftur inn á þing eftir kosn­ing­arnar 2017.[links]

Hún var í öðru sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæm­inu fyrir síð­ustu kosn­ingar. Þórunn Egils­dóttir, sem leiddi list­ann, hefur sem kunn­ugt er boðað að hún ætli ekki fram að nýju vegna veik­inda.

Í fram­boðstil­kynn­ingu frá Líneik Önnu segir að hún berj­ist fyrir jafn­rétti og jafn­ræði íbúa lands­ins og þar með góðum sam­göngum, bæði í raun­heimum og netheimum. Sam­göngur séu lyk­ill að tæki­færum og sam­fé­lags­þróun. Ein

„Sjálfbær nýt­ing nátt­úru­auð­linda er grund­völlur íslensks efna­hags­lífs og því þarf sam­spil manns og nátt­úru að vera við­var­andi við­fangs­efni stjórn­mál­anna. Mark­vissar aðgerðir í umhverf­is­málum eru mik­il­vægar og þurfa að byggja á upp­lýstri umræðu,“ segir einnig í frétta­til­kynn­ingu þing­manns­ins.

Póstkosningar fara fram í mars

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi mun kjósa á lista með póst­kosn­ingu, sem stendur yfir í mars. Kosið verður um efstu sex sætin á fram­boðs­lista flokks­ins. Fram­boðs­frestur rennur út sunnu­dag­inn 14. febr­úar.

Líneik Anna á heima á Fáskrúðs­firði í Fjarða­byggð þar sem hún hefur búið í ald­ar­fjórð­ung. Hún er upp­alin á Fljóts­dals­hér­aði en hefur auk þess búið um tíma á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Vest­ur­landi. Líneik er líf­fræð­ingur með kennslu­rétt­indi og hefur lengst af starfað við fræðslu­mál og stjórnun; við kennslu, verk­efna­stjórn og sem skóla­stjóri á Fáskrúðs­firði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár