Strætómiðinn upp í 550 krónur – Gjaldskráin hækkuð um 12,5 prósent

Stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að hækka gjald­skrána til að „draga úr þörf á frek­ari hag­ræð­ingu“ í leiða­kerf­inu. Einnig ætla sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins að „skoða“ að leggja félag­inu til aukið rekstr­arfé.

Staða Strætó bs. hefur verið þung í kjölfar heimsfaraldursins, sem dróg verulega úr farþegatekjum. Í ár hafa svo orðið töluverðar hækkanir á olíu, sem stór hluti flotans er enn háður.
Staða Strætó bs. hefur verið þung í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins, sem dróg veru­lega úr far­þega­tekjum. Í ár hafa svo orðið tölu­verðar hækk­anir á olíu, sem stór hluti flot­ans er enn háður. Mynd: Bára Huld Beck

Einn miði í stræt­is­vagn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun kosta 550 krónur frá og með 1. októ­ber, en fyrra verð var 490 krónur. Einnig hækka árskort og mán­að­ar­kort í vagn­ana um sam­svar­andi hlut­fall, eða 12,5 pró­sent.

Ákvörðun um þessa hækkun var tekin á stjórn­ar­fundi Strætó 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, en í frétta­til­kynn­ingu frá Strætó segir að hækk­unum sé ætlað að mæta almennum kostn­að­ar­verðs­hækk­unum á aðföngum Strætósvo sem olíu­verðs­hækk­unum og kostn­aði vegna vinnu­tíma­stytt­ingar, sem hafi „haft veru­leg áhrif á rekst­ur­inn“.

„Ávallt er reynt að stilla öllum verð­hækk­unum Strætó í hóf og er hækk­un­inni ætlað að draga úr þörf á frek­ari hag­ræð­ingu í leið­ar­kerfi Strætó á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Jafn­framt munu sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skoða að styrkja rekstur Strætó frekar en gert var ráð fyrir í fjár­hags­á­ætlun árs­ins 2022,“ segir í til­kynn­ingu frá Strætó.

[adspot]

Gjald­skrá Strætó var síð­ast hækkuð um ára­mótin 2020-21 en tók þó einnig smá­vægi­legum breyt­ingum við inn­leið­ingu Klapp-for­rits­ins undir lok síð­asta árs.

Frá því í jan­úar 2021 og þar til í ágúst síð­ast­liðnum hækk­aði almennt verð­lag á Íslandi um 13,3 pró­sent og eru hækk­anir á far­gjöldum Strætó, upp á 12,5 pró­sent sem áður segir, því ekki að halda í við verð­bólgu á þessu tíma­bili.

Árskort fullorðinna í 90 þúsund

Breyt­ing­arnar á gjald­skránni þýða að árskort full­orð­inna fer úr 80 þús­und krónum í 90 þús­und krónur, mán­að­ar­kort full­orð­inna fer úr 8 þús­und krónum í 9 þús­und krónur. Árskort fyrir ung­menni og aldr­aða fara úr 40 þús­und krónum í 45 þús­und og mán­að­ar­kort úr 4.000 krónum í 4.500 krónur.

Árskort öryrkja hækka úr 24.000 krónum í 27.000 krónur og mán­að­ar­kort öryrkja fer úr 2.400 krónum í 2.700 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár