Danska skýjaborgin Vinge

Það er ekki nóg að fá háleitar hug­myndir, það þarf líka ein­hvern til að fram­kvæma þær. Þessu hafa bæj­ar­yf­ir­völd í Frederiks­sund á Sjálandi fengið að kynn­ast, þar sem draum­sýn hefur breyst í hálf­gerða martröð.

Vinningstillaga Henning Larsen arkitektastofunnar að því hvernig Vinge ætti að líta út. Veruleikinn í dag er allt annar.
Vinn­ings­til­laga Henning Larsen arki­tekta­stof­unnar að því hvernig Vinge ætti að líta út. Veru­leik­inn í dag er allt annar. Mynd: Skjáskot

Árið 2011 kynntu bæj­ar­yf­ir­völd í Frederiks­sund á Norður – Sjálandi ákvörðun um að byggja frá grunni nýtt hverfi suð­austan við bæinn. Þar var stórt óbyggt land­svæði og bæj­ar­yf­ir­völdin hugs­uðu stórt, og langt, fram í tím­ann. Fyrsta skrefið var að velja þessu nýja svæði nafn og eftir sam­keppni varð nafnið Vinge fyrir val­inu. Bæj­ar­yf­ir­völd sögðu nafnið lýsa flugi fugla, lagt væri upp í ferð með til­tek­inn áfanga­stað en leiðin væri ekki alveg skýrt afmörkuð. Konan sem sendi inn til­lög­una um nafnið Vinge sagði að hún hefði ein­fald­lega séð gítar með þessu nafni og fund­ist það snið­ugt.

Næsta skref var að velja hönn­uði að svæð­inu. Efnt var til sam­keppni og til­laga arki­tekta­stof­unnar Henning Larsen architects varð fyrir val­inu. Henning Larsen arki­tektar hafa hannað fjöl­margar þekktar bygg­ingar víða um heim, þar á meðal tón­list­ar­húsið Hörpu, í sam­vinnu við íslensku arki­tekta­stof­una Batt­er­íið.

20 þúsund íbúar og nokkur þúsund störf

Vorið 2013 kynntu bæj­ar­yf­ir­völd i Frederiks­sund og Henning Larsen arki­tektar skipu­lags­hug­myndir og áætl­anir fyrir þetta nýja svæði, Vinge. Áætlanir gera ráð fyrir að árið 2035 verði um 20 þús­und íbúar á svæð­inu, í ein­býlis-, rað- og fjöl­býl­is­húsum og þar verði einnig fyr­ir­tæki, með að minnsta kosti 4 þús­und starfs­menn.

[adspot]Bæj­ar­stjór­inn í Frederiks­sund sagði þessar áætl­anir sýna stór­hug og fram­sýni en íbúar Frederiks­sund eru í dag rúm­lega 16 þús­und.

Lestarstöðin

Ein helsta for­senda þess að fólki og fyr­ir­tækjum þyki fýsi­legt að koma sér fyrir í nýjum hverfum eru tryggar og greiðar almenn­ings sam­göngur og vega­kerfi. Vega­kerfið á þessu svæði er ágætt og ný brú yfir Hró­arskeldu­fjörð­inn verður opnuð á næst­unni. Arki­tekt­arnir gerðu ráð fyrir stórri versl­ana­mið­stöð í miðbæ Vinge og hún myndi tengj­ast nýrri lest­ar­stöð. Slík stöð er ekki ein­hliða ákvörðun bæj­ar­yf­ir­valda, þar þarf ríkið að koma til skjal­anna ásamt Dönsku járn­braut­unum. Allt tók þetta sinn tíma en árið 2016 lá ákvörðun um lest­ar­stöð­ina fyrir. Kostn­að­ar­á­ætlun hljóð­aði upp á 55 millj­ónir danskra króna (rúm­lega 1 millj­arður íslenskur).

Und­ir­bún­ingur fram­kvæmda hófst skömmu síðar og þegar hefur verið varið um það bil 17 millj­ónum danskra króna til verks­ins.

Fjármögnun

Þegar áætl­an­irnar um Vinge svæðið voru kynntar kom fram að þær fram­kvæmdir sem bæj­ar­fé­lagið Frederiks­sund yrði að takast á hendur varð­andi upp­bygg­ing­una, götur, lagna­kerfi o.s.frv. yrðu fjár­magn­aðar með sölu bygg­inga­lóða til verk­taka og ann­arra fyr­ir­tækja. Bæj­ar­yf­ir­völd í Frederiks­sund töldu fyr­ir­fram að auð­velt myndi reyn­ast að selja bygg­inga­lóð­irnar í þessu nýja hverfi. Fjar­lægðin frá Vinge til mið­borgar Kaup­manna­hafnar er innan við 50 kíló­metrar og margir sem vinna í borg­inni ferð­ast mun lengra til vinnu á degi hverjum.

Í trausti þess að allt gengi þetta eftir, fólk og fyr­ir­tæki myndu flykkj­ast til Vinge, var farið af stað með und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir á svæð­inu. Lóðir voru boðnar til sölu og samn­ingar gerðir við verk­taka varð­andi gatna­gerð og annað það sem sneri að sveit­ar­fé­lag­inu.

Allt gengið á afturfótum

Bjart­sýni bæj­ar­yf­ir­valda í Frederiks­sund varð­andi Vinge verk­efnið reynd­ist ekki á rökum reist. Áhugi verk­taka fyrir að byggja reynd­ist mjög tak­mark­aður og þar að auki hurfu tveir stórir verk­takar frá í miðjum klíðum. Þeir sögðu að ekki hefði verið búið að ganga end­an­lega frá samn­ingum, þar hefðu verið allt of margir lausir endar og bær­inn tregur til að semja. Þess vegna hefðu þeir ekki átt ann­ars úrkosti en segja sig frá verk­inu.

[adspot]Bærinn situr uppi með umtals­verð útgjöld vegna þessa, hefur þegar orðið að leggja út 163 millj­ónir króna (rúmir 3 millj­arðar íslenskir) sem ekki var gert ráð fyrir í fjár­hags­á­ætlun bæj­ar­ins. 163 millj­ónir eru miklir pen­ingar í ekki stærra bæj­ar­fé­lagi þar sem rekst­ur­inn hefur verið í járnum árum saman eins og hjá mörgum öðrum bæj­ar­fé­lögum. Fyrir fram var búist við að í lok þessa árs myndu að minnsta kosti 2 þús­und manns búa í Vinge en íbú­arnir eru nú innan við tvö hund­ruð. Fyr­ir­tæki hafa líka verið mjög hik­andi við að koma sér fyrir á svæð­inu og segja ástæð­una þá að mikil óvissa ríki um fram­tíð þess.

Stjórnmálamenn hikandi en bæjarstjóri bjartsýnn

Vand­ræða­gang­ur­inn varð­andi Vinge hefur ekki farið fram hjá stjórn­mála­mönn­unum. Og nú hika þeir varð­andi fram­haldið. Nokkrir þing­menn hafa lýst því yfir að ekki komi til greina að halda fram­kvæmdum við lest­ar­stöð­ina áfram fyrr en ljóst verði að fleira fólk flytji til Vinge og íbú­arnir að minnsta kosti orðnir 2 þús­und. Sumir úr hópi þing­manna hafa jafn­vel látið í ljós efa­semdir um að Vinge verði nokkurn tíma að veru­leika, svæðið verði drauga­borg, eins og einn þeirra orð­aði það.

Und­an­farið hefur bæj­ar­stjórn Frederiks­sund fundað stíft með þing­mönnum, verk­tökum, for­svars­mönnum bygg­ing­ar­sam­vinnu­fé­laga og ýmsum fleirum. Bæj­ar­stjór­inn í Frederiks­sund seg­ist bjart­sýnn á að brátt fari hjólin að snú­ast og kveðst sann­færður um að Vinge verði eft­ir­sótt hverfi innan fárra ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár