Samkynhneigðir karlmenn fá að gefa blóð verði drög að reglugerð samþykkt

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur lagt fram drög að reglu­gerð í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem felur meðal ann­ars í sér að kyn­hegðun valdi ekki lengur var­an­legri frá­vísun blóð­gjafar.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur sett drög að breyt­ingu á reglu­gerð um söfnun, með­ferð, varð­veislu og dreif­ingu blóðs og við­auka IV við sömu reglu­gerð í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda til umsagnar. Drögin verða í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í tvær vikur, en rúmar tvær vikur eru í næstu þing­kosn­ingar.

Taki breytt reglu­gerð gildi munu allir geta gefið blóð óháð kyn­hneigð, kyni, upp­runa eða stöðu að öðru leyti. Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að bætt verði inn í reglu­gerð­ina að það sé ein­fald­lega óheim­ilt að mis­muna blóð­gjöfum á grund­velli ómál­efn­an­legra sjón­ar­miða.

[adspot]Um mikla breyt­ingu er að ræða, en í dag má ekki gefa blóð ef við­kom­andi hefur til að mynda ein­hvern tím­ann sprautað sig í æð eða vöðva með fíkni­efnum eða sterum, ert karl­maður sem hefur ein­hvern tím­ann haft kyn­mök við annan karl­mann eða hefur ein­hvern tím­ann stundað vændi.

Í til­kynn­ingu stjórn­ar­ráðs­ins segir að breyt­ingin feli í sér að kyn­hegðun valdi ekki lengur var­an­legri frá­vísun blóð­gjafar. „Í stað­inn er kveðið á um að blóð­gjafi megi ekki hafa stundað áhættu­samt kyn­líf í fjóra mán­uði fyrir blóð­gjöf. Lögð er til skil­grein­ing á því hvað telst vera áhættu­samt kyn­líf en í því felst að það sé kyn­líf sem eykur veru­lega líkur á að alvar­legir smit­sjúk­dómar ber­ist með blóði. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár