Sementið og kórónuveiran

Þótt mörg dönsk fyr­ir­tæki séu meira og minna lömuð vegna COVID-19 gildir það ekki um gam­al­gróið fyr­ir­tæki í Álaborg. 175 þús­und manns treysta á að starf­semi þess stöðv­ist ekki. Það fram­leiðir ekki spritt, sápu né and­lits­grímur.

Ástæða þess að fjórmenningarnir völdu Rørdal við Álaborg fyrir verksmiðjuna var ekki tilviljun. Á þessu svæði var, og er enn, auðveldur aðgangur að þeim jarðefnum.
Ástæða þess að fjór­menn­ing­arnir völdu Rørdal við Álaborg fyrir verk­smiðj­una var ekki til­viljun. Á þessu svæði var, og er enn, auð­veldur aðgangur að þeim jarð­efnum. Mynd: af heimasíðu Aalborg Portland

Ef spurt væri, hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið Álaborg myndu lík­lega flestir nefna Ákavíti. Saga Ála­borgar Áka­vít­is­ins á sér langa sögu, heitir reyndar Taffel Akvavit, en gengur í dag­legu tali undir nafn­inu Rød Aalborg. Þessi vin­sæli snafs var fyrst fram­leiddur árið 1846 og upp­skriftin er enn sú sama. Og kannski ekki að ástæðu­lausu. Í vín­keppnum hefur „sá rauði“ (sem er glær, þrátt fyrir nafnið) nefni­lega margoft verið val­inn besta áka­víti í heimi.

En það er fleira sem ættað er frá Álaborg og nágrenni en „sá rauði“. Árið 1889 komu fjórir menn saman á búgarð­inum Rørdal fyrir austan Álaborg og stofn­uðu fyr­ir­tæki. Tæpast hafa þeir rennt grun í að þetta fyr­ir­tæki, sem fékk nafnið Aalborg Portland-Cement-Fabrik, yrði með tíð og tíma stór­fyr­ir­tæki, þekkt um víða ver­öld. Eins og nafnið gefur til kynna var ætlun fjór­menn­ing­anna að fram­leiða sem­ent.

Sementið var ekki upp­finn­ing fjór­menn­ing­anna. Saga þess er í raun árþús­unda gömul og verður ekki rakin hér en segja má að sem­entið eins og við þekkjum það í dag sé afrakstur ótal til­rauna og aðferða í fjöl­mörgum löndum. Orðið sem­ent (cement) er komið úr lat­ínu en það mun hafa verið breski múr­ar­inn Joseph Aspdin sem fyrstur not­aði orðið Portland í þessu sam­hengi, árið 1824. Þá sótti hann um einka­leyfi á sem­ents­blöndu með þessu nafni. Liturinn á sem­ents­blönd­unni minnti hann á kalk­stein­inn á eyj­unni Portland á Suður-Englandi. Til eru margar gerðir af sem­enti en sú sem nefnd er Portland sem­ent er lang algeng­ust. Stein­steypan, eins og við þekkjum hana verður æ algeng­ara bygg­inga­efni á 19. öld og sú stein­steypu­öld stendur enn. Danirnir sem stofn­uðu Aalborg Portland-Cement-fabrik fundu, eins og áður var nefnt, ekki upp „sem­ents­hjólið“ en þeir gripu tæki­færið og veðj­uðu sann­ar­lega á réttan hest.

Staðarvalið og græjurnar

Ástæða þess að fjór­menn­ing­arnir völdu Rørdal við Álaborg fyrir verk­smiðj­una var ekki til­viljun. Á þessu svæði var, og er enn, auð­veldur aðgangur að þeim jarð­efnum sem notuð eru við sem­ents­fram­leiðsl­una og stað­setn­ingin við Lima­fjörð­inn (Lim­fjor­den var ákjós­an­leg varð­andi flutn­inga á sem­ent­inu. Þeir félagar hugs­uðu stórt, þeir fylgd­ust grannt með tækninýj­ungum og fundu sjálfir upp margt sem við­kom fram­leiðsl­unni.

Í upp­hafi voru brennslu­ofn­arnir sem not­aðir voru við fram­leiðsl­una tíu tals­ins, þeir voru eigin hönnun verk­smiðju­eig­end­anna. Árið 1909 voru settir upp í verk­smiðj­unni fjórir svo­nefndir snún­ings­ofnar. Þeir voru upp­finn­ing Edisons (1885). Snún­ings­ofnar komu í stað tíu ofna sem fyrir voru en afkasta­geta nýju ofn­anna var marg­falt meiri en þeirra gömlu. Árs­fram­leiðslan jókst úr 55 þús­und tonnum í 115 þús­und tonn. Snún­ings­ofnar eru enn not­aðir við fram­leiðsl­una.

Þeir eru engin smá­smíði, lengsti ofn­inn er 180 metra langur og í honum er hægt að brenna 5 þús­und tonn af jarð­efnum á hverjum degi, hit­inn í ofn­unum nær 15 hund­ruð gráðum. Ótal tækninýj­ungar hafa litið dags­ins ljós á þeim 130 árum sem liðin eru frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins. Nefna má að árið 1990 var tekin í notkun fjar­varma­veita sem nýtir hita frá fram­leiðsl­unni, hún gat séð 15 þús­und íbúðum í Álaborg fyrir upp­hitun. Fjar­varma­veitan var síðar stækkuð og nú hitar hún ofn­ana í 35 þús­und íbúðum.

Árleg fram­leiðsla sem­ents­verk­smiðj­unnar í Rørdal nemur nú rúm­lega 2,3 millj­ónum tonna. Þótt starf­semi Aalborg Portland A/S (eins og fyr­ir­tækið heitir nú) hafi breyst mikið á þeim rúm­lega 130 árum sem liðin eru frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins eru höf­uð­stöðv­arnar enn á sama stað í Rørdal. Tæknin hefur gert að verkum að starfs­fólk er mun færra en áður var. Starfs­menn í Rørdal eru um 300 en sam­tals vinna 700 manns hjá fyr­ir­tæk­inu, í Danmörku. Aalborg Portland A/S er auk þess með starf­semi í mörgum öðrum löndum en það er önnur saga.

175 þúsund störf í húfi

Yfir­stjórn Aalborg Portland A/S hefur gripið til mik­illa ráð­staf­ana í verk­smiðj­unni í Rørdal vegna COVID-19. Verk­smiðj­unni hefur verið skipt upp í tvö algjör­lega aðskilin vinnu­svæði og mjög strangar reglur gilda varð­andi stjórn­stöð­ina, sem Michael Lund­gaard Thomsen for­stjóri kallar „ the war room“. Í stjórn­stöð­inni vinna hverju sinni aðeins þrír menn en þaðan er allri fram­leiðsl­unni stjórnað. Og það er mikið í húfi. For­stjór­inn sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að ef fram­leiðslan myndi raskast, eða stöðvast um tíma, myndi fyr­ir­tækið lifa af. En öðru máli gegnir um bygg­inga­iðn­að­inn.

[links]„Ef steypu­fram­leiðslan stöðvast hér hjá okkur fer allur bygg­inga­iðn­að­ur­inn í Danmörku á hlið­ina tveimur dögum síðar. Þetta sýnir hvað þessi atvinnu­grein er við­kvæm og má við litlu,“ sagði for­stjór­inn. Og sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Politi­ken afl­aði sér er um að ræða 175 þús­und störf, og enn sem komið er mæta tug­þús­undir (orða­lag Politi­ken) til vinnu á hverjum degi, ólíkt því sem gildir um margar, ef ekki flestar, aðrar atvinnu­greinar. „Ábyrgð okkar er mikil og við munum gera allt til að rísa undir henni.“

Michael H. Nielsen fram­kvæmda­stjóri Samtaka danska bygg­inga­iðn­að­ar­ins, Dansk Byggeri, tekur undir með for­stjóra Aalborg Portland A/S og segir mjög mik­il­vægt að bygg­inga­fyr­ir­tækin haldi sínu striki. „Og það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að Aalborg Portland A/S skiptir höf­uð­máli í þessu til­liti. Auðvitað er margt annað mik­il­vægt í þessu til­liti,“ sagði fram­kvæmda­stjór­inn, „við höfum samið við Samband sveit­ar­fé­laga um að hægt verði að losna við bygg­inga­úr­gang á end­ur­vinnslu­stöðvar og eigum í við­ræðum við sam­tök bygg­inga­vöru­versl­ana um að tryggja að ekki verði skortur á vörum. En af ein­stökum fyr­ir­tækjum er Aalborg Portland A/S lang mik­il­væg­ast, því ef eitt­hvað fer úrskeiðis þar eigum við engra kosta völ og bygg­inga­iðn­að­ur­inn mun stöðvast. Það má ekki ger­ast,“ sagði fram­kvæmda­stjóri Dansk Byggeri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár