Bjargráð Bidens í loftslagsmálum

Eitt af því sem greindi Joe Biden og Donald Trump helst að í kosn­inga­bar­átt­unni voru lofts­lags­málin en sá fyrr­nefndi, sem nú hefur verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna, hefur heitið því að verja tveimur billjónum dala til að draga úr losun.

Biden fór á loftslagsráðstefnuna í París 2015 og kom heim til Bandaríkjanna til að bera út boðskapinn.
Biden fór á lofts­lags­ráð­stefn­una í París 2015 og kom heim til Banda­ríkj­anna til að bera út boð­skap­inn. Mynd: EPA

Vonir standa til þess að þegar á fyrstu hund­rað dögum Josephs Biden á for­seta­stóli muni aðgerðum gegn lofts­lags­vánni rigna yfir Banda­ríkin. En svo aftur sé gripið til nátt­úru­lýs­ingar á því sem kann að ger­ast: Í miklum rign­ingum eiga stíflur það til að mynd­ast. Og stíflan gæti falist í and­stöðu öld­unga­deildar þings­ins – verði það enn undir yfir­ráðum repúblik­ana sem hafa hingað til ekki verið yfir sig hrifnir af lögum og reglum í umhverf­is­málum. Það á hins vegar eftir að skýr­ast frekar því svo gæti farið að demókratar nái meiri­hluta í deild­inni. Þá kann sú stífla í mála­flokknum að bresta.

En mark­mið Bidens í lofts­lags­málum eru skýr og hann hefur heitið því að eyða tveimur billjónum dala, ($2.000.000.000.000) á fjórum árum í það að draga úr útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, minnka notkun jarð­efna­elds­neytis og auka þátt hreinni orku­gjafa. Þetta eru metn­að­ar­fyllstu mark­mið sem nokkur for­seta­fram­bjóð­andi vest­an­hafs hefur sett fram í mála­flokknum sem sífellt meiri áhersla er nú lögð á í heim­inum.

Í sam­an­tekt New York Times eru talin upp þau helstu atriði er tengj­ast lofts­lags­málum sem Biden ætlar að leggja áherslu á frá fyrsta degi í Hvíta hús­inu.

Það fyrsta sem hann mun gera er að end­ur­vekja þátt­töku Banda­ríkj­anna í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu sem skrifað var undir árið 2015 en Trump dró þjóð sína út úr. Þetta verður ekki flókið verk því það eina sem Biden þarf að gera er að senda Sam­ein­uðu þjóð­unum bréf með ósk sinni um þátt­töku á ný sem ræt­ist svo þrjá­tíu dögum síðar.

Biden hefur einnig sagt að hann ætli sér að blása til lofts­lags­ráð­stefnu til að þrýsta á leið­toga stærstu iðn­velda heims til að setja sér metn­að­ar­fyllri mark­mið þegar kemur að því að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Sér­fræð­ingar telja að Biden muni einnig flétta lofts­lags­að­gerðir inn í alla efna­hags­lega hvata sem ráð­ist verður í vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Þannig er talið lík­legt að nýsköpun og rann­sóknir til þró­unar á hreinum orku­gjöfum fái vænan skerf af þeirri köku og að ein­stökum ríkjum verði veittir styrkir til að halda áfram þróun sinni á end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Þá má búast við því að vist­vænum fyr­ir­tækjum verði umb­unað í skatt­kerf­inu.

Biden hefur einnig sagt að hann ætli þegar á fyrsta degi í emb­ætti að gefa út for­seta­til­skipun um að opin­ber fyr­ir­tæki verði að halda lofts­lags­bók­hald. Þá er búist við því að hann fari vand­lega yfir til­slak­anir sem gerðar voru á olíu­rann­sóknum og fram­leiðslu árið 2017 og svo gæti farið að hann stöðv­aði flýti­með­ferð skipu­lags- og umhverf­is­mats­ferlis olíu­leiðslna og jarð­efna­elds­neyt­is­vinnslu.

For­set­inn verð­andi hefur talað fyrir því að lofts­lags­málin verði skoðuð sam­hliða jafn­rétt­is­málum og að sér­stak­lega verði fylgst með mengun og öðrum umhverf­is­þáttum í við­kvæmum sam­fé­lögum.

Víðernin eru ofar­lega á blaði Bidens og ætlar hann að vinda ofan af „árás Trumps“ á ger­semar Banda­ríkj­anna og á þar við skerð­ingar hans á frið­löndum og ekki síst þá ákvörðun hans að heim­ila olíu­leit í einu þeirra. Biden stefnir á að gefa út til­skipun þess efnis að árið 2030 muni 30 pró­sent af landi og haf­svæði Banda­ríkj­anna njóta verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár