Fimmtíu ára áætlunin

„Söguleg stund fyrir Kaup­manna­höfn og alla Danmörku“ sagði danski for­sæt­is­ráð­herr­ann þegar hann kynnti, fyrir skömmu, það sem hann kall­aði metn­að­ar­fyllstu fram­kvæmda­á­ætlun í sögu Dan­merkur. Henni á að vera lokið árið 2070.

Þótt áætl­ana­gerð þyki í dag sjálf­sagður hlutur hefur það ekki alltaf verið þannig. Það þótti nýlunda þegar sov­ét­menn settu fram sína fyrstu fimm ára áætlun árið 1928, sam­tals urðu þær þrettán tals­ins og náðu því yfir 65 ár.

Sú áætlun sem danska rík­is­stjórnin kynnti nýlega er ekki jafn stór­tæk og þær sov­ésku en Danir horfa hins vegar mun lengra fram í tím­ann, en áætlun þeirra spannar hálfa öld.

Þrískipt fimmtíu ára plan

Fimmtíu ára Kaup­manna­hafn­arplanið, eins og Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana hefur kallað áætl­un­ina er í raun þrí­skipt: í fyrsta lagi land­fyll­ing út í Eyr­ar­sund. Þetta svæði milli Norð­ur­hafn­ar­innar og Refs­haleøen fær nafnið Lynettehol­men. Í öðru lagi níu eyjar við Avedøre Holme, fyrir botni Køge bugtar, fast við E20 hrað­braut­ina (Ama­germotor­vejen). Þriðji hluti áætl­un­ar­innar hefur verið nefndur Hafn­ar­göngin eða Østre Ringvej, jarð­göng sem liggja frá Sjá­lands­brúnni, upp í gegnum Amager, Refs­haleøen og Norð­ur­höfn­ina og teng­ist Hels­ingør hrað­braut­inni. Með þessu er gert ráð fyrir að bíla­um­ferð um mið­borg Kaup­manna­hafnar, um Kóngsins Nýjatorg og Ráð­hús­torgið minnki veru­lega.

Lynetteholmen

18. októ­ber í fyrra (2018) tók­ust þeir í hendur, á fundi með frétta­mönnum, Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra og Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri Kaup­manna­hafnar. Það höfðu þeir auð­vitað oft gert áður en þetta handa­band inn­sigl­aði sam­komu­lag rík­is­ins og borg­ar­stjórnar Kaup­manna­hafnar um upp­bygg­ingu svæðis sem fengið hefur nafnið Lynettehol­men. Svæðið verður um það bil 200 hekt­arar á stærð, og teng­ist Refs­haleøen. Lynettehol­men verður land­fyll­ing (eins og t.d Krist­jáns­höfn), allt efnið verður því að flytja að. Á þess­ari til­búnu eyju er gert ráð fyrir um það bil 20 þús­und íbúðum og jafn­framt verður hluti eyj­unnar ætl­aður fyr­ir­tækjum.

Ráð­herr­ann og borg­ar­stjór­inn nefndu töl­una 35 þús­und þegar frétta­menn spurðu um hugs­an­legan fjölda starfa. Lars Løkke Rasmus­sen lagði áherslu á að þetta sam­komu­lag sem nú hefði verið stað­fest væri ein­ungis fyrsta skrefið og öll vinnan væri eftir, fyrst skipu­lags­vinna og síðan þessi risa­fram­kvæmd, eins og hann komst að orði. „Þetta er fimm­tíu ára plan“ sagði ráð­herr­ann, ef allt gengi eftir yrði þessu verk­efni lokið árið 2070.

Til við­bótar er ætl­unin að byggja 15 þús­und nýjar íbúðir á Refs­haleøen , þar sem skipa­smíða­stöðin Burmeister & Wain var á árunum 1872 – 1996. Starfs­menn þar voru um ára­tuga­skeið fleiri en 10 þús­und. Margar stórar bygg­ingar frá tíma B&W standa enn, þar á meðal skemman sem notuð var fyrir Eurovi­son söngvakeppn­ina árið 2014. Á Refs­haleøen er líka skólp­hreins­unar- og frá­rennsl­is­stöðin Lynetten sem var tekin í notkun árið 1980 og var þá sú stærsta sinnar teg­undar í Norður- Evrópu. Í tengslum við fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir á Refs­haleøen hefur verið rætt um að flytja starf­semi Lynetten annað en það er „stór­verk­efni“ eins og Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri orð­aði það. Þegar frétta­menn spurðu um hugs­an­legan kostnað nefndi danski for­sæt­is­ráð­herr­ann töl­una 20 millj­arða danskra króna (371 millj­arð íslenskan). Sér­fræð­ingum sem danskir fjöl­miðlar hafa talað við telja það mjög var­lega áætlað. Ætlunin er að sala á landi, á svæð­inu, standi að öllu leyti undir kostn­að­inum við land­fyll­ing­una.

Níu hólmar við Avedøre

Fyrir nokkrum dögum kynnti danski vinnu­mála­ráð­herr­ann Rasmus Jarlov og Helle Adelborg, borg­ar­stjóri í Hvidovre, áætlun um miklar fram­kvæmdir við Avedøre hólmann, fast við E20 hrað­braut­ina (sem liggur við Kastrup flug­völl til Sví­þjóðar) og Kalvebod brúna. Áætlunin sem ráð­herr­ann og borg­ar­stjór­inn kynntu er í stuttu máli sú að við Avedøre hólmann komi níu nýir hólmar. Hólminn sem fyrir er var að miklu leyti gerður úr land­fyll­ingum milli margra smá­hólma á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og er 450 hekt­arar að stærð. Þar eru tæp­lega 400 fyr­ir­tæki, með um 9 þús­und starfs­menn. Lang stærst er Avedøre hreins­unar-, fjar­varma-og raf­orku­verið, fyrsti hluti þess var tek­inn í notkun árið 1990.

Nýju hólm­arnir níu verða sam­tals um 300 hekt­arar að stærð. Þar er gert ráð fyrir 380 nýjum fyr­ir­tækjum með allt að 12 þús­und starfs­mönnum. Ekki er gert ráð fyrir neinum íbúð­ar­húsum en hins­vegar opnum úti­vist­ar­svæðum. Ætlunin er að fram­kvæmdir hefj­ist árið 2022. Kostn­að­ar­mat liggur ekki fyrir en tekna vegna land­fyll­ing­anna á að afla með sölu lóða á svæð­inu.

Hvaðan kemur efnið?

Hólm­arnir níu verða ein­göngu gerðir með land­fyll­ingum, eins og Lynettehol­men og í þá þarf gríð­ar­lega mikið jarð­efni. Og það liggur ekki bein­línis á lausu. Ráð­herrar og borg­ar­stjórar sögðu aðspurðir að búast mætti við að mikið efni feng­ist frá bygg­inga­svæðum ann­ars staðar í Kaup­manna­höfn en sér­fræð­ingar hafa bent á að alls óvíst sé að það efni sem þannig fellur til dugi til þess­ara miklu land­fyll­inga.

Á Sjálandi er jarð­efni af skornum skammti og vel gæti svo farið að flytja þyrfti mikið efni frá Jótlandi (þar er nægt efni til) en slíkir flutn­ingar kosta mikið fé.

Göngin

Umferð bíla í og við mið­borg Kaup­manna­hafnar hefur auk­ist mikið á und­an­förnum árum þrátt fyrir að sífellt fleiri noti reið­hjól og sömu­leiðis Metro- lest­irnar til að kom­ast leiðar sinnar. Árum saman hefur verið rætt um leiðir til að draga úr umferð­inni, ekki síst stórra bíla. Mörgum þykir óvið­und­andi að helstu umferð­ar­æðar mið­borg­ar­innar liggi um tvö aðal­torg bæj­ar­ins, Kóngsins Nýjatorg og Ráð­hús­torgið.

Margt hefur verið rætt í þessu sam­bandi en nýjasta hug­myndin og sú sem nú er einkum horft til er að gera göng frá svæð­inu við Sjá­lands­brúna, upp í gegnum Amager, Refs­haleøen og Norð­ur­höfn­ina sem teng­ist svo Hels­ingør hrað­braut­inni. Þetta yrði mikil fram­kvæmd sem kosta myndi tugi millj­arða danskra króna. Rík­is­stjórnin og borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar ákváðu í fyrra að láta kanna kostnað við slíka fram­kvæmd og enn­fremur koma með til­lögur um nákvæma legu gang­anna.

Í umræðum hefur komið fram að inn­heimt yrði gjald fyrir að aka um göngin. Rétt er að nefna að nyrsti bútur þess­arar fram­kvæmdar, Nordhavns­vejen, hefur þegar verið tek­inn í notkun, hluti hans eru tæp­lega eins kíló­metra löng göng. Nordhavns­vejen var lagður til að létta á umferð til Norð­ur­hafn­ar­innar en myndi tengj­ast göng­unum sem nú eru í bígerð. Sömu­leiðis stendur nú yfir athugun á mögu­leikum þess að leggja nýja Metro lesta­línu um Refs­haleøen en sú vinna er skammt á veg komin.

Ekki allir jafn hrifnir

Eftir að „fimm­tíu ára áætl­unin“ var kynnt hafa nokkrir bæj­ar­stjórar á Sjálandi(Danir kalla bæj­ar­stjór­ana borg­ar­stjóra) gagn­rýnt fyr­ir­ætl­anir stjórn­valda. Borg­ar­stjór­arnir segja að með þess­ari áætlun sé algjör­lega litið fram hjá öðrum svæðum á Sjálandi og ein­blínt á Kaup­manna­höfn. Víða á Sjálandi sé nægt land­rými þar sem ekki þurfi að eyða stórfé í land­fyll­ingar.

Mikael Smed, borg­ar­stjóri í Vor­ding­borg sagði í við­tali við DR, danska útvarpið, að sér finn­ist skjóta skökku við að rík­is­stjórnin leggi nú svo mikla áherslu á að byggja upp atvinnu­svæði í og við Kaup­manna­höfn. Þessi sama rík­is­stjórn hafi tekið ákvarð­anir um um flytja þús­undir starfa frá Kaup­manna­höfn, þeir flutn­ingar standi nú yfir og „eins og öllum sé kunn­ugt séu margar stofn­anir rík­is­ins nán­ast óstarf­hæfar vegna þess­ara ákvarð­ana“ sagði borg­ar­stjór­inn. Tók jafn­framt fram að hann hefði ekk­ert á móti Kaup­manna­höfn.

Rasmus Jarlov vinnu­mála­ráð­herra sagði í við­tali að það væri full þörf á að styrkja atvinnu­upp­bygg­ingu í Kaup­manna­höfn og með þess­ari áætlun væri stigið stórt skref í þeim efnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár