Alþingi greiddi tæpar tíu milljónir vegna flugferða þingmanna innanlands í fyrra

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, er sá þing­maður sem kost­aði Alþingi mest vegna ferða­kostn­aðar inn­an­lands í fyrra. Skammt á hæla hennar kom Ásmundur Frið­riks­son.

Njáll Trausti Friðbertsson og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmenn Norðausturkjördæmis, fljúga einna mest allra þingmanna innanlands á kostnað Alþingis.
Njáll Trausti Frið­berts­son og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­menn Norð­aust­ur­kjör­dæmis, fljúga einna mest allra þing­manna inn­an­lands á kostnað Alþingis. Mynd: Facebook-síða Sjálfstæðisflokksin í Fjallabyggð

Þeir þing­menn sem búa ann­ars staðar en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eiga rétt á því að kostn­aður þeirra við ferðir milli heim­ilis og starfs­stöðva í Reykja­vík sé end­ur­greiddur. Þær ferðir geta verið farnar með bílum eða flugi. Kjarninn greindi frá því í gær að kostnað vegna end­ur­greidds akst­urs­kostn­aðar þing­manna, sem nær meðal ann­ars yfir ferðir milli heim­ilis og starfs­stöðva, hefði verið 25,7 millj­ónir króna í fyrra og að hann hefði auk­ist um tæp ell­efu pró­sent milli ára.

Sam­an­lagður kostn­aður Alþingis vegna flug­ferða þing­manna inn­an­lands, sem að uppi­stöðu er vegna ferða­laga lands­byggð­ar­þing­manna til þing­starfa frá þeim stað þar sem þeir halda aðal­heim­ili, var 9,8 millj­ónir króna á árinu 2021.

Þetta er hægt að lesa út úr tölum um kostn­að­ar­greiðslur til þing­manna á árinu 2021 sem birtar voru á vef Alþingis í lok síð­ustu viku.

Mestur kostnaður vegna flugferða Njáls Trausta

Sá þing­maður sem fékk hæstar kostn­að­ar­greiðslur vegna flugs á síð­asta ári var Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Alls fékk hann greiðslur upp á 1.443 þús­und krónur vegna flug­ferða inn­an­lands á árinu 2021.

[adspot]Skammt á hæla hans kom Líneik Anna Sæv­ars­dóttir úr Fram­sókn­ar­flokki, sem er þing­maður sama kjör­dæmis, með 1.418 þús­und krónur. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, fékk 1.276 þús­und krónur í greiðslur vegna flug­ferða og Anna Kolbrún Árna­dóttir, nú fyrr­ver­andi þing­maður Mið­flokks, fékk 1.108 þús­und krónur. Þær sátu sömu­leiðis á þingi fyrir Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Sömu sögu er að segja um næsta mann á list­anum, Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, sem fékk 1.010 þús­und krónur greiddar, og Fram­sókn­ar­mann­inn Þórarinn Inga Pét­urs­son sem fékk 942 þús­und krónur.

Sá kostn­aður sem Alþingi greiddi vegna flug­ferða inn­an­lands var að uppi­stöðu vegna þess­ara sex þing­manna sama kjör­dæmis, en þeir fengu rúm­lega 73 pró­sent heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem greidd var út vegna þessa á árinu 2021.

Ferðalög Bjarkeyjar dýrust

Þegar flug­ferðir eru lagðar saman við kostnað vegna akst­urs kemur í ljós að Bjarkey trónir á toppnum yfir þá þing­menn sem kosta Alþingi mest í inn­lendan ferða­kostnað. Alls er sam­an­lagður ferða­kostn­aður hennar inn­an­lands rétt undir þremur millj­ónum króna.

[links]Rétt á eftir henni kemur Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, með kostnað upp á 2,7 millj­ónir króna. Sá munur er á að Ásmundur keyrir nær allar sínar ferðir.

Líneik Anna er í þriðja sæti á list­anum með 2,5 millj­ónir króna í inn­lendan ferða­kostnað sem Alþingi greiðir og Njáll Trausti (um 2,3 millj­ónir króna) er svo fjórði og síð­asti þing­mað­ur­inn sem náði kostn­aði sem var yfir tvær millj­ónir króna.

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, er svo í fimmta sæti yfir þá þing­menn sem kost­uðu mestu til vegna ferða­laga inn­an­lands með tæp­lega 1,9 millj­ónir króna. Allur sá kostn­aður er hins vegar vegna akst­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár