Stóri lottó - ekki - vinningurinn

Hvað gerir sá sem telur sig hafa hlotið stóran vinn­ing í lottó, en getur ekki sýnt mið­ann? Jú, hann berst fyrir að sanna mál sitt. Það er einmitt það sem danskur maður hefur gert, en hann taldi sig fá ,,þann stóra“ fyrir 16 árum.

Á jóla­dag árið 2001 skrapp Johannes Nielsen, búsettur í Sædding hverf­inu við Esbjerg, út til að kaupa rúnn­stykki handa fjöl­skyld­unni. Johannes fór á bens­ín­stöð­ina á Sædding Ringvej, vissi að þar væri opið og nýbökuð rúnn­stykki. Hann borg­aði með reiðufé, fékk 40 krónur til baka og ákvað að kaupa lottómiða, sem kost­aði einmitt 40 krónur. Lottómið­anum stakk hann í jakka­vas­ann og fór svo heim með rúnn­stykkin.

Viku síðar var dregið í lottó­inu. Hæsti vinn­ing­ur­inn hljóð­aði upp á 9,3 millj­ónir danskra króna (175 millj­ónir íslenskar). Um það bil 800 þús­und lottómiðar höfðu selst þessa viku en eig­andi mið­ans með stóra vinn­ingnum gaf sig ekki fram.

Í mars 2002 mundi Johannes Nielsen allt í einu eftir mið­anum í jakka­vas­anum. Hann fór þá með mið­ann í hverf­is­versl­un­ina Søstjernen. Þegar röðin kom að honum afhenti hann fyrst þrjá miða, sem hann hafði keypt nokkrum dögum fyrr. Enginn vinn­ingur þar en svo lagði hann gamla mið­ann, þann frá jóla­deg­inum, á borðið. Það tók dálitla stund að renna þeim miða gegnum vél­ina en í milli­tíð­inni heyrði Johannes barna­barnið, sem beið í bílnum, kalla. Hann hljóp þess vegna út til að róa barnið, hann var þá ekki búinn að fá mið­ann til baka. And­ar­taki síðar kemur maður hlaup­andi út úr búð­inni og kallar til Johann­esar að það sé svo­kall­aður joker vinn­ingur á mið­ann. Johannes segir að það geti ekki verið, hann sé með sinn miða í vas­anum, sett­ist svo inn í bíl­inn og ók heim. Hinn mað­ur­inn fór aftur inn í búð­ina.

Margir töldu sig eiga miðann

Nokkrum dögum síðar ( í mars 2002) síðar greindu danskir fjöl­miðlar frá því að stór vinn­ingur væri ósóttur. Fram kom að mið­inn með ósótta vinn­ingnum væri í Strand­vej­ens Kiosk en ekki í versl­un­inni Søstjernen þar sem hann hafði, að sögn Johannes Nielsen, verið skil­inn eftir. Þegar Johannes Nielsen sá þessa frétt í blaði var hann strax sann­færður um að þarna væri verið að tala um mið­ann sinn þótt hann geti ekki útskýrt hvers vegna mið­inn hefði endað í Sölu­turn­inum á Strand­vejen. Johannes sneri sér til lög­regl­unnar og til­kynnti að hann ætti þennan miða, sem fjöl­miðl­arnir hefðu sagt frá. Hjá lög­regl­unni fékk hann að vita að hann væri ekki sá fyrsti sem lýsti sig eig­anda mið­ans og næstu daga á eftir hringdu mörg hund­ruð manns til lög­regl­unnar og Danske Spil (lottó­fyr­ir­tækið) og allir höfðu sömu sögu að segja, töldu sig hinn rétta eig­anda. Höfðu allir gleymt mið­anum á búð­ar­borð­inu. Ergilegt.

Kom ekki á óvart

Í við­tali hjá danska útvarp­inu, DR, í apríl 2002, sagði Johannes Nielsen að svörin hjá lög­regl­unni og Dansk Spil hefðu ekki komið sér­lega á óvart. Hann ætl­aði hins­vegar ekki að gef­ast upp, væri búinn að ráða lög­fræð­ing til að vinna með sér. Sá hætti að vinna fyrir Johannes eftir tvö ár, taldi málið von­laust. Lög­fræð­ingur sem Johannes réð þá til starfa hætti fljót­lega af sömu ástæðu en þriðji lög­fræð­ing­ur­inn veitti athygli dálitlu sem farið hafði fram­hjá hinum tveim og Johannes Nielsen. Nefni­lega því að þegar fjöl­miðlar greindu frá ósótta lottó­vinn­ingnum var þess getið að á vinn­ings­mið­anum væri auð­kenni sem aðeins eig­and­inn myndi þekkja. ,,Þegar þetta kom í ljós var ég alveg viss“ sagði Johannes Nielsen, ,, ég hef nefni­lega alltaf merkt mína lottómiða með upp­hafs­stöfum mínum, þá er ég alltaf viss um að fá sama seð­il­inn til baka þegar búið er að kanna hann og athuga hvort á honum leyn­ist vinn­ingur.“ En þetta dugði ekki. Eft­ir­lits­nefnd sem fylgist með starf­semi happ­drætta og spila­kassa taldi sýn­is­horn rit­handar Johann­esar, sem hann hafði sent, ekki nægi­lega sönnun þess að hann ætti vinn­ings­mið­ann. Johannes hefur ekki fengið að sjá merk­ing­una á vinn­ings­mið­anum, af skilj­an­legum ástæðum.

Tapaði í Bæjarrétti og Landsrétti, vill málið fyrir Hæstarétt

Johannes Nielsen undi ekki úrskurði eft­ir­lits­nefnd­ar­innar og kærði til Bæj­ar­réttar. Nið­ur­staða rétt­ar­ins var sú að eft­ir­lits­nefnd­inni bæri ekki að gera merk­ingu, eða auð­kenni, vinn­ings­mið­ans opin­bera. Dóm­kvaddur sér­fræð­ingur sagði að á mið­anum væri ekki auð­kenni sem benti til að hann til­heyrði Johannes Nielsen. Í Vestri - Lands­rétti var nið­ur­staðan sú sama. En Johannes Nielsen gefst ekki upp, hann vill fá að fara með málið fyrir Hæsta­rétt Dan­merkur.

Enn fleiri telja sig eiga miðann

Í fyrra­haust, eftir að Johannes Nielsen til­kynnti að hann vildi skjóta máli sínu til Hæsta­réttar sendi Dansk Spil frá sér til­kynn­ingu þess efnis að þrátt fyrir að frestur til að sækja vinn­inga væri löngu lið­inn myndi ,,stóri lottó­vinn­ing­ur­inn“ verða greiddur út, ef eig­and­inn fynd­ist. Það var eins og við mann­inn mælt, tugir fólks hringdu. Að sögn starfs­manns Dansk Spil voru sög­urnar margar hverjar skemmti­legar þar sem hug­mynda­flug­inu voru fá tak­mörk sett. En hins­vegar fjarri öllu sanni.

Af hverju trúir enginn Johannes Nielsen?

Kannski von að spurt sé. En fyrir því eru einkum tvær ástæður. Í fyrsta lagi stemmir ekki dag­setn­ingin þegar mið­anum var skilað við dag­setn­ing­una sem Johannes Nielsen til­greindi. Og í öðru lagi var komið með mið­ann, þar sem vinn­ing­ur­inn kom í ljós, í Strand­vej­ens Kiosk, en ekki í versl­un­ina Søstjernen eins og Johannes Nielsen hélt fram. Fjar­lægðin milli þess­ara tveggja staða er um það bil tveir kíló­metrar. Þetta mis­ræmi getur Johannes Nielsen ekki útskýrt en telur hugs­an­legt að mað­ur­inn sem kom hlaup­andi með mið­ann út úr Søstjernen hafi fyrst stungið mið­anum í vas­ann en síðar skilað honum í Strand­vej­ens Kiosk. ,,Aðal­at­riðið er“ segir Johannes Nielsen ,, að vinn­ings­mið­inn er merktur mér, hvernig á þessu rugli með Søstjernen og Strand­vej­ens Kiosk stendur er auka­at­riði.“ Hvorki hefur tek­ist að hafa uppi á mann­inum sem kom hlaup­andi út og kall­aði ( að sögn Johannes) að á mið­anum væri vinn­ingur, né vitnum að þessu atviki.

Ætlar ekki að gefast upp

Johannes Nielsen, sem er 82 ára, ætlar ekki að leggja árar í bát. Hann vill fá málið fyrir Hæsta­rétt og við­ur­kennir að þetta sé orðin þrá­hyggja. Hann hefur þegar eytt 300 þús­undum krónum (5.7 millj­ónum íslenskum) í þetta mál, það er fyrst og fremst lög­fræði­kostn­aður. Hvort málið endar fyrir Hæsta­rétti liggur ekki fyrir. Johannes Nielsen segir að fjöl­skyldan sé dauð­leið á þessu máli og láti gott heita. Johannes er ekki á sömu skoðun og ætlar ekki að gef­ast upp. ,,Ekki að ræða það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár