Þorgerður Katrín: Forseti sjálfur farinn að veikja þingið

Formaður Við­reisnar gagn­rýnir Stein­grím J. Sig­fús­son, for­seta Alþingis, fyrir að slíta þing­fundi fyr­ir­vara­laust í morgun.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, telur að með því að slíta þing­fundi fyr­ir­vara­laust – eins og þing­for­seti gerði í morgun – sé hann sjálfur far­inn að veikja þingið. Frá þessu greinir hún á Facebook í dag.

[links]Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, sleit fundi í morgun eftir að Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pírata, gagn­rýndi hann fyrir að setja umdeild mál á dag­skrá þings­ins þegar sam­komu­bann væri við lýði.

„Við sem þjóð stöndum öll frammi fyrir alvar­legum vanda. Við í Viðreisn styðjum stjórn­ina til allra góðra verka, höfum gert það og munum gera það áfram. Nú þarf að standa saman. En með því að slíta þing­fundi fyr­ir­vara­laust eins og for­seti gerði rétt í þessu er for­seti sjálfur far­inn að veikja þingið. Leyfir því ekki að starfa,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

Hún segir þetta vera alvar­legt og mikið áhyggju­efni. „Lýðræðið er kjarni okkar sam­fé­lags og við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að láta það virka. Ekki síst í aðstæðum sem þessum. Þar skiptir miklu að við sýnum Alþingi, elstu lög­gjaf­ar­sam­komu í heimi, þá virð­ingu að það geti haldið áfram störfum. Innan þeirra marka sem ríkt hefur sam­komu­lag um. Að við þing­menn getum ræktað okkar lýð­ræð­is­lega hlut­verk sem við vorum kosin til að sinna. Stutt góð mál, komið með úrbætur og spurt mik­il­vægra spurn­inga. Við það á eng­inn að vera hræddur.“

„Forseti slekkur á þinginu“

Halldóra Mogensen, þing­flokks­for­maður Pírata, gagn­rýndi Stein­grím harð­lega í stöðu­upp­færslu á Facebook í morgun en hún sagði að for­seti hefði slökkt á þing­inu.

„Und­an­farnar vikur hafa þing­menn verið hvattir til þess að vera sem minnst á þingi og í þing­sal. Ein­hverjir þing­menn eru í sótt­kví og geta því ekki komið í þing­húsið. Staðan hefur óneit­an­lega áhrif á getu okkar til að taka þátt í lýð­ræð­is­legum umræðum. Hingað til hefur þetta sloppið því það hefur verið sam­eig­in­legur skiln­ingur þing­manna stjórn­ar­and­stöð­unnar að fyrir utan fasta liði eins og óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir og störf þings­ins verða ein­ungis til umræðu og afgreiðslu brýn mál sem tengj­ast kóvid,“ skrif­aði hún.

Hún sagði að nú horfðu þing­menn fram á það að þrátt fyrir að aðstæður hefðu ekki breyst varð­andi getu þing­manna til að taka þátt í umræðum og þrátt fyrir mót­mæli meiri­hluta stjórn­ar­and­stöð­unnar hefði for­seti sett á dag­skrá hrúgu af rík­is­stjórn­ar­málum sem ekki væru brýn kóvid mál og eitt­hvað af þeim væru umdeild mál.

„Staðan er grafal­var­leg þegar for­seti mis­notar aðstæður til að koma málum rík­is­stjórn­ar­innar í gegn. Málum sem eru umdeild og þarfn­ast aug­ljós­lega umræðu. Þetta gerir hann með þöglu sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar og þegar við tölum um það í fund­ar­stjórn for­seta þá slekkur for­seti á þing­inu,“ skrif­aði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár