Miklu minni þörf fyrir frestun á greiðslu opinberra gjalda en áætlað var

Íslensk fyr­ir­tæki hafa frestað 15,7 millj­arða greiðslum á trygg­ing­ar­gjaldi, tekju­skatti og útsvari frá því að heims­far­ald­ur­inn skall á. Stjórn­völd áætl­uðu að sú tala yrði nálægt 100 millj­örðum króna.

Formenn stjórnarflokkanna kynntu fyrstu efnahagsaðgerðir sínar vegna kórónuveirufaraldursins 21. mars. Umfang aðgerðanna var metið 230 milljarðar króna. Þar af átti frestun á greiðslu opinberra gjalda að bæta lausafjárstöðu fyrirtækja um 75 milljarða.
Formenn stjórn­ar­flokk­anna kynntu fyrstu efna­hags­að­gerðir sínar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins 21. mars. Umfang aðgerð­anna var metið 230 millj­arðar króna. Þar af átti frestun á greiðslu opin­berra gjalda að bæta lausa­fjár­stöðu fyr­ir­tækja um 75 millj­arða. Mynd: Bára Huld Beck

Ein af fyrstu aðgerð­unum sem íslensk stjórn­völd gripu til vegna efna­hags­legra afleið­inga af kór­ónu­veiru­far­ald­inum var að veita fyr­ir­tækjum í land­inu frest á greiðslu á helm­ingi trygg­ing­ar­gjalds og stað­greiðslu opin­berra gjalda sem voru á gjald­daga í mars. Þetta var ákveðið 12. mars, fjórum dögum áður en að eindagi þeirra gjalda átti að vera. Þeim eindaga var frestað um mánuð upp­haf­lega, og síðar þangað til í jan­úar á næsta ári. Gert var ráð fyrir að þetta myndi seinka tekjum til rík­is­sjóðs upp á 22 millj­arða króna.

Þegar rík­is­stjórnin kynnti svo fyrsta efna­hag­s­pakka sinn 21. mars var ein þeirra aðgerða sem þar var kynnt til leiks sú að fresta mætti þremur gjald­dögum stað­greiðslu og trygg­ing­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber til við­bótar ef fyr­ir­tæki gæti mætt ákveðnum skil­yrðum. Þau voru að um minnsta kosti þriðj­ungs sam­drátt væri að ræða í rekstr­ar­tekjum fyr­ir­tækis yfir heilan mánuð sam­an­borið við sama mánuð árið 2019, að tekju­fallið hefði leitt af sér rekstr­ar­örð­ug­leika (einkum horft til stöðu eigin fjár og lausa­fjár­stöðu) og að rekstr­ar­örð­ug­leik­arnir væru tíma­bundnir og því hefði ekki verið til staðar var­an­legur fjár­hags­vandi áður en til tekju­falls­ins kom.

[adspot]Hægt er að kalla umræddar frest­anir vaxta­laus lán frá rík­is­sjóði, enda báru frest­an­irnar enga vexti og eru til end­ur­greiðslu í byrjun næsta árs, nánar til­tekið 15. jan­úar 2021. Þangað til eru fjár­munir sem rík­is­sjóður í raun á frjálsir til ráð­stöf­unar fyrir þau fyr­ir­tæki sem nýttu sér úrræðið, án nokk­urs kostn­aðar.

Stór hluti af áætluðum heildaráhrifum efnahagspakka eitt

Miðað við ákveðnar for­sendur um nýt­ingu var áætlað að þessi aðgerð gæti frestað greiðslu á tekjum rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga um 33 til 100 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Hlut­föllin voru reiknuð þannig að 57 pró­sent höggs­ins gæti lent á rík­is­sjóði en 43 pró­sent á sveit­ar­stjórnum.

Frekari grein­ingar stjórn­valda mátu að heim­ild til að fresta helm­ingi stað­greiðslu tekju­skatts, útsvars og trygg­ing­ar­gjalds leiddi í ljós þá áætlun að allt að 22 millj­arðar króna myndu verða frestað í mars einum saman og áhrif af frestun á þremur gjald­dögum til við­bótar voru áætluð allt að tæpum 70 millj­örðum króna.

Í glæru­kynn­ingu ráða­manna, þegar þeir kynntu fyrsta efna­hag­s­pakka sinn, var sett fram að þessi aðgerð myndi styrkja lausa­fjár­stöðu fyr­ir­tækja um 75 millj­arða króna.

Þetta var því stór hluti þeirra 230 millj­arða króna sem heild­ar­á­hrif aðgerð­ar­pakk­ans voru sögð vera.

Um 17 prósent af því sem reiknað var með

Þessar for­sendur gengu ekki eftir. Umfang frestaðra greiðslna hefur þvert á móti verið 15,7 millj­arðar króna frá mars­mán­uði og út júlí, eða um 17 pró­sent af því sem frek­ari grein­ing stjórn­valda reikn­aði með.

[links]Mest var um frest­anir í mars­mán­uði þegar um fjórð­ungi allra greiðslna á opin­berum gjöldum var frestað, alls 11,3 millj­arðar króna. Hluti launa­greið­enda sem nýttu sér þá frestun hafa hins vegar síðan greitt upp skuld­ina vegna mars­mán­aðar þrátt fyrir að hún væri ekki á gjald­daga fyrr en í upp­hafi næsta árs. Umfang þeirrar upp­hæðar sem var frestað í mars hefur vegna þessa lækkað í 9,4 millj­arða króna.

Í apríl frest­uðu fyr­ir­tækin í land­inu 3,8 millj­örðum króna af greiðslum og í maí var upp­hæðin 2,1 millj­arður króna. Hún reis á ný í júní og var þá rúm­lega þrír millj­arðar króna en dróst veru­lega saman í síð­asta mán­uði þegar greiðslum upp á ein­ungis 708 millj­ónum króna var frestað.

Í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í dag, sem sýndi tölur yfir stöðu efna­hags­að­gerðar vegna COVID-19, segir að hið lága hlut­fall frest­ana í júlí bendi til þess að launa­greið­endur sem kusu að nýta heim­ild­ina hefðu að miklu leyti gert það fyrstu þrjá mán­uð­ina sem hún var í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár