Súkkulaði, klósettpappír, kjúklingur og beikon

Hvað á til bragðs að taka ef ekki er vinnu­friður fyrir lög­reglu og dóm­stólum í Danmörku? Svarið vafð­ist ekki fyrir körlunum í Levakovic fjöl­skyld­unni, þeir fluttu sig yfir sundið, til Sví­þjóðar.

Gimi Levakovic og fjölskylda hans hafa ítrekað verið til umfjöllunar í dönskum fjölmiðlum.
Gimi Levakovic og fjöl­skylda hans hafa ítrekað verið til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum. Mynd: Skjáskot: TV2

Levakovic fjöl­skyldan er án efa ein þekktasta fjöl­skylda á sínu sér­sviði í Danmörku. Sér­sviðin eru reyndar fleiri en eitt: rán, inn­brot, ofbeldi og sér­stök færni í að lifa á dönsku bóta- og fram­færslu­kerfi.

Í dönskum fjöl­miðlum hefur á und­an­förnum árum margoft verið fjallað um þessa fjöl­skyldu, sem seg­ist vera sígaunar og fussar og sveiar ef ein­hver segir þau róma­fólk.

[adspot]

Hér í Kjarn­anum hafa birst all­nokkrir pistlar um þessa fjöl­skyldu sem fyrst kom til Dan­merkur í byrjun átt­unda ára­tugar síð­ustu aldar. Frá Króatíu, sem þá var hluti Júgóslavíu og var með júgóslav­nesk vega­bréf. Fjöl­skyldan, hjón með sex börn, kom til Dan­merkur á gömlum Opel bíl, með hrör­legt hjól­hýsi. Síðar bætt­ust við fjögur börn.

Vel tekið

Fjöl­skyld­unni var vel tekið í Kaup­manna­höfn og henni kynnt allt sem til­heyrði flutn­ingi til lands­ins. Þótt þau Levakovic, sem sett­ust að á Amager, hafi tekið vel eftir upp­lýs­ingum varð­andi nýju búset­una var það, í ljósi sög­unnar, einkum það sem laut að reglum varð­andi fram­færslu­líf­eyri og opin­bera aðstoð sem fjöl­skyldan kynnti sér í þaula.

[links]Minni áherslu kannski á ráð varð­andi atvinnu­leit, en til þess að gera langa sögu stutta hefur eng­inn úr fjöl­skyld­unni, sem nú telur vel á fimmta tug, fundið vinnu við hæfi heldur lifað á opin­berum fram­færslu­líf­eyri. Sam­an­lagt nemur sú upp­hæð frá upp­hafi jafn­gildi um tveggja millj­arða íslenskra króna. En sökum þess að fjöl­skyldan hefur tamið sér lífs­stíl sem útheimtir meira fé en dönsk stjórn­völd telja að dugi til fram­færslu hafa þau Levakovic árum saman stundað óhefð­bundna tekju­öflun, rán og grip­deildir.

Kölluð illræmdasta fjölskylda Danmerkur

Þau Levakovic hafa í dönskum fjöl­miðlum iðu­lega verið kölluð ill­ræmdasta fjöl­skylda Dan­merkur. Afskipti lög­regl­unnar af sjálfs­bjarg­ar­við­leitni fjöl­skyld­unnar hafa iðu­lega leitt til þess að ein­stakir fjöl­skyldu­með­limir hafa orðið að dvelja að heiman um lengri eða skemmri tíma. Ætt­ar­höf­uðið, Gimi Levokovic, sem flutti barn­ungur með for­eldrum sínum til Dan­merkur, hefur sam­tals mátt dúsa í grjót­inu í 6 ár og bræður hans, og bræðra­synir hafa margoft setið inni, um lengri eða skemmri tíma.

Allir karl­menn í fjöl­skyld­unni 18 ára og eldri, og að minnsta kosti tvær konur, hafa kom­ist í kast við lögin. Í tveimur sjón­varps­þáttum sem danska sjón­varps­stöðin TV2 gerði um Levakovic fjöl­skyld­una lagði Gimi mikla áherslu á gildi fjöl­skyld­unnar og sam­stöðu hennar. „Sígaunar eru frið­samir,“ sagði hann en lét hjá líða að nefna að hann barði fyrr­ver­andi konu sína til óbóta og keyrði síðar, eftir að þau skildu, á hana og stórslas­aði.

Eitt mál ættarhöfðingjans fyrir Hæstarétt

Und­ir­réttur í Danmörku (lægsta dóm­stig af þremur) hefur margoft úrskurðað að ein­stak­lingum úr fjöl­skyld­unni skuli vísað úr landi. Lands­réttur hefur í lang­flestum til­vikum snúið þeim dómum við. Mál ætt­ar­höfð­ingj­ans Gimi fór fyrir Hæsta­rétt árið 2016. Þá hafði Lands­réttur snúið við dómi Und­ir­réttar sem hafði úrskurðað að Gimi skyldi vísað úr landi. Hæsti­réttur stað­festi dóm und­ir­réttar og ætt­ar­höfð­ing­inn fékk áfram að vera í Danmörku.

[adspot]

Danskur laga­pró­fessor sagði í blaða­við­tali að Hæsti­réttur hefði ber­sýni­lega valið að fylgja stefnu sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn í Strass­borg hefði markað og nefndi sér­stak­lega að Gimi ætti ung börn og þótt hann væri ekki danskur rík­is­borg­ari (er með króat­ískt rík­is­fang) hafi hann nær alla ævi búið í Danmörku. Margir danskir stjórn­mála­menn lýstu undrun sinni og kröfð­ust þess að danska þingið, Fol­ket­inget, setti lög um túlkun Mann­rétt­inda­sátt­mál­ans, aðrir töldu Hæsta­rétt túlka lag­ara­mmann alltof veikt, brott­vísun rúm­að­ist innan hans. Þess má geta að ætt­ar­höfð­ing­inn Gimi hefur sam­tals 27 sinnum hlotið dóm fyrir ýmis konar afbrot.

Sex úr fjölskyldunni hefur nú verið vísað úr landi

Ekki hafa allir úr Levakovic fjöl­skyld­unni verið jafn heppnir og ætt­ar­höfð­ing­inn Gimi. Nú hefur sam­tals 6 úr fjöl­skyld­unni verið vísað úr landi. Fyrir hálfum mán­uði fengu fjórir úr fjöl­skyld­unni þunga dóma og tveir þeirra jafn­framt brott­vísun úr landi að afplánun lok­inni. Þeir mega ekki koma til Dan­merkur í 9 ár. Tveimur úr fjöl­skyld­unni hafði þegar verið vísað úr landi, til Króatíu.

Skiptu Króatíu út fyrir Svíþjóð

Fyrir nokkrum dögum greindi danska dag­blaðið B.T. frá því að 4 úr Levakovic fjöl­skyld­unni hefðu ekki farið langt þótt danskir dóm­stólar hefðu vísað þeim úr landi, til Króatíu, þar sem þeir hafa rík­is­fang. Þeir hefðu ein­fald­lega flutt sig yfir Eyr­ar­sundið til Sví­þjóðar. Nánar til­tekið Skánar. Og þar hefðu þeir tekið upp fyrri iðju en ekki sloppið við arm lag­anna.

B.T. hafði fengið aðgang að rétt­ar­gögnum þar sem fram kemur að fjór­menn­ing­arnir hefðu allir hlotið dóma fyrir ýmis konar afbrot. Í smá­bænum Bil­les­holm, skammt fyrir austan Hels­ingja­borg höfðu tveir úr Levakovic fjöl­skyld­unni stolið 350 súkkulað­i­plötum (Marabou) og 16 rúllum af sal­ern­is­pappír úr verslun í bænum.

Á eft­ir­lits­mynda­vél í versl­un­ini sást hvar annar þjóf­anna hélt starfs­manni uppi á snakki meðan hinn fór út með inn­kaupa­körf­una. Í smá­bænum Bjuv, skammt frá Bil­les­holm stálu þeir kjúklingum, skinku og beikoni. Góssið seldu þeir á spott­prís á svarta mark­aðnum. Á eft­ir­lits­mynda­vélum sást enn­fremur þar sem þeir óku burt frá versl­un­unum en þeir eru báðir án öku­rétt­inda.

B.T. komst einnig að því að Jura Levakovic hlaut í fyrra mun þyngri dóm í Bæj­ar­rétti í Malmö, fyrir hót­anir, þjófn­aði og svindl. Jura er sagður sá for­hert­asti í fjöl­skyld­unni. Í sjón­varps­þátt­unum sem TV2 í Danmörku gerði um fjöl­skyld­una fyrir sjö árum sagði hann setn­ingu sem danskir fjöl­miðlar hentu á lofti. „Í öllum fjöl­skyldum er einn svartur sauður en í okkar fjöl­skyldu eru bara svartir sauðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár