Sígaunahöfðingi veldur enn reiði og hneykslan í Danmörku

Sígauna­höfð­ing­inn (neitar að kalla sig Roma) Gimi Levakovic sem frægur er að endemum í Danmörku hefur enn einu sinni kom­ist á for­síður danskra blaða. Margir þing­menn ná ekki upp í nefið á sér eftir að Eystri Lands­réttur sneri við dómi Und­ir­réttar sem hafði vísað Levakovic úr landi.

Flestir Danir kann­ast við Gimi Levakovic og fjöl­skyldu hans. Það kemur ekki til af góðu einu. Levakovic fjöl­skyldan flutti frá Króatíu til Dan­merkur fyrir 43 árum og hefur alla tíð síðan verið á fram­færi danskra skatt­borg­ara og hefur þegið jafn­gildi 1700 millj­óna íslenskra króna sér til fram­færslu. Fjöl­skyldan, sem býr á Amager, hefur stækkað á þessum 43 árum og telur nú fleiri en 40. Enginn úr fjöl­skyld­unni hefur stundað laun­aða vinnu. Fram­færslu­líf­eyrir hins opin­bera hefur þó ekki hrokkið til og fjöl­skyldan, einkum karl­arnir, hafa drýgt tekj­urnar með ránum og grip­deildum. Ætt­ar­höf­uðið Gimi Levakovic hefur í við­tölum sagt að fjöl­skylda sín standi saman í blíðu og stríðu. Afskipti lög­regl­unnar hafa stundum orðið til að trufla heim­il­is­frið­inn. Sjálfur hefur Gimi, sem er 46 ára, setið inni í tæp sjö ár sam­tals og bræður hans og bræðra­synir hafa margoft setið inni, um lengri eða skemmri tíma. Sumum þeirra hefur oftar en einu sinni verið vísað úr landi en þeir hafa jafn­harðan snúið aftur til Dan­merkur og haldið áfram fyrri iðju.

Sjónvarpsþættir vöktu mikla athygli

Þótt margir Danir hafi kann­ast við Levakovic fjöl­skyld­una, og ekki allir að góðu einu, varð fjöl­skyldan lands­þekkt eftir tvo þætti sem sjón­varps­stöðin TV2 sýndi í jan­úar sl. og byggð­ust að miklu leyti á við­tölum við ætt­ar­höf­uðið Gimi. Þætt­irnir vöktu mikla athygli og hneykslan. „Hvernig má það vera að þessi stóra fjöl­skylda geti búið hér ára­tugum saman og aldrei lyft svo mikið sem litla fingri í ærlegri vinnu“ spurðu margir. Aðrir, þar á meðal stjórn­mála­menn, lýstu undrun á því að þrátt fyrir tugi dóma og brott­vísun sumra úr fjöl­skyld­unni úr landi dveld­ist öll fjöl­skyldan hér ár eftir ár.

Tuttugu og sjö dómar

Eins og fram kom fyrr í þessum pistli er Gimi Levakovic kunn­ugur dönskum dóm­sölum. Tuttug­asti og sjö­undi dóm­ur­inn yfir honum féll fyrir nokkru í Bæj­ar­rétt­inum (Hér­aðs­dómi) í Næstved. Þar var hann dæmdur fyrir að hafa haft í hót­unum og verið með byssu í fórum sínum í gleð­skap 1. maí sl. Dómurinn hljóð­aði uppá fimmtán mán­aða fang­elsi og brott­vísun úr landi að lok­inni afplánun og jafn­framt að honum væri óheim­ilt að stíga fæti á danska jörð í tólf ár. Gimi Levakovic áfrýj­aði dóm­inum.


Eystri-Lands­réttur (milli­stig en í Danmörku eru þrjú dóm­stig) snéri brott­vís­un­ar­dómi Bæj­ar­rétt­ar­ins við en þyngdi fang­els­is­dóm­inn um þrjá mán­uði. Auk þriggja dóm­ara við Eystri- Lands­rétt voru þrír með­dóm­arar kall­aðir til. Dómurinn klofn­aði, þrír vildu stað­festa dóm Bæj­ar­réttar en þrír vildu fella niður brott­vís­un­ar­dóm­inn. Þegar atkvæði falla jafnt ráða hags­munir þess sem dæmdur er. Í þessu til­viki réð það úrslitum að Gimi Levakovic á tvö börn sem búa hjá honum og auk þess hefur hann engin tengsl við Króatíu en þangað hefði hann verið sendur hefði komið til brott­vís­unar. Dómurinn var kveð­inn upp í fyrra­dag að við­stöddum fjölda fólks, þar á meðal mörgum frétta­mönnum. Danskir fjöl­miðlar segja að Gimi Levakovic sem venju­lega er kok­hraustur hafi verið mjög stress­aður í dóm­salnum og svit­inn perlað af honum. „Þegar hann heyrði að sér yrði ekki vísað úr landi grét hann eins og smá­barn“ sagði eitt dönsku blað­anna. Sak­sókn­ari sagði strax að dóms­upp­kvaðn­ingu lok­inni að hann myndi freista þess að fá mál­inu skotið til Hæsta­réttar (en slíkt er ekki sjálf­gefið) og von­að­ist til að það tæk­ist.

Ráðherrum og þingmönnum ekki skemmt

Þótt Gimi Levakovic og fjöl­skyldan hafi glaðst yfir nið­ur­stöðu Eystri-Lands­réttar ríkti ekki sama ánægjan hjá dóms­mála­ráð­herr­anum Sören Pind og Inger Stöjberg ráð­herra inn­flytj­enda­mála. Inger Stöjberg sagði að greini­lega væri kom­inn tími til að herða reglur um brott­vísun og þótt hún nefndi engin nöfn fór ekki á milli mála hvað hún átti við. Sören Pind dóms­mála­ráð­herra skrif­aði á Facebook síðu sína að hann myndi biðja Rík­is­lög­mann að sjá til þess að málið færi fyrir Hæsta­rétt, ef slíkt væri mögu­legt. Verjandi Levakovic sagð­ist undr­ast þessi orð dóms­mála­ráð­herr­ans, engu lík­ara væri en hann vildi taka upp stjórn­ar­hætti eins og tíðk­uð­ust í Sov­ét­ríkj­unum og Þýska Alþýðu­lýð­veld­inu. Nokkrir þing­menn hafa lýst mik­illi undrun vegna nið­ur­stöðu Eystri-Lands­réttar.

Vilja hertar reglur strax

Ef Hæsti­réttur ákveður að taka málið til með­ferðar getur liðið upp undir ár áður en dómur verður kveð­inn upp. Þingmenn Jafn­að­ar­manna og Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa lýst sig sam­þykka því að regl­urnar um brott­vísun verði strax teknar til end­ur­skoð­unar. Hvert sem fram­haldið verður má slá því föstu að danska þjóðin fylgist grannt með mál­inu. Einn við­mæl­andi Danska útvarps­ins sagði að meðan Levakovic fjöl­skyldan væri í land­inu myndi ekki skorta umræðu­efni. Miðað við net­síður og „kommenta­kerfi“ er mikið til í því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár