Tveir keppast um oddvitasæti VG í Kraganum

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son hefur til­kynnt að hann stefni á odd­vita­sætið í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Nú þegar hefur Ólafur Þór Gunn­ars­son til­kynnt að hann vilji fyrsta sætið.

Guðmundur Ingi var kjörinn varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs árið 2019.
Guð­mundur Ingi var kjör­inn vara­for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs árið 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs og umhverf­is­ráð­herra, ætlar að sækj­ast eftir fyrsta sæti á lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Guð­mundur hefur gegnt ráð­herra­emb­ætti utan þings síðan árið 2017. Árið 2019 var hann kjör­inn vara­for­maður VG.

Það stefnir því allt í odd­vitaslag í kjör­dæm­inu því nú þegar hefur Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður flokks­ins, til­kynnt að hann sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í kjör­dæm­inu í kom­andi kosn­ingum. Ólafur var annar á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum, þá var odd­viti Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir sem nú hefur skipt um flokk. Ólafur starf­aði áður sem öldr­un­ar­læknir og sat í bæj­ar­stjórn Kópa­vogs frá 2006-2017.

Guð­mundur er stofn­fé­lagi í VG og hefur því verið í hreyf­ing­unni frá 1999. Í til­kynn­ingu frá honum seg­ist hann hafa fylgt VG að málum frá upp­hafi, „ekki síst vegna áherslu á umhverfis- og nátt­úru­vernd, mann­rétt­indi og rétt­lát­ara sam­fé­lag.“ Þá séu stór verk­efni fram undan í íslensku sam­fé­lagi sem hann langar að taka þátt í á vett­vangi stjórn­mál­anna, þar á meðal atvinnu­leysi sem vinna þarf bug á og upp­bygg­ing í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Hann segir lofts­lags­vána vera stóru áskorun okkar tíma og að sem ráð­herra hafi hann lagt áherslu á að koma lofts­lags­málum aftur á kortið.

Í til­kynn­ing­unni seg­ist Guð­mundur vilja sjá Ísland þró­ast sem rétt­lát­ara sam­féag þar sem efna­meira fólk leggur meira til sam­fé­lags­ins. „Við þurfum að byggja á þeim skrefum sem stigin hafa verið á þessu kjör­tíma­bili, eins og með þrepa­skiptu skatt­kerfi, leng­ingu fæð­ing­ar­or­lofs og nýjum úrræðum í hús­næð­is­málum. Jafn­réttis- og mann­rétt­inda­mál eru mér einnig að sjálf­sögðu ofar­lega í huga, ekki síst kven­frelsi og rétt­indi hinsegin fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár