Stefnir í oddvitaslag hjá Vinstri grænum í Kraganum

Ólafur Þór Gunn­ars­son vill fyrsta sætið á lista Vinstri grænna í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Vara­for­maður flokks­ins er tal­inn ætla sér það sæti.

Ólafur Þór Gunnarsson.
Ólafur Þór Gunn­ars­son. Mynd: Bára Huld Beck

Ólafur Þór Gunn­ars­son, þing­maður Vinstri grænna, hefur til­kynnt að hann sæk­ist eftir því að leiða lista flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Hann starf­aði áður sem öldr­un­ar­læknir og sat í bæj­ar­stjórn Kópavogs frá 2006-2017.

Ólafur Þór var í öðru sæti á lista flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum þegar Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir leiddi Vinstri græn í Kraganum. Hún studdi hins vegar ekki myndun núver­andi rík­is­stjórnar og sagði sig úr flokknum í fyrra. Skömmu síðar gekk hún til liðs við Sam­fylk­ing­una og verður í fram­boði fyrir hana í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum, sem fram fara í sept­em­ber.

Fastlega er búist við því að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverf­is­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, muni einnig sækj­ast eftir því að leiða í Kraganum, en hann er ekki kjör­inn þing­maður eins og stendur. Nokkuð ljóst þykir að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra muni áfram vera í fyrsta sæti á listum Vinstri grænna í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og lík­legt að Guð­mundur Ingi muni því ekki sækj­ast eftir sæti þar.

Það stefnir því í odd­vitaslag í Kraganum hjá Vinstri grænum.

[adspot]Í til­kynn­ingu frá Ólafi Þór segir að hann hafi á þingi beitt sér sér­stak­lega fyrir mál­efnum eldra fólks og vel­ferð­ar­málum almennt. „Ég hef lagt fram fjölda þing­mála í þá veru, m.a. um rétt­indi eldra fólks, þjón­ustu við aldr­aða og stöðu þeirra í sam­fé­lag­inu. Þá hef ég einnig lagt mikla áherslu á heil­brigð­is­mál, upp­bygg­ingu öfl­ugs opin­bers heil­brigð­is­kerfis og efl­ingu heilsu­gæsl­unnar. Ég hef víð­tæka reynslu af heil­brigðis og vel­ferð­ar­málum, eftir að hafa starfað á þeim vett­vangi í um 30 ár. Þá hef ég einnig starfað sem bæj­ar­full­trúi í stóru sveit­ar­fé­lagi og hef því skiln­ing á þörfum sveit­ar­fé­lag­anna og íbúa þeirra, og mik­il­vægi góðrar þjón­ustu við íbúa. Umhverf­is­mál og hvernig þau snerta þétt­býlið sér­stak­lega hafa einnig verið mér hug­leikin, t.a.m. loft­gæði í þétt­býli, Borg­ar­lína, umferð­ar­mál og skipu­lags­mál í þétt­býli yfir­leitt.“

Verk­efnin séu víða við frek­ari upp­bygg­ingu vel­ferð­ar­sam­fé­lags­ins. „Við þurfum að ljúka bygg­ingu Land­spít­al­ans, halda áfram að efla heilsu­gæsl­una og byggja upp öldr­un­ar­þjón­ustu í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lögin. Það er nauð­syn­legt að stíga djörf skref í umhverf­is­málum og nátt­úru­vernd. Lofts­lags­mál eru mál sem varða okkur öll og fram­tíð barn­anna okkar og kom­andi kyn­slóða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár