Húsbóndinn í Kreml

Er Vladimir Pútín með öllum mjalla eða er hann orð­inn snar­rugl­aður? Þetta er spurn­ingin sem heim­ur­inn spyr sig þessa dag­ana. Enginn veit svarið. Ýmsir sem til hans þekkja segja hann ekki sama mann og fyrir örfáum árum.

Myndir sem und­an­farið hafa birst af Pútín for­seta Rúss­lands hafa vakið mikla athygli. Fyrsta myndin af þessu tagi, sem sást í fjöl­miðlum, var af fundi hans með Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta við tæp­lega sex metra langt spor­öskju­lagað borð. Opinber skýr­ing Rússa á þessu var að vel þyrfti að gæta að öryggi Pútíns, sem þar að auki væri illa við hring­laga borð. Frakk­lands­for­seti hafði neitað að taka covid próf hjá rúss­neskum læknum við kom­una til Moskvu, kærði sig ekki um að lífs­sýni úr honum kæm­ist í eigu Rússa, sögðu frétta­menn.

Önnur mynd sem mikla athygli hefur vakið sýnir Pútín á fundi með sínum æðstu emb­ætt­is­mönnum síð­ast­lið­inn mánu­dag. Þar situr for­set­inn við end­ann á borði, sem blaða­menn hafa reiknað út að sé að minnsta kosti 15 metra langt. Sitt hvoru megin við hinn end­ann sitja sex eða sjö menn, nán­ustu sam­starfs­menn for­set­ans. Frétta­maður BBC sagði mynd­ina ekki ein­ungis sýna mann sem ótt­ist kór­óna veiruna, hún sýni fyrst og fremst mann sem sé einn og ein­angr­aður. Vegna veirunnar hafi Pútín ein­angr­ast enn meira en áður, hann dvelj­ist lengstum á setri sínu fyrir utan Moskvu. Þar hittir hann fáa og þeir sem hann á annað borð ræðir við eru ein­göngu „já menn“ sem segja for­set­anum ein­ungis það sem hann vill heyra, en ekki raunsanna mynd af því hvernig ver­öldin er skrúfuð saman, eins og frétta­maður BBC komst að orði.

Æska og uppvöxtur

Það er ekki hlaupið að því að draga upp mynd af per­són­unni Vladimir Putin þótt eitt og annað sé vitað um hann.

Vladimir Vla­dimirovitj Putin, eins og hann heitir fullu nafni, fædd­ist í Len­ingrad (St. Pét­urs­borg) 7.októ­ber 1952. For­eldrar hans, Maria Ivanovna Shelomova og Vladimir Putin, voru jafn­gömul fædd árið 1911, komin af bændum og unnu lengi í verk­smiðju í Len­ingrad (St. Pét­urs­borg) og bjuggu, ásamt annarri fjöl­skyldu, í lít­illi íbúð í fjöl­býl­is­húsi í borg­inni. Vladimir, faðir for­set­ans, hafði mik­inn áhuga á tón­list og lagði mikla áherslu á að son­ur­inn lærði á hljóð­færi. Sonurinn hafði hins vegar meiri áhuga á glímu (wrestling) og síðar júdó. For­eldr­arnir voru ekki sér­lega hrifin af þessu áhuga­máli en eftir að glímu­þjálf­ar­inn kom í heim­sókn og sagði þeim að son­ur­inn ætti fram­tíð­ina fyrir sér í glímunni féllust þau á að hann fengi að stunda æfingar að vild. Skóla­bræður Vladimir yngri hafa í við­tölum greint frá því að hann hafi verið félags­lyndur og þeir hafi ætíð verið vel­komnir á heim­ili for­eldra hans. Einn skóla­bróðir for­set­ans sagði í við­tali að móðir hans hafi lagt mikla áherslu á að son­ur­inn væri snyrti­legur til fara og iðu­lega látið hann fara í hreina skyrtu tvisvar, jafn­vel þrisvar á dag. For­eldr­arnir lét­ust með árs milli­bili 1998 og 1999.

[adspot]Að lok­inni hefð­bund­inni skóla­göngu inn­rit­aði Vladimir Pútín sig í laga­deild­ina við háskól­ann í Len­ingrad og útskrif­að­ist þaðan árið 1975.

KGB og FSB

Að námi loknu hóf Pútín störf hjá sov­ésku leyni­þjón­ust­unni KGB, í erlendu njósn­a­deild­inni. Á árunum 1985 – 1990 bjó hann í Dresden í Austur- Þýska­landi og starf­aði þar á vegum KGB. Hann talar þýsku reiprenn­andi.

Eftir heim­kom­una til Rúss­lands hélt Pútín áfram störfum hjá KGB og vann sig hægt og rólega upp met­orða­stig­ann þar. Nokkru eftir upp­lausn Sov­ét­ríkj­anna árið 1991 skipti leyni­þjón­ustan um nafn og heitir nú Örygg­is­stofnun sam­bands­rík­is­ins, FSB. Árið 1998 varð Vladimir Pútín æðsti yfir­maður FSB, höf­uð­stöðv­arnar eru í Moskvu.

Arftaki Jeltsín

Boris Jeltsín varð for­seti Rúss­lands árið 1991. Tíundi ára­tugur síð­ustu aldar var mik­ill umbrota­tími í rúss­nesku þjóð­lífi og for­set­inn umdeildur. Þegar leið að alda­mótum gerð­ust nánir sam­starfs­menn for­set­ans áhyggju­fullir, Jeltsín var bæði heilsu­veill og drykk­felldur og eng­inn aug­ljós arf­taki í sjón­máli.

Oft hefur heyrst að auð­jöf­ur­inn Boris Berezovski hafi fyrstur hreyft þeirri hug­mynd að Vladimir Pútín væri kannski rétti mað­ur­inn til að verða arf­taki Jeltsín á for­seta­stóli. Jeltsín leist að sögn vel á þennan 47 ára yfir­mann FSB og í ágúst 1999 gerði hann Vladimir Pútín að for­sæt­is­ráð­herra. Það reynd­ist þó aðeins milli­leikur því á gaml­árs­dag þetta sama ár til­kynnti Boris Jeltsín nokkuð óvænt afsögn sína og útnefndi Vladimir Pútin sem starf­andi for­seta þangað til nýr for­seti yrði kjör­inn. Pútin sigr­aði með yfir­burðum í for­seta­kosn­ing­unum vorið 2000 og tók form­lega við emb­ætti 7. maí sama ár.

Hefur haldið fjölskyldunni frá sviðsljósinu

1983 gift­ist Vladimir Putin Ljudmilu Sjkrebneva. Ljudmila fædd­ist árið 1958 og ólst upp í Kal­in­ingrad. Þegar Ljudmila og Pútín kynnt­ust lagði hún stund á spænsk mál­vís­indi við háskól­ann í Len­ingrad, hún hafði um tíma starfað sem flug­freyja hjá rík­is­flug­fé­lag­inu Aeroflot. Ljudmila flutti með Pútin til Þýska­lands árið 1985 og þar fædd­ust dætur þeirra, Marija Putina 1985 og Jeka­ter­ina Putina ári síðar. Eftir heim­kom­una til Rúss­lands gengu þær í þýska skól­ann í Moskvu og lærðu síðar hag­fræði.

Ljudmila sást mjög sjaldan með Pútín og lengi vel voru á kreiki sögur um að þau Pútín væru ein­ungis hjón að nafn­inu til. Árið 2013 birt­ist frá þeim til­kynn­ing um að gengið hefði verið frá skiln­aði þeirra. Ljudmila gift­ist aftur árið 2015, eig­in­mað­ur­inn var sagður versl­un­ar­maður, 21 ári yngri en Ljudmila.

Lengi hafa verið á kreiki sögur um að Pútín eigi dóttur í Þýska­landi og enn­fremur eina dóttur búsetta í Rúss­landi. Sjálfur hefur hann aldrei rætt sín fjöl­skyldu­mál.

Lagði mikið upp úr eigin ímynd

Þótt mörgum Rússum hafi þótt ferskur andi fylgja hinum unga for­seta (á rúss­neskan mæli­kvarða) var Pútín lítt þekktur meðal almenn­ings. Með myndum af sér, iðu­lega berum að ofan, vildi hann styrkja ímynd sína sem hins sterka leið­toga. Myndir og frá­sagnir af leið­tog­anum hafa iðu­lega vakið athygli: hann hefur með deyfipílu bjargað sjón­varps­fólki frá því að lenda í klóm tígris­dýrs, myndir sem sýna hann byrja dag­inn með sund­spretti, við veiðar þar sem hann heldur á risa­geddu sem vóg 21 kíló.

Mynd af Pútin þar sem hann heldur á brotnum alda­gömlum leir­krúsum sem hann hafði fundið á botni Svarta­hafs­ins. Á svæði sem kaf­arar höfðu árum saman kannað en aldrei fundið neitt. Síðar við­ur­kenndi Pútín að mynd­irnar af leir­ker­a­fund­inum og fleiri afrekum hefðu verið svið­settar. Ætíð í góðum til­gangi. Þótt mynd­irnar hafi fyrst og fremst þótt hlægi­legar víða um heim féllu þær í góðan jarð­veg heima fyrir. Sem var til­gang­ur­inn.

Forsetatíð með millileik

Þegar Pútín tók við sem for­seti vorið 2000 var bundið í lög að for­seti gæti ekki setið lengur en tvö kjör­tíma­bil sam­fellt, það er átta ár. Pútín var end­ur­kjör­inn árið 2004 en hafði ekki í huga að segja skilið við stjórn­málin þegar kjör­tíma­bil­inu lyki. Þegar kosn­ingar 2008 nálg­uð­ust til­kynnti Pútín að hann styddi for­seta­fram­boð aðstoð­ar­manns síns Dmitri Medvedev. Stuðn­ingur Pútíns við Medvedev vakti nokkra athygli, hann var tal­inn frjáls­lynd­ari en Pútín. Medvedev laun­aði Pútín greið­ann með því að gera hann að for­sæt­is­ráð­herra. For­sæt­is­ráð­herra­tíð Pútíns var aðeins milli­leikur því árið 2012 bauð hann sig aftur fram til for­seta, þar bar hann sigur úr býtum og sagan end­ur­tók sig árið 2018. Pútín hafði hins­vegar ekki ætlað sér að láta þar við sitja, laga­breyt­ing sem gerð var í apríl á síð­asta ári, og sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, gerir honum kleift að sitja á for­seta­stóli til árs­ins 2036.

[adspot]Af Medvedev er það að segja að hann sett­ist í for­sæt­is­ráð­herra­stól­inn árið 2012 og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2020 en hefur síðan verið vara­for­maður rúss­neska örygg­is­ráðs­ins.

Hefur breyst

Margir stjórn­mála­skýrendur segja Pútín hafa breyst. Fyrstu átta árin í emb­ætti for­seta leit­að­ist hann við að halda jafn­vægis milli íhalds­samra afla og frjáls­lyndra. Í for­seta­tíð Medvedev fjölg­aði óánægju­röddum vegna spill­ingar í stjórn­málum og atvinnu­lífi. Mót­mæla­fundum fjölg­aði og dag­inn sem Pútín tók aftur við for­seta­emb­ætt­inu 2012 kom til átaka mót­mæl­enda og lög­reglu. Mörg hund­ruð voru hand­tekin. Á fyrstu árum hans á for­seta­stóli lagði hann sig fram um að eiga góð sam­skipti við marga þjóð­ar­leið­toga, ekki síst Banda­ríkja­menn og Þjóð­verja. Þannig er það ekki lengur. Svo virð­ist sem sann­fær­ing hans sé að hrun Sov­ét­ríkj­anna hafi verið harm­leikur og að Rússland þurfi, og verði, að end­ur­heimta þau áhrif og vægi sem Sov­ét­ríkin höfðu áður.

Merkel sagði Pútín gjörbreyttan

Eftir að Rússar her­námu Krím­skaga árið 2014 og fóru að kynda undir ófriði í aust­ur­hluta Úkrínu árið 2014 hafa vest­rænir fjöl­miðlar fjallað mikið um þær breyt­ingar sem margir telja sig skynja að orðið hafi á Pútín. Hann sé ekki lengur sá glað­væri og við­ræðu­góði for­seti sem hann var áður. Angela Merkel, fyrr­ver­andi kansl­ari Þýska­lands sagði, eftir langt sím­tal við Pútín vorið 2014 að svo virt­ist sem for­set­inn hefði tapað öllu veru­leika­skyni. Fjöl­margir sér­fræð­ingar undr­ast þann hörku­lega reiði­tón sem ein­kennir for­set­ann, og sumir hafa bein­línis velt því fyrir sér hvort hann sé hrein­lega eitt­hvað veikur.

Danski rit­höf­und­ur­inn Leif Davidsen, sem lengi starf­aði sem frétta­maður í Rúss­landi og höf­undur margra bóka um Rússland, segir Pútin bitran gamlan mann sem nú hafi látið skyn­sem­ina lönd og leið. Í löngum ræðum sínum und­an­farið noti hann sögu­fals­anir til að rétt­læta inn­rás­ina í Úkraínu. Lars Løkke Rasmus­sen fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur kynnt­ist Pútín vel. Hann segir Pútín gjör­breyttan mann og bein­línis hættu­legan. „Pútín umgengst ein­ungis örfáa menn og þegar sá hópur er ein­göngu jábræður verður útkoman iðu­lega að sá sem situr á toppnum tekur ákvarð­anir sem reyn­ast svo rangar“.

Hefur kastað grímunni

Þýski blaða­mað­ur­inn Christian Neef hefur í ára­tugi fylgst með og skrifað um sov­ésk og rúss­nesk mál­efni. Í nýrri grein í frétta­tíma­rit­inu Der Spiegel segir hann að Pútín hafi árum saman leikið tveim skjöldum í sam­skiptum við aðrar þjóðir. Hann nefnir sem dæmi ræðu Pútíns í þýska þing­inu, þar tal­aði for­set­inn um frið og sam­vinnu á sama tíma og hann stóð í blóð­ugu stríði við aðskiln­að­ar­sinna í Tsjetsjeníu. Christian Neef líkir Pútín við Ívan grimma og vitnar í nýlega kvik­mynd, þar sem Ívan grimmi segir „þegar við höfum sigr­ast á fjand­mönnum í eigin landi getum við tek­ist á við aðra fjand­menn okkar“. Christian Neef segir að nú sýni Vladimir Pútín sitt rétta and­lit „hann hefur kastað grímunni“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár