Ólína segir forstjóra Samherja hafa beitt sér fyrir því að hún fengi ekki háskólastöðu

Fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir í nýrri bók að Þor­steinn Már Bald­vins­son hafi hindrað ráðn­ingu sína sem for­seta hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri árið 2013. Hana grunar að and­staðan við sig hafi verið af póli­tískum toga.

„Það var einn kyrr­látan vetr­ar­morgun árið 2013 sem sím­inn hringdi heima hjá okkur hjónum í Miðtúni á Ísafirði. Á lín­unni var góð­kunn­ingi okkar beggja, tengdur útgerð og sjáv­ar­út­vegi. Honum var mikið niðri fyrir og taldi nú rétt að upp­lýsa okkur um nokkuð sem hann hefði fengið vit­neskju um. Þessi kunn­ingi okkar er hinn vand­að­asti maður með hjartað á réttum stað og fleiprar ekki um hlut­ina. En nú var honum nóg boðið. Hann taldi sig vita með vissu að for­stjóri Samherja hefði bein­línis komið í veg fyrir ráðn­ingu mína sem for­seta hug og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri skömmu áður. Þor­steinn Már Bald­vins­son hefði ein­fald­lega hringt í háskóla­rekt­or­inn og til­kynnt honum þegar ljóst var að ég væri í hópi umsækj­enda, að „þessi kona ætti ekk­ert erindi norður yfir heiðar“.“

Svona hefst kafl­inn „Háskól­inn á Akureyri aug­lýsir stöðu“ í nýrri bók Dr. Ólínu Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttur, fyrr­ver­andi þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, sem nefn­ist „Spegill fyrir skugga­baldur. Atvinnu­bann og mis­beit­ing valds“ og kom út í gær.

[adspot]Í bók­inni er fjallað um afkomu­of­beldi, spill­ingu, frænd­hygli og flokka­drætti í íslenskum stjórn­málum og atvinnu­lífi, sum­part af eigin reynslu Ólínu, sem fékk meðal ann­ars 20 millj­óna króna bóta­greiðslu frá íslenska rík­inu fyrr á þessu ári í kjöl­far þess að kær­u­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri niður­stöðu að jafn­rétt­is­lög hefðu verið brot­in þegar gengið var fram­hjá henni við skip­an þjóð­garðsvarðar árið 2018. Auk eigin reynslu rekur Ólína fjöl­mörg dæmi af fólki sem telur að stjórn­mála­skoð­anir sínar, eða aðrar sem féllu ekki í kramið hjá áhrifa­fólki í stjórn­málum og við­skiptum, hafi orðið til þess að það hafi verið svipt tæki­færum til að afla sér lífs­við­ur­væris.

Telur rektor hafa viljað sanna hollustu við nýja húsbændur

Ólína segir frá því í bók­inni að bæði háskóla­ráð og rektor Háskól­ans á Akureyri hafi gengið í ber­högg við umsögn og atkvæða­greiðslu hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans í ofan­greindu máli, sem mælt hafði með ráðn­ingu hennar í starfið.

Sigrún Stef­áns­dóttir, sem var metin þriðji hæf­asti umsækj­and­inn og hlaut næst fæst atkvæði að sögn Ólínu, var hins vegar ráðin í starfið. Hún segir að í aðdrag­anda þess hafi verið „settur upp sjón­leikur í því skyni að breyta nið­ur­stöðu hug- og félags­vís­inda­sviðs­ins“ með aðkomu ráðn­ing­ar­stof­unnar Capacent og með því voru reglur háskól­ans um ráðn­ingar af þessu tagi þver­brotnar að mati Ólínu. Hún vís­aði mál­inu til umboðs­manns Alþingis sem lauk því með einka­bréfi, en ekki opin­berum úrskurði.

Ólína skrifar að hún hafi verið víg­móð eftir þetta at. „Ekki bætti úr skák þegar nýr rektor Háskól­ans á Akureyri, Eyjólfur Guð­munds­son, fyrrum göngu­fé­lagi minn á Horn­ströndum, tók að veit­ast að mér í fjöl­miðlum eftir brott­för for­vera síns. Allt í einu skaust hann fram á sjón­ar­sviðið – ekki ósvipað Jóni sterka í Skugga-Sveini þegar hann kom úr felum eftir átökin og sagði: „Sáuð þið hvernig ég tók hann piltar!“ Eyjólf þekkti ég ekk­ert að ráði. Hann hafði enga ástæðu, mér vit­an­lega, til að senda mér sneiðar því aldrei hafði neitt skorist í odda í okkar sam­skiptum og ég vissi ekki til þess að hann hefði á nokkurn hátt verið aðili þessa ráðn­ing­ar­máls eða hlotið neina gagn­rýni af minni hálfu. Eyjólfur hafði með öðrum orðum enga ástæðu til þess að blanda sér í málið svona eftir á – nema ef vera skyldi til þess að ganga í augun á Sam­herj­a­veld­inu. Sanna holl­ustu sína við nýju hús­bænd­urna. Og það gerði hann.“

[adspot]Í bók­inni skrifar Ólína að hana gruni að and­staðan við sig hefði verið af póli­tískum toga og tengd fram­göngu hennar í umræðum um sjáv­ar­út­vegs­mál á Alþingi, en hún sat þar árin 2009-2013 og svo aftur 2015-2016. „ Sam­fylk­ing og Vinstri græn sátu að völdum á fyrra kjör­tíma­bil­inu og í stjórn­ar­sátt­mála þeirrar rík­is­stjórnar var kveðið á um breyt­ingar á núver­andi fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfi. Þannig vildi til að ég var á þessum tíma ötull tals­maður boð­aðra breyt­inga á kvóta­kerf­inu svo að LÍÚ og Samherji töldu sig hafa ríka ástæðu til að ótt­ast mál­flutn­ing minn og áhrif þar að lút­andi. Enda létu þeir óspart í ljósi andúð í minn garð og ugg gagn­vart því sem ég hafði fram að færa í umræð­unni. Dreift var róg­burði gegnum ýmsa leigupenna, einkum á síðum Morg­un­blaðs­ins og vef­miðl­inum AMX. Á fáeinum mán­uðum taldi ég níu greinar í Morg­un­blað­inu, hvar af sex höfðu nafn mitt í fyr­ir­sögnum eða fyrstu setn­ingu.“

Kristján baðst velvirðingar á „einni glæru of mikið“

Þegar eina tveggja flokka meiri­hluta­stjórn vinstri­flokka í lýð­veld­is­sög­unni sat að völdum árin 2009-2013 voru meðal ann­ars sett á veiði­gjöld.

Hart var tek­ist á um þau, og aðrar til­raunir til að breyta fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu og Ólína greinir frá því að á þessu tíma hafi full­trúar stór­út­gerð­ar­innar ferð­ast um landið til að halda áróð­urs­fundi gegn þeim breyt­ingum. „Á þeim fundum sveifl­aði Þor­steinn Már glærum um ágæti kvóta­kerf­is­ins. Hafði auk þess 1–2 við­bót­ar­glærur með sam­settum myndum af alþing­is­mann­inum Ólínu Þor­varð­ar­dóttur og háð­ug­legum ummælum um þennan óvin útgerð­ar­innar númer eitt. „Stór­hættu­legur þing­maður,“ sagði einn erind­reki þeirra [Gunnar Bragi Sveins­son] um mig í þing­inu um sama leyti.“ Ólína skrifar að hún hafi eitt sinn verið stödd á Akureyri og þá ákveðið að mæta á einn þess­ara funda sem hald­inn hafi verið í Hofi. Hún hafi ekki gert boð á undan sér. „Líklega hefur það verið þess vegna sem ég sá og heyrði sjálf niðr­anir Sam­herja­for­stjór­ans í minn garð. For­stjór­inn átt­aði sig ekki á nær­veru minni þar sem hann stóð í ræðu­stóli, en það gerðu ýmsir fund­ar­menn. Þegar glæran góða kom á skjá­inn við óminn af last­mælum Þor­steins Más fór vand­ræða­legur kliður um sal­inn og margir litu til mín. Sjálfur var hann hálf­undr­andi á svip yfir dræmu klapp­inu, sem hann hlaut, hafði lík­lega búist við hlátra­sköllum og gjall­andi lofi í lófa. En brand­arar vilja stundum detta dauðir þegar umræðu­efnið er sjálft fyrir augum til­heyr­enda, líkt og var þarna.“

Ólína kvaddi sér hljóðs í kjöl­far erindis Þor­steins Más og segir frá því í bók­inni að hún hafi tekið efn­is­lega skorpu á mál­inu án þess að víkja einu orði að Þor­steini per­sónu­lega. „Þetta var svo­lítil eldræða knúin fram af kappi sem hlaupið hafði í kinn undir svig­ur­mælum Sam­herja­for­stjór­ans. Þor­steinn ók sér í sæt­inu. Honum virt­ist ekki líða sér­lega vel. Frændi hans og „sam­herji“, Kristján Vil­helms­son, kom upp að mér eftir fund­inn og kvaðst vilja ræða málin. Hann baðst vel­virð­ingar á því sem hann sagði að hefði verið „einni glæru of mikið“.“

Segir háskólann ofurseldan Samherjaveldinu

Ólína segir að hún hafi vitað um andúð stór­út­gerð­ar­innar í sinn garð. Hún hafi hins vegar ekki haft hug­ar­flug né inn­ræti til að láta sér detta í hug að for­stjóri stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækis lands­ins – maður sem hún hafði aldrei hitt eða átt orða­stað við, utan þetta eina skipti við ræðupúlt í Hofi – myndi leggja sig niður við það að koma í veg fyrir að Háskól­inn á Akureyri myndi ráða hana til starfa að aflok­inni þing­mennsku. „Hef ég þó enga ástæðu til að draga í efa frá­sögn vel­unn­ara míns sem hringdi í okkur hjónin vestur á Ísafirði síðar sama haust til að segja okkur frá því sem hann vissi. Að for­stjóri Samherja gat ekki lengur stillt sig um að hæl­ast af því að hafa hindrað ráðn­ingu mína sem for­seta hug- og félags­vís­inda­sviðs Háskól­ans á Akureyri.“

Í lok kafl­ans skrifar Ólínu að bar­áttan um kvóta­kerfið standi enn og að hún sé sam­tengd kröf­unni um nýtt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá lands­ins. „Sú bar­átta verður ekki þögguð þó að tek­ist hafi að bægja einni konu­kind frá norð­lenskum háskóla sem ofur­seldur hefur verið Sam­herj­a­veld­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár