„Er virkilega svona hræðilegt að deyja, keisari?“

Eina dramat­ísk­ustu frá­sögn af dauða ein­ræð­is­herra er að finna hjá róm­verska sagna­rit­ar­anum Sueton­i­usi, sem greinir frá flótta keis­ar­ans Neros þegar hann er rúinn trausti og stuðn­ingi.

Hvernig deyja ein­ræð­is­herrar? Oft ömur­lega, sem betur fer, það hæfir þeim vel. Róm­ar­keis­ar­inn Neró var ekki nema þrí­tugur í júní árið 68 en hafði verið keis­ari í 14 ár. Keisari í Róma­veldi var algjör­lega ein­ráður og mátti gera nákvæm­lega það sem honum sýnd­ist. Það þarf ekki að orð­lengja að Neró var hégóm­legur grimmur nars­iss­isti og sið­leys­ingi sem hafði meiri áhuga á að iðka söng­list en stjórna ríki – og full­nægja sínu skít­lega eðli.

Og skít­legt var það sann­ar­lega. Þá dugir að taka fram að hann drap mömmu sína og tvær eig­in­konur.

Hungursneyð í Róm

Lengi vel var Neró samt vin­sæll af alþýðu manna, enda snertu hryll­ings­brögð hans hirð­ina og yfir­stétt­ina meira en fólkið sjálft. Þó hafði fjarað undan honum síð­ustu miss­erin og þegar her­for­ing­inn Vindex í Akvit­aníu í Gallíu (Frakk­landi) gerði upp­reisn gegn honum virð­ist Neró strax hafa skynjað að hann ætti engan stuðn­ing vísan.

…
Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár