Skagfirsku áhrifin á viðræðuslitin við ESB

Ein umdeildasta ákvörðun íslenskra stjórn­mála á síð­ari árum, form­leg slit á við­ræðum við ESB, er mikið hags­muna­mál fyrir Kaup­fé­lag Skag­firð­inga. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra hefur sterk tengsl við kaup­fé­lagið. Skag­firð­ingar hafa lagt vax­andi áherslu á sam­skipti við Rússland og mark­aðs­setn­ingu lamba­kjöts þar í landi. Nýlega var skip­aður ræð­is­maður Rúss­lands í Skaga­firði, sem starfar í kjöt­af­urða­deild kaup­fé­lags­ins.

Ráðherrann sem réði
Ráð­herr­ann sem réði Gunnar Bragi Sveins­son olli upp­námi þegar hann tók ákvörðun um að slíta við­ræðum við ESB með bréfi, án þess að málið færi fyrir Alþingi eða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, eins og lofað hafði verið fyrir kosn­ingar.

Heim­ild­ar­menn Stund­ar­innar í innsta hring stjórn­kerf­is­ins á Íslandi telja að ekki séu öll kurl til grafar komin hvað varðar ástæður slita­bréfs Gunnars Braga Sveins­sonar til Evr­ópu­sam­bands­ins í mars síð­ast­liðnum. Bréfið hefur reynst olía á eld áfram­hald­andi ófriðar inn­an­lands um alþjóða­stefnu Íslend­inga. Orðalag bréfs­ins hefur þótt óskýrt og gagn­rýnendur hafa kallað gjörð­ina ger­ræði á opin­berum vett­vangi, ekki síst þar sem málið fór ekki fyrir Alþingi eins og ákvörð­unin um umsókn­ina sjálfa. 

Þáttur for­seta Íslands hefur einnig verið mjög til skoð­unar í þessu sam­hengi, ekki síst þau við­skipta- og vina­bönd sem for­set­inn hefur reynt að skapa í Rúss­landi og sum­part er auð­veld­ara að treysta fyrir Ísland án ESB. Sum við­skipti við Rússa eru úti­lokuð eða lang­sótt ef Ísland væri í hópi aðild­ar­ríkja að ESB og er rætt um iðnað, sjáv­ar­út­veg og land­búnað. Það er teng­ingin við land­búnað, kindur og KS sem rætt hefur verið um innan íslenskra ráðu­neyta síð­ustu vikur að kunni að hafa haft ein­hver áhrif á ákefð Gunnars Braga í snöggum slitum á við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Áhersla á útflutn­ing á kjöt­vöru og tæki­færi í land­bún­aði eru einnig sögð tengj­ast vin­áttu Guðna Ágústs­sonar við for­seta Íslands en báðir eru í vin­fengi við Gunnar Braga. Guðni er einn valda­mesti maður lands­ins í land­bún­að­ar­málum og eru skoð­ana­leið­toga­á­hrif Guðna hjá kjós­endum Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks talin hafa vegið þungt á loka­sprett­inum þegar Ólafur Ragnar vann stór­sigur á Þóru Arn­órs­dóttur sem og öðrum fram­bjóð­endum í síð­ustu for­seta­kosn­ingum. Bréfleg slit Gunnars Braga við ESB liðka fyrir frek­ari sér­tækum við­skipta­sam­böndum land­bún­að­ar­geirans hér á landi við Rússa. Með bréfi Gunnars Braga kann að skap­ast auk­inn far­vegur fyrir vöru­skipti til Rússa og þar gæti skag­fir­skt lamba­kjöt mjög komið við sögu. Formlega getur utan­rík­is­ráðu­neytið undir stjórn Gunnars Braga nú haldið því fram að Ísland sé ekki lengur aðild­ar­ríki að ESB. Það opnar á við­skipta­vel­vild Rússa. Sumir heim­ild­ar­menn Stund­ar­innar í stjórn­kerf­inu segja að Rússar hafi nefnt á óform­legum fundi að skil­yrði fyrir auknum við­skiptum Íslend­inga og Rússa væri að Ísland myndi yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið sem umsókn­ar­ríki.

Vantar fleiri púsl

Patt­staða skap­að­ist um örlög Íslands sem umsókn­ar­ríkis um aðild að ESB á vor­þing­inu 2014 eftir að Gunnar Bragi lagði fram til­lögu­slit sem ekki náð­ust í gegn. Röð fjöl­mennra mót­mæla og hörð við­brögð minni­hlut­ans á þingi unnu þá gegn fyr­ir­ætlan utan­rík­is­ráð­herra. Slita­bréf Gunnars Braga í mars síð­ast­liðnum kom svo eins og köld vatns­gusa framan í stóran hluta þjóð­ar­innar. Hefur verið rætt um vendi­punkt í þeim efnum þegar fylgi Pírata fór að stór­aukast vegna and­úðar Íslend­inga á emb­ættis­færslum rík­is­stjórn­ar­innar. Slitin eru í and­stöðu við kosn­inga­lof­orð sjálf­stæð­is­manna og ýmis fyrri ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra. „En það vantar enn ein­hver púsl í þetta allt saman ennþá. Hvers vegna fara menn svona fram?“ spyr einn þing­maður í minni­hlut­anum sem Stundin ræddi við.

„Follow the Money“ hefur oft verið svarið þegar upp koma spurn­ingar sem ekki fela í sér aug­ljóst svar. Frasinn er rak­inn til þess þegar tveir blaða­menn Washington Post afhjúp­uðu Watergate-hneyksli Nixons Banda­ríkja­for­seta fyrir mörgum árum. Eins og Stundin hefur greint frá kúventi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á skömmum tíma frá því að vera jákvæður gagn­vart aðild að ESB yfir í að loka og læsa. Þar eru hags­munir sagðir ráða för. Það bak­land sem utan­rík­is­ráð­herra sprettur úr hefur hags­muni sem tengj­ast mál­inu. Ýmsir heim­ild­ar­menn Stund­ar­innar telja að það geti haft áhrif á ákvörð­un­ina. 

Vægi atkvæða á lands­byggð­inni er meira en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því þarf lýð­ræð­is­lega minni stuðn­ing bak við hvert þing­sæti en ella ef umboð til trún­að­ar­starfa er sótt til kjós­enda úti á landi. Gunnar Bragi er odd­viti fram­sókn­ar­manna í skag­firsku frum­fram­leiðslu­hér­aði, byggð sem átt hefur undir högg að sækja. Fækkun íbúa á Norð­vest­ur­landi er stað­reynd svo nemur hund­ruðum íbúa á skömmum tíma. Mjög hefur verið talað um flutn­ing rík­is­stofn­ana á Krókinn en hörð and­staða virð­ist við slíkar fyr­ir­ætl­anir. Skemmst er að minn­ast und­an­halds Sigurðar Inga, sam­flokks­ráð­herra Gunnars Braga, en flutn­ingur Fiski­stofu til Akur­eyrar virð­ist kom­inn í upp­nám. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga kynnir sig á heima­síðu félags­ins sem „Bakhjarl í hér­aði“. Færa má gild rök fyrir því að KS sé bak­hjarl­inn, enda eiga flestir íbúa á Sauð­ár­króki sitt undir umsvifum kaup­fé­lags­ins. „Með auknum tæki­færum KS sjá íbúar í Skaga­firði, og þar með kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins í hér­aði, fram á bjarta tíma,“ segir íbúi í Skaga­firði sem Stundin ræddi við.

Kjörræðismaður eða kjötræðismaður?

Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur eru þeir flokkar sem helst hafa gætt hags­muna gömlu atvinnu­veg­anna hér á landi. Ef stefna skal að auknum útflutn­ingi íslenskra land­bún­að­ar­vara, svo sem lamba­kjöti, skiptir höf­uð­máli hve opið flæði af vörum er í stað­inn inn til Íslands. Til að gera langa sögu stutta mið­ast kerfið við að Ísland selji sem mest út af land­bún­að­ar­vörum en fái sem minnsta sam­keppni af 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár