Hagstofa og innviðaráðherra takast á um húsnæðisliðinn

Inn­við­a­ráð­herra skor­aði á Hagstofu að mæla hús­næð­islið­inn með öðrum hætti en gert er núna. Hag­stofan hefur svarað að aðferðin sín sé í sam­ræmi við alþjóð­lega staðla, en bætir við að lög­gjaf­anum sé frjálst að breyta lögum um verð­trygg­ingu.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Auðvitað á vísi­talan að mæla hús­næð­is­verð, en hún á þá að gera það rétt, og hún gerir það ekki í dag,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra, í útvarps­við­tali í Bítinu á Bylgj­unni í morgun.

Samkvæmt Sigurði styðst Hag­stofan við ranga aðferð við að mæla hús­næð­is­kostnað í svoköll­uðum hús­næð­islið í vísi­tölu neyslu­verðs. Með reikni­að­ferð­inni hafa sveiflur í fast­eigna­verði áhrif á verð­bólgu, en Sigurður segir þessa teng­ingu hafa magnað upp verð­sveiflur hér­lendis.

Áður fyrr hefur Sigurður Ingi sagt að miki áhrif hús­næð­islið­ar­ins á verð­bólgu þessa stund­ina gæfu til­efni til að íhuga hvort fjar­lægja ætti hann í heild sinni úr vísi­töl­unni.

Magnar ekki, heldur jafnar

Líkt og Kjarninn hefur áður bent á er stað­hæf­ing Sigurðar Inga um að hús­næð­islið­ur­inn magni upp verð­bólg­una hér­lendis þó röng. Samkvæmt tölum Hagstofu er þessu öfugt farið, vísi­tala neyslu­verðs án hús­næð­islið­ar­ins hefur sveifl­ast meira en venju­lega vísi­talan.

Ólafur Hjálm­ars­son hag­stofu­stjóri benti einnig á þessa stað­reynd í frétt Vísis sem birt­ist fyrr í dag, en þar sagði hann hús­næð­islið­inn hafi jafnað sveiflur í vísi­töl­unni. Þegar gengið hafi fallið og vöru­verð hækkað hafi hús­næð­is­verð lækkað.

Í samræmi við alþjóðlega staðla

Hag­stofan gaf svo frá sér til­kynn­ingu eftir hádegi í dag þar sem farið var yfir til­vist hús­næð­islið­ar­ins í vísi­tölu og reikni­að­ferð­irnar á honum.

Þar bendir stofn­unin á að starfs­hópur hafi verið skip­aður í tenslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­ana til að meta þá aðferð­ar­fræði sem Hagstofa not­aði við útreikn­ing á vísi­tölu neyslu­verðs. Samkvæmt nið­ur­stöðu hóps­ins er aðferð stofn­un­ar­innar í fullu sam­ræmi við alþjóð­legar aðferða­fræði­lýs­ingar.

Þó bætir Hagstofa við að fyr­ir­komu­lag verð­trygg­ingar sé ákveðið í lögum um vexti og verð­trygg­ingu sem stjórn­mála­menn taka ákvörðun um. „Hagstofa Íslands reiknar margar vísi­tölur og þar á meðal vísi­tölu neyslu­verðs, bæði með og án hús­næðis,“ segir stofn­unin.„ Sé vilji til þess að breyta verð­trygg­ingu fjár­skuld­bind­inga er Alþingi í lófa lagið að breyta lögum um vexti og verð­trygg­ingu óháð þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt er við að reikna vísi­tölu neyslu­verðs.“

Í útvarps­við­tali í morgun nefndi Sigurður Ingi skýrslu nefndar um end­ur­skoðun á fram­tíð pen­inga­stefnu sem rök fyrir að hús­næð­is­kostn­aður væri ekki rétt mældur hér­lendis, þar sem hún minnt­ist á að lönd studd­ust við mis­mun­andi reikni­að­ferðir til að meta hann.

Nefndin sem Sigurður vitnar í seg­ist þó ekki taka afstöðu til þess hvernig hús­næð­islið­ur­inn er reikn­aður í vísi­tölu Hag­stof­unnar og segir sjálf­stæði Hagstofu vera mik­il­vægt. Enn fremur bætir hún við í skýrslu sinni að hægt sé að færa fræði­leg rök fyrir núver­andi mæl­ing­ar­að­ferð stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár