Börn rekin úr landi – lagabreytingin nær ekki til fjölskyldunnar

„Þeim finnst gaman í skól­anum og eru glaðir,“ segir Hanadi Sbhehat um syni sína. Þeir eru sex og sjö ára nem­endur í Voga­skóla en pabbi þeirra sér fyrir fjöl­skyld­unni sem kokkur.

Arabísk fjöl­skylda frá Ísrael með tvo unga drengi verður flutt úr landi eftir tvær vikur. Þau Hanadi Sbhehat og Muhamed Sadat Sbhehat hafa búið á Íslandi ásamt sonum sínum, sem eru sex ára og sjö ára gamlir, frá því í sept­em­ber 2016, en Útlend­inga­stofnun telur að þau séu ekki í hættu í heima­land­inu þrátt fyrir að arabar í Ísrael verði gjarnan fyrir aðkasti og lík­am­legu ofbeldi vegna upp­runa síns og þeim sé mis­munað með ýmsum hætti. 

Útlend­inga­stofnun synj­aði fjöl­skyld­unni um hæli fyrr á árinu og hafn­aði jafn­framt þrauta­vara­kröfu um dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. Þau kærðu nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar útlend­inga­mála sem stað­festi synj­un­ina þann 29. júní síð­ast­lið­inn. Lögmaður fjöl­skyld­unnar fór svo fram á end­ur­upp­töku máls­ins og óskaði eftir því að rétt­ar­á­hrifum yrði frestað. Þeirri beiðni var hafnað þann 18. ágúst.

„Strák­arnir hafa eign­ast marga vini á Íslandi,“ segir Hanadi í sam­tali við Stundina. „Þeim finnst gaman í skól­anum og eru glaðir. Ég vildi óska þess að við gætum fengið að búa hérna á Íslandi, vinna og lifa.“ 

Hanadi ólst upp í þorp­inu Moquiblh í Ísrael og er arab­ísk að upp­runa, rétt eins og Muhamed Sadat. Þau bjuggu í þorp­inu Salem áður en þau flúðu frá Ísrael, en þorpið er afgirt og þar búa ein­ungis arabar. 

Fram kom í við­tölum Útlend­inga­stofn­unar við Hanadi og Muhamed að fjöl­skyldan hefði ítrekað orðið fyrir for­dómum, mis­munun og ýmiss konar áreiti vegna arab­ísks upp­runa síns. Jafn­framt vís­uðu þau til þess að harð­vít­ugar deilur hefðu átt sér stað milli fjöl­skyldna í Salem en ísra­elska ríkið og lög­reglan nær ekk­ert aðhafst í mál­inu. Mikið sé um skotárásir og íkveikjur í þorp­inu og fjöl­skyldan hafi ótt­ast um öryggi sitt. 

Þau komu til lands­ins þann 13. sept­em­ber á síð­asta ári og hafa þannig búið hér í hart­nær 13 mán­uði. Laga­breyt­ingin sem Alþingi sam­þykkti í gær nær ekki til fjöl­skyld­unnar, en breyt­ingin felur í sér að stjórn­völdum er nú heim­ilt að veita barni dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða ef það hefur ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu á stjórn­sýslu­stigi innan 15 mán­aða. Eva Dóra Kol­brún­ar­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar, segir í sam­tali við Stundina að vísað verði til laga­breyt­ing­anna mála­til­bún­aði fjöl­skyld­unnar til stuðn­ings í ljósi hags­muna og vel­ferðar barn­anna.

Staða araba í Ísrael er slæm

Í máli fjöl­skyld­unnar er meðal ann­ars byggt á því að þau séu fórn­ar­lömb ofsókna á grund­velli þjóð­ernis, trú­ar­bragða og vegna aðildar að til­teknum þjóð­fé­lags­hópi. Hanadi og Muhamed segj­ast hafa orðið fyrir kerf­is­bund­inni og ólög­mætri mis­munun í Ísrael; fjöl­skyldan eigi á hættu ómann­úð­lega og van­virð­andi með­ferð og að lífi þeirra yrði stofnað í hætti yrði þeim gert að snúa aftur til Ísraels. 

Í skýrslu banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um stöðu mann­rétt­inda­mála í Ísrael kemur meðal ann­ars fram að alvar­leg­ustu mann­rétt­inda­brotin þar í landi séu mis­munun sam­fé­lags­ins og stofn­ana gagn­vart ísra­elskum rík­is­borg­urum af arab­ískum upp­runa, sem margir hverjir líti á sig sem Palest­ínu­menn. Þá eru heim­ildir um fjöl­mörg til­vik þar sem örygg­is­sveitir Ísra­els­ríkis eða almennir borg­arar hafi áreitt arab­íska borg­ara vegna upp­runa síns, auk fjölda til­vika þar sem hefnd­ar­að­gerður er beint gegn ísra­elskum aröbum. Einnig eru dæmi um ofbeldi gyð­inga gegn aröbum fyrir það eitt að tala arab­ísku á almanna­færi. 

Í skýrslu sér­staks mann­rétt­inda­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna um skoð­ana- og tján­ing­ar­frelsi koma fram upp­lýs­ingar um að oft sé litið á palest­ínska rík­is­borg­ara Ísraels sem „óvin að innan“ í ljósi þjóð­ernis- og trú­ar­legra tengsla þeirra við Palest­ínu­menn á hernumdu svæð­unum og að þeir verði í kjöl­farið fyrir marg­vís­legri mis­munun og með­ferð. Þá hafi CERD-eft­ir­lits­nefndin einnig áhyggjur af því að sú óhóf­lega áhersla sem lögð sé á Ísrael sem gyð­inga­ríki hvetji til mis­mun­unar og veiti borg­urum lands­ins, sem ekki eru gyð­ingar, stöðu ann­ars flokks borg­ara. 

Enn­fremur sæta ísra­elsir rík­is­borg­arar af arab­ískum upp­runa mis­munun að því er varðar rík­is­borg­ara­rétt­indi. Samkvæmt lögum lands­ins er fjöl­skyldu­sam­ein­ing ísralsks rík­is­borg­ara og ein­stak­lings sem býr á Vest­ur­bakka­naum eða á Gaza ekki mögu­leg, sem skerðir fjöl­skyldu­tengsl, rétt­inn til að stofna til hjú­skapar og val á maka. Þá eru í gildi lög í land­inu sem gera kleift að svipta ein­stak­linga rík­is­fangi af ýmsum ástæðum, meðal ann­ars á grund­velli meintrar „óholl­ustu“ við ríkið eða vegna „brota á trausti“, og er lög­unum stefnt óbeint að rík­is­borg­ara­rétt­indum palest­ínskra borg­ara lands­ins. 

Börn sem eru ísra­elskir rík­is­borg­arar af arab­ískum upp­runa sæta einnig mis­munun, en yfir­völd í Ísrael halda úti aðskildum almenn­ings­skólum, ann­ars vegar fyrir hebr­esku­mæl­andi börn og hins vegar fyrir börn sem hafa arab­ísku að móð­ur­máli. Í skýrslu nefndar sem hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna kemur fram að minna fé sé varið til mennta­mála vegna barna af arab­ískum upp­runa en hinna. Þetta leiði til verri kennslu, lak­ari náms­ár­ang­urs, alvar­legs skorts á skóla­stofum og kennslu­að­stöðu og hærra brott­falls nem­enda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár