Meirihluti þingmanna vill gefa kost á sér áfram

Storma­samt kjör­tíma­bil virð­ist ekki hafa blásið vilj­ann úr sitj­andi þing­mönnum til að gefa kost á sér áfram í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Flestir segj­ast vilja halda áfram, þó margir séu enn óákveðnir. Kjarninn kann­aði afstöðu þing­manna fyrir kosn­ing­arnar.

Mikill meiri­hluti núver­andi þing­manna ætla að freista gæf­unnar og gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Kjarninn leit­aði svara hjá öllum sitj­andi þing­mönnum og fékk svör frá flestum. Nokkrir reynd­ust óákveðnir, en eins og áður segir, eru lang­flestir sem ætla sér að halda áfram. Svör þing­manna má sjá hér fyrir neðan.

„Eins og staðan er í dag, að óbreyttu…”

Rétt er að taka fram að margir þing­menn voru örlítið tví­stíg­andi í afstöðu sinni. Sögðu margir hverjir að í hinu póli­tíska umróti síð­ustu vikna hafi ekki gef­ist mik­ill tími til að velta fyrir sér fram­tíð­inni - menn hafi ein­ungis verið að skipu­leggja dag frá degi. Enda gerð­ust hlut­irnir hratt. Margir bentu á að enn væri þó ein­hver tími til kosn­inga, sem óvíst er hvenær verða, og margt geti gerst í milli­tíð­inni.

„Eins og staðan er í dag, að óbreyttu, þá ætla ég að gefa kost á mér áfram,” og „ef flokk­ur­inn veitir mér braut­ar­gengi og eft­ir­spurn verður eftir mér, þá já,” voru nokkuð algeng svör. Fjöl­margir voru þó gall­harðir í afstöðu sinni til áfram­halds. Þess ber þá að geta að svör þing­manna til Kjarnans eru ekki bind­andi og fólki er frjálst að skipta um skoðun, eins og sann­ast hefur í vik­unni. 

Veit ekki annað en Sigmundur ætli að halda áfram

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fór í frí í byrjun síð­ustu viku. Hjálmar Bogi Haf­liða­son, fyrsti vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, tók sæti hans. Hjálmar segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi átt að koma inn í þrjár vikur, þá frá mánu­deg­inum 11. apríl til mánu­dags­ins 2. maí. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar, seg­ist ekki hafa heyrt neitt um að Sig­mundur ætli að hætta. Hann hafi þó ekki náð í Sigmund, sem sé í ferða­lagi erlendis með fjöl­skyldu sinni.

Utanríkisráðherra óákveðinn

Sumir þing­menn voru ekki búnir að ákveða hvort þeir hygð­ust halda áfram í póli­tík á næsta kjör­tíma­bili. Má þar nefna Ragn­heiði Rík­harðs­dóttur og Brynjar Níelsson, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og helm­ing þing­manna Bjartrar fram­tíðar; Guðmund Stein­gríms­son, Róbert Marshall og Bryn­hildi Pét­urs­dóttur. Lilja Alfreðs­dóttir, nýi utan­þingsutan­rík­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur heldur ekki tekið ákvörðun um hvort hún muni bjóða sig fram til þing­mennsku í haust.

Þingmenn og báðir utan­þings­ráð­herr­arnir voru spurðir hvort þeir hygð­ust bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum og má sjá svör þeirra hér fyrir neðan.

  1. Árni Páll Árnason

    Sam­fylk­ingin

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  2. Ásmundur Einar Daðason

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  3. Ásmundur Friðriksson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  4. Ásta Guðrún Helgadóttir

    Píratar

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  5. Birgir Ármannsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Ekki ákveðið

  6. Birgitta Jónsdóttir

    Píratar

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  7. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

    Vinstri græn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Ekki ákveðið

  8. Bjarni Benediktsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  9. Björt Ólafsdóttir

    Björt fram­tíð

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Já

  10. Brynhildur Pétursdóttir

    Björt fram­tíð

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Ekki ákveðið

  11. Brynjar Níelsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Ekki ákveðið

  12. Einar K. Guðfinnsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Nei

  13. Elín Hirst

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  14. Elsa Lára Arnardóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  15. Eygló Harðardóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  16. Frosti Sigurjónsson

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Já

  17. Guðlaugur Þór Þórðarson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  18. Guðmundur Steingrímsson

    Björt fram­tíð

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Ekki ákveðið

  19. Gunnar Bragi Sveinsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  20. Haraldur Benediktsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  21. Haraldur Einarsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Svarar ekki

  22. Helgi Hrafn Gunnarsson

    Píratar

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Já

  23. Helgi Hjörvar

    Sam­fylk­ingin

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  24. Höskuldur Þórhallsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  25. Jón Gunnarsson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  26. Karl Garðarson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Ekki ákveðið

  27. Katrín Jakobsdóttir

    Vinstri græn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Svarar ekki

  28. Katrin Júlíusdóttir

    Sam­fylk­ingin

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Nei

  29. Kristján Þór Júlíusson

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  30. Kristján L. Möller

    Sam­fylk­ingin

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Svarar ekki

  31. Lilja Alfreðsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Utan þings

    Ekki ákveðið

  32. Lilja Rafney Magnúsdóttir

    Vinstri græn

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  33. Líneik Anna Sævarsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  34. Oddný G. Harðardóttir

    Sam­fylk­ingin

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  35. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

    Sam­fylk­ingin

    Norð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  36. Ólöf Nordal

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Utan þings

    Já

  37. Óttarr Proppé

    Björt fram­tíð

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  38. Páll Jóhann Pálsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Nei

  39. Páll Valur Björnsson

    Björt fram­tíð

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  40. Ragnheiður Ríkharðsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Ekki ákveðið

  41. Róbert Marshall

    Björt fram­tíð

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Ekki ákveðið

  42. Sigríður Á. Andersen

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  43. Sigrún Magnúsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Nei

  44. Sigurður Ingi Jóhannsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  45. Silja Dögg Gunnarsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  46. Steingrímur J. Sigfússon

    Vinstri græn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  47. Steinunn Þóra Árnadóttir

    Vinstri græn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Já

  48. Svandís Svavarsdóttir

    Vinstri græn

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður

    Já

  49. Unnur Brá Konráðsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  50. Valgerður Bjarnadóttir

    Sam­fylk­ingin

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Já

  51. Valgerður Gunnarsdóttir

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  52. Vilhjálmur Árnason

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­ur­kjör­dæmi

    Já

  53. Vilhjálmur Bjarnason

    Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Svarar ekki

  54. Willum Þór Þórsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  55. Þorsteinn Sæmundsson

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Já

  56. Þórunn Egilsdóttir

    Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn

    Norð­aust­ur­kjör­dæmi

    Já

  57. Ögmundur Jónasson

    Vinstri græn

    Suð­vest­ur­kjör­dæmi

    Svarar ekki

  58. Össur Skarphéðinsson

    Sam­fylk­ingin

    Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður

    Svarar ekki

Tæplega 70 prósent vilja vera áfram

Svör feng­ust frá 57 þing­mönnum og báðum utan­þings­ráð­herr­unum, Lilju Alfreðs­dóttur og Ólöfu Nordal. Rúmlega 65 pró­sent svar­enda, eða 39 manns, 38 þing­menn og inn­an­rík­is­ráð­herra sem situr utan þings, segj­ast ætla að gefa áfram kost á sér á næsta kjör­tíma­bili. Fjórir þing­menn ætla að hætta og níu eru óákveðnir.

Forseti, ráðherra og varaformaður að hætta

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Páll Jóhann Pálsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætla öll að yfir­gefa þingið eftir kjör­tíma­bilið.

Sigrún segir að vissu­lega sé sterk löngun hjá henni að fram­fylgja sjálf málum Fram­sókn­ar­flokks­ins. „En ég held að aldur og fyrri störf segi mér að nú sé komið gott."

Einar segir að hann hafi ákveðið að bjóða sig ekki fram til þing­mennsku áfram í sam­ráði við fjöl­skyldu sína, en hann hefur setið í 25 ár á Alþingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Nú er komið að tíma­mótum í lífi mínu. Beinni þátt­töku minni í stjórn­málum lýkur senn. Við tekur nýtt tíma­bil sem ég veit ekki hvað muni bera í skauti sínu. Það leiðir tím­inn einn ljós,“ sagði Einar á Facebook síðu sinni. Einar er odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og í vik­unni gaf þing­mað­ur­inn Haraldur Bene­dikts­son það út við Skessu­horn að hann ætl­aði að sækj­ast eftir sæt­inu.

Páll Jóhann segir að mótæla­aldan og óánægjan í sam­fé­lag­inu hafi haft þau áhrif að hann ætli að hætta á þingi eftir kjör­tíma­bilið. „Ég ætla ekki að láta grýta mér oftar út úr þing­hús­inu,” segir hann í sam­tali við Kjarnann. „Það var meira að segja mót­mælt við þing­setn­ing­una.”

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, til­kynnti fyrr í vetur að hún ætl­aði að hætta á þingi eftir þetta kjör­tíma­bil. Ákvörð­unin hafi verið per­sónu­leg og tími sé kom­inn til að snúa sér að öðru.

Ekki feng­ust við­brögð frá Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, Illuga Gunn­ars­syni, Jóhönnu Maríu Sig­munds­dóttur, Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni og Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur. Vigdís Hauks­dóttir vildi ekki velja einn af fjórum mögu­leikum og óskaði eftir því að það kæmi fram að hún „væri ekk­ert byrjuð að pæla í fram­boði." 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár