Sigrún ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu kosningum

Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu Alþing­is­kosn­ingum. Hún segir tíma­bært að ein­hver yngri taki við þeim góðu málum sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur verið að vinna að.

Sigrún Magnúsdóttir tók við embætti umhverfisráðherra í lok árs 2014.
Sigrún Magn­ús­dóttir tók við emb­ætti umhverf­is­ráð­herra í lok árs 2014. Mynd: Birgir Þór

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra- og auð­linda­ráð­herra, ætlar ekki að bjóða sig fram í næstu Alþing­is­kosn­ingum. Hún segir í sam­tali við Kjarnann að það sé tími til kom­inn að ein­hver yngri taki við þeim málum sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur verið að vinna að.

„Það er auð­vitað sterk löngun í mér að fram­fylgja sjálf okkar góðu málum," segir Sigrún. „En ég held að aldur og fyrri störf segi mér að nú sé komið gott."

Sigrún hefur verið umhverfis- og auð­linda­ráð­herra fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn síðan 31. des­em­ber 2014.

„Það fer vissu­lega um mig fiðr­ingur þegar ég hugsa til þess að fara í kosn­inga­bar­áttu með öll okkar góðu mál," segir hún. „En nú held ég að þetta sé komið gott hjá mér."

Sigrún hefur verið þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður síðan árið 2013. Hún var vara­þing­maður Reyk­vík­inga mars til apríl 1980 og apríl til maí 1982. Sigrún var þing­flokks­for­maður fram­sókn­ar­manna árin 2013 til 2015.

Forseti Alþingis hættir líka í haust

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, til­kynnti um helg­ina að hann ætl­aði að hætta á þingi í kom­andi kosn­ingum. Einar hefur setið á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í 25 ár.

Einar sagð­ist hafa tekið þessa ákvörðun með fjöl­skyldu sinni eftir vand­lega íhug­un. Hann hafi fengið mikla hvatn­ingu und­an­farna daga og vikur um að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Hann sé ákaf­lega þakk­látur fyrir þann hlý­hug og traust en það hafi ekki breytt nið­ur­stöðu hans um að hætta.

„25 eru drjúgur tími í starfsævi hvers manns. Tíu sinnum hef ég tekið þátt í kosn­inga­bar­áttu í sæti þing­manns eða vara­þing­manns. Því tel ég tíma­bært að láta nótt sem nemur og gefa ekki kost á mér til end­ur­kjör­s,“ skrif­aði Ein­ar á Facebook síðu sína á laug­ar­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár