Forseti Alþingis hættir á þingi í haust

Einar K. Guð­finns­son ætlar að hætta á þingi eftir 25 ára setu þar.

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að bjóða sig fram til þings á ný. Þetta til­kynnti hann í færslu á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu.

Einar segir að hann hafi tekið þessa ákvörðun með fjöl­skyldu sinni eftir vand­lega íhugun. Hann hafi fengið mikla hvatn­ingu und­an­farna daga og vikur um að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Hann sé ákaf­lega þakk­látur fyrir þann hlý­hug og traust en það hafi ekki breytt nið­ur­stöðu hans um að hætta. 25 ár séu liðin frá því að hann tók fyrst sæti sem aðal­maður á Alþingi. „25 eru drjúgur tími í starfsævi hvers manns. Tíu sinnum hef ég tekið þátt í kosn­inga­bar­áttu í sæti þing­manns eða vara­þing­manns. Því tel ég tíma­bært að láta nótt sem nemur og gefa ekki kost á mér til end­ur­kjörs,“ skrifar Einar.

Hann segir að það sé ánægju­legt að finna að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé í sókn á ný, þótt sann­ar­lega hafi gefið á bát­inn upp á síðkastið.

„Nú er komið að tíma­mótum í lífi mínu. Beinni þátt­töku minni í stjórn­málum lýkur senn. Við tekur nýtt tíma­bil sem ég veit ekki hvað muni bera í skauti sínu. Það leiðir tím­inn einn ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár