Norska ríkisstjórnin kynnti 1.340 milljarða björgunarpakka

Norska rík­is­stjórnin hefur sett saman risa­pakka til að styðja ann­ars vegar við stór­fyr­ir­tæki með kaupum á skulda­bréfum þeirra og hins vegar með því að veita ábyrgðir fyrir lánum til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.

Forsvarsmenn norsku ríkisstjórnarinnar kynntu aðgerðirnar í kvöld.
For­svars­menn norsku rík­is­stjórn­ar­innar kynntu aðgerð­irnar í kvöld. Mynd: Skjáskot/NRK

Erna Solberg for­sæt­is­ráð­herra Noregs og Jan Tore Sanner, fjár­mála­ráð­herra lands­ins, kynntu í kvöld pakka upp á að minnsta kosti 100 millj­arða norskra króna, sem eru um 1.340 millj­arðar íslenskra króna, sem not­aður verður til að styðja við norsk fyr­ir­tæki vegna áhrifa sem þau verða fyrir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Áætlunin sem norska rík­is­stjórnin kynnti er tví­þætt. Annars vegar verða fjár­mun­irnir not­aðir til að kaupa skulda­bréf af stærri fyr­ir­tækjum upp að sam­tals 50 millj­örðum norskra króna.

Hin leiðin snýst um að norska ríkið ætlar að veita ábyrgðir fyrir lánum í bönkum fyrir lítil og milli­stór fyr­ir­tæki svo þau geti fengið fyr­ir­greiðslu til að kom­ast í gegnum það ástand sem nú er uppi. Með þessu ættu fyr­ir­tækin að geta tryggt sér laust fé til að lifa af. Þessi leið nær til þeirra fyr­ir­tækja sem bankar meta sem svo að séu arð­bær til lengri tíma lítið, en að gætu jafn­vel lent i gjald­þroti að óbreyttu vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla kór­ónu­veirunnar og aðgerðir ríkja heims vegna hennar eru að hafa á allt efna­hags­kerfið.

[adspot]Norsk stjórn­völd hafa heitið 50 millj­örðum norskra króna í þessa leið hið minnsta, en hafa gefið það út að til greina komi að auka við þá fjár­hæð ef með þarf.

Solberg sagði að rík­is­stjórnin væri til­búin að gera það sem til þyrfti og eyða eins miklum pen­ingum og nauð­syn­legt væri til að tryggja stöðu norska hag­kerf­is­ins, aðstoða atvinnu­lífið og tryggja störf.

Þegar hafði verið greint frá því að norsk fyr­ir­tæki gætu frestað greiðslu skatta og gjalda til 15. maí.

Mun lengra gengið en það sem hefur verið kynnt hérlendis

Aðgerðir norsku rík­is­stjórn­ar­innar ganga mun lengra en t.d. þær aðgerðir sem hafa verið kynntar hér­lendis til að aðstoða atvinnu­lífið. Stærsta aðgerðin hér hefur falið í sér að veita frest á greiðslu helm­ings opin­berra gjalda, sem eru á gjald­daga á morgun, fram í apríl. Þá sam­þykkti rík­is­stjórnin á föstu­dags­kvöld frum­varp Ásmundar Ein­ars Daða­son­ar, félags- og barna­mála­ráð­herra, sem felur í sér breyt­ingar á lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og lögum um Ábyrgð­ar­sjóð launa, vegna sér­stakra aðstæðna á vinnu­mark­að­i.

Í frum­varp­inu felst að þegar atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­anda koma föst laun launa­manns ekki sjálf­krafa til skerð­ingar á fjár­hæð atvinnu­leys­is­bóta, enda hafi starfs­hlut­fall verið lækkað hlut­falls­lega um 20 pró­sent hið minnsta og 50 pró­sent hið mesta. Heild­ar­greiðslur til launa­fólks munu ekki geta numið hærri fjár­hæð en 80 pró­sent af með­al­tali heild­ar­launa laun­þega á síð­ustu þremur mán­uðum fyrir minnkað starfs­hlut­fall, og eigi meira en 650 þús­und krónum í heild­ina.

[links]Á þriðju­dag hafði íslenska rík­is­stjórnin kynnt alls sjö aðgerðir sem ráð­ast ætti í til að takast á við aðstæð­urn­ar. Ein þeirra var að fresta með ein­hverjum hætti greiðslu opin­berra gjalda, en sú leið var ekki útfærð með neinum hætti á þeim blaða­manna­fundi, né í þeim til­lögum sem birtar voru opin­ber­lega í kjöl­far hans. En hún leit síðan dags­ins ljós eins og greint er frá hér að ofan.

Í þeim pakka voru líka aðgerðir sem þegar höfðu verið kynnt­ar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra.

Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Þar var hins vegar líka greint frá því að fyr­ir­tækjum sem lenda í tíma­bundnum rekstr­­ar­örð­ug­­leik­um ­vegna tekju­­falls verði veitt svig­­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur nið­ur. Hann hefur skilað rúm­lega einum millj­arði króna í tekjum á und­an­förnum árum en fyrir liggur að gistin­átta­skatt­ur­inn, sem er 300 krónur á hverja selda gistinótt, mun hvort eð er skila mun minna í tekjur fyrir rík­is­sjóð ef ferða­menn eru ekki að koma til lands­ins.

Þá greindi rík­is­stjórnin frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­­stæður skap­­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­­an­lands.“

Hún ætl­aði einnig að eiga „virkt sam­tal“ um hvernig bankar eigi að taka á stöðu fyr­ir­tækja sem geta ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðsl­ur, eins og launa­greiðsl­ur, hefur verið í gangi en engin nið­ur­staða kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til standi að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækj­um“ í gegnum þann kúf sem framundan er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár