Búast við því að hver skammtur af bóluefni fyrir Íslendinga muni kosta fjórar evrur

Rík­is­stjórnin hefur farið fram á að fá 400 millj­óna króna við­bót­ar­heim­ild til að kaupa bólu­efni gegn COVID-19 á fjár­auka­lögum. Þá vill hún fá hálfan millj­arð króna til að greiða fyrir dreif­ingu bólu­efnis til þró­un­ar­ríkja.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Í nýfram­lögðu frum­varpi um fjár­auka­lög er lögð til 400 milljón króna fjár­heim­ild til rík­is­sjóðs vegna kaupa á bólu­efni gegn COVID-19.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að talið sé að ein­stak­lingar þurfi tvo skammta af bólu­efn­inu og að gera þurfi ráð fyrir því að bólu­setja þurfi 75 pró­sent þjóð­ar­innar. Því þurfi um 550 þús­und skammta af bólu­efni og búist er við því að hver skammtur muni kosta um fjórar evrur, eða um 640 krónur á núvirði.

Miðað við þessar for­sendur muni bólu­efnið kostað um 352 millj­ónir króna. Við þá upp­hæð bæt­ist flutn­ings­kostn­aður og önnur gjöld.

Pfizer-bóluefnið mun kosta meira

Í umfjöllun vef­síð­unnar Observer á mánu­dag var til að greint frá því að hver skammtur af bólu­efni Pfizer, sem talið er lík­legt að verði fyrst að koma á markað, muni kosta um 20 Banda­ríkja­dali, 2.680 krónur, í heild­sölu sam­kvæmt því sem fram kemur í samn­ingum þess við banda­rísk stjórn­völd. Bólu­efnið verður þó frítt fyrir þá hópa sem fá það fyrst.

Evr­ópu­sam­bandið und­ir­rit­aði fyrr í þessum mán­uði samn­ing við Pfizer um kaup á 200 milljón skömmtum af bólu­efn­inu, með mögu­leika á kaupum á 100 milljón skömmtum til við­bót­ar. Íslandi er tryggður sami aðgangur að bólu­efnum sem Evr­­ópu­­sam­­bandið semur um og aðild­­ar­­ríkjum sam­­bands­ins.

[adspot]Þar sem heild­­ar­­mann­­fjöldi EES-­­svæð­is­ins nemur rúmum 460 millj­­ónum manna og hver ein­stak­l­ingur þarf tvo skammta af bólu­efn­inu má búast við að allt að þriðji hver íbúi svæð­is­ins verði bólu­­sett­­ur. Af þeim væru 120 þús­und Íslend­ing­­ar.

Slíkur fjöldi væri þó ekki nægur til að mynda hjarð­ó­­næmi gegn veirunni hér á landi, en heil­brigð­is­ráðu­­neytið hefur áður gefið að út að 550 þús­und skammta þyrfti til að það mynd­ist. Bólu­efnið frá Pfizer dugir því ein­ungis fyrir tæpum helm­ingi af því.

Aðgangur að öðrum bóluefnum líka tryggður

Moderna, hitt fyr­ir­tækið sem hefur þróað bólu­efni með allt að 95 pró­sent virkni gegn COVID-19, mun selja hvern skammt til rík­is­stjórna á tíu til 50 Banda­ríkja­dali, 1.340 til 6.700 krónur, sam­kvæmt því sem for­stjóri Moderna, Stephen Bancel, sagði við þýska dag­blaðið Welt am Sonntag nýverið. Banda­ríkin hafa samið um að fá skammta á 15 Banda­ríkja­dali, 2.010, og Evr­ópu­sam­bandið er í samn­inga­við­ræðum um að kaupa skammt­inn á verði sem er undir 25 Banda­ríkja­dölum, 3.350 krónur.

AstraZeneca, sem til­kynnti nýverið að bólu­efni þess væri með allt að 90 pró­sent virkni en þurfti svo að draga í land og und­ir­gang­ast frek­ari rann­sóknir, mun selja sitt bólu­efni á undir fjóra Banda­ríkja­dali, um 536 krónur, skammt­inn.

Evr­ópu­sam­bandið hefur skrifað undir kaup­samn­ing um 400 milljón skammta frá AstraZeneca. Í fyrri samn­ingum hefur sam­bandið lýst því yfir að bólu­efn­unum verði dreift á öll aðild­ar­ríki þess með til­liti til mann­fjölda, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur einnig til­kynnt að aðild­ar­ríki EES-svæð­is­ins fái sama aðgang að þeim, þar á meðal Ísland.

Hálfur milljarður í að dreifa bóluefni til þróunarríkja

Í fjár­auka­laga­frum­varp­inu er líka lagt til að fjár­heim­ildir til þró­un­ar­sam­vinnu verði auknar um 500 millj­ónir króna. Sú hækkun skýrist alfarið af fram­lagi Íslands til þró­unar og dreif­ingar bólu­efnis við COVID-19 til þró­un­ar­ríkja, í sam­ræmi við ákvörðun rík­is­stjórnar lands­ins þess efnis í júní síð­ast­liðnum.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir: „Ísland hefur líkt og nágranna­ríkin, þ.m.t. Norð­ur­löndin, Bretland og Þýska­land, talað fyrir mik­il­vægi alþjóð­legrar sam­vinnu um þróun bólu­efnis og jafns aðgengi ríkja óháð greiðslu­getu þeirra með það að leið­ar­ljósi að tryggja öllum jarð­ar­búum aðgengi, jafnt þró­un­ar­ríkj­anna sem þró­aðri ríkja. Bæði for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra hafa áréttað að bólu­efni eigi að vera fyrir alla og hafa nor­rænu utan­rík­is­ráð­herr­arnir m.a. skrifað grein um mik­il­vægi slíks sam­starfs og hlut­verks Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO), Alþjóða­ó­næm­is­að­gerða­sjóðs­ins (GAVI) og sam­taka um nýsköpun vegna við­bún­aðar við far­sóttum (CEPI). Á fjar­fundi á vegum Alþjóða­ó­næm­is­að­gerða­sjóðs­ins 4. júní sl. hét for­sæt­is­ráð­herra að leggja sjóðnum og sam­tökum um nýsköpun vegna við­bún­aðar við far­sóttum til 500 m.kr. vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar. Þar af renna 250 m.kr. til sam­tak­anna til þró­unar bólu­efna en hinar 250 m.kr. renna til Alþjóða­ó­næm­is­að­gerða­sjóðs­ins sem sér um for­kaups­rétt og dreif­ingu bólu­efnis til þró­un­ar­ríkja. Hvort tveggja fellur undir sam­starfs­verk­efni um að hraða aðgengi að bólu­efni (COVAX) sem er í sam­starfi fram­an­greindra aðila í bar­átt­unni gegn COVID-19.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár