Borgin borgar hátt í hálfan milljarð til að koma Borgarlínu í gegnum Knarrarvog

Reykja­vík­ur­borg ætlar að greiða 460 millj­ónir fyrir fast­eignir fyr­ir­tækis við Knarr­ar­vog 2, fyrir teng­ingu Borg­ar­línu í gegnum Voga­hverfið. Borgin er einnig að semja við Barna­vina­fé­lagið Sum­ar­gjöf um land­skika undir Borg­ar­línu handan Sæbrautar.

Reykjavíkurborg kaupir fasteignir Nýju sendibílastöðvarinnar á lóðinni við Knarrarvog 2, sem hér er merkt í gulu, á næstum hálfan milljarð, undir legu Borgarlínu.
Reykja­vík­ur­borg kaupir fast­eignir Nýju sendi­bíla­stöðv­ar­innar á lóð­inni við Knarr­ar­vog 2, sem hér er merkt í gulu, á næstum hálfan millj­arð, undir legu Borg­ar­línu. Mynd: Skjáskot úr borgarvefsjá

Reykja­vík­ur­borg ætlar sér að kaupa fast­eignir Nýju sendi­bíla­stöðv­ar­innar við Knarr­ar­vog 2 til þess að tryggt verði að hægt verði að nýta lóð­ina undir fyr­ir­hug­aða legu Borg­ar­línu. Kaupverð sem samn­ingar hafa náðst um nemur 460 millj­ónum króna og hefur hlut­hafa­fundur Nýju sendi­bíla­stöðv­ar­innar sam­þykkt sölu á eign­unum fyrir sitt leyti.

Þessi upp­kaup borg­ar­innar voru til umfjöll­unar á fundi borg­ar­ráðs í gær og sam­þykkt af fjórum full­trúum meiri­hlut­ans gegn atkvæðum þriggja full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­ráði. Málið verður því rætt frekar í borg­ar­stjórn á næst­unni og tekið þar til loka­af­greiðslu.

Verðmat fasteignasala á bilinu 330-345 milljónir

Kaup­verðið sem borgin hefur náð sam­komu­lagi um er sem áður segir 460 millj­ónir króna, en tveir fast­eigna­salar sem fram­kvæmdu verð­mat á fast­eign­unum fyrir borg­ina komust að þeirri nið­ur­stöðu að mark­aðs­verð lóð­ar­innar væri öllu lægra, eða á bil­inu 330-345 millj­ónir króna.

Samn­ingateymi á vegum borg­ar­innar virð­ist þannig hafa þurft að teygja sig nokkuð langt yfir mark­aðs­verðið til að fá Nýju sendi­bíla­stöð­ina til þess að sam­þykkja sölu á fast­eignum sínum í Knarr­ar­vogi.

Stefán Búason, stjórn­ar­for­maður og einn rúm­lega hund­rað hlut­hafa Nýju sendi­bíla­stöðv­ar­innar, segir við Kjarnann að mis­mikil ánægja hafi verið á meðal hlut­hafa með söl­una, ein­hverjir séu ánægðir með þessa nið­ur­stöðu en aðrir ekki.

Spurður út í kaup­verðið segir hann ekki hægt að horfa bara á fer­metra­verðið sem borgin sé að greiða, þar sem Nýja sendi­bíla­stöðin fái ekki aðra lóð í Reykja­vík­ur­borg undir sína starf­semi.

Því megi líta svo á að borgin sé að greiða hlut­höfum félags­ins „miska­bætur“ umfram mark­aðs­verð fast­eign­anna í þessum við­skiptum.

Í umsögn ann­ars fast­eigna­sal­ans sem verð­mat eign­ina segir að lóðin hafi ein­staka stað­setn­ingu. Hún sé ein­stak­lega stór og rúm­góð athafna­lóð sem vart eigi sér hlið­stæðu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sé mik­ils virði fyrir fyr­ir­tækið sem þar er með starf­semi.

Bæði borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks og áheyrn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins gagn­rýndu að greitt væri yfir­verð fyrir lóð­ina, í bók­unum á fundi borg­ar­ráði. Í bókun Sjálf­stæð­is­manna sagði sömu­leiðis að það skyti skökku við að borgin væri að kaupa þessa eign þar sem mál­efni Borg­ar­lín­unnar væru í sér­stöku félagi, Betri sam­göngum ohf.

[adspot]

„Fyr­ir­liggj­andi er verð­mat tveggja aðila sem er langt fyrir neðan það kaup­verð sem liggur fyrir fund­inum. Hér er því verið að greiða yfir­verð fyrir eign sem á að rífa undir borg­ar­línu. Rétt er að benda á að þessi „fjár­fest­ing“ er ekki á fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar,“ sagði í bókun full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks.

Í grein­ar­gerð eigna­skrif­stofu borg­ar­innar vegna kaupanna segir að gert verði ráð fyrir kaup­unum innan gild­andi fjár­fest­ing­ar­á­ætl­unar.

Samningaviðræður við eiganda leikskólalóðar handan Sæbrautar

Til við­bótar við þessi áform­uðu upp­kaup borg­ar­innar vegna Borg­ar­línu í Knarr­ar­vogi er Reykja­vík­ur­borg einnig í við­ræðum við lóð­ar­hafa handan Sæbraut­ar­innar um land til þess að koma Borg­ar­línu fyrir.

Við Suð­ur­lands­braut 75 á Barna­vina­fé­lagið Sum­ar­gjöf lóð og fast­eignir leik­skól­ans Steina­hlíðar, sem rek­inn er af Reykja­vík­ur­borg.

Þar er þó ekki stefnt á upp­kaup, heldur hefur samn­inga­fólk borg­ar­innar verið í við­ræðum við full­trúa Sum­ar­gjafar um breyt­ingar á lóða­mörkum.

Kristín Hagalín Ólafs­dóttir, stjórn­ar­for­maður Sum­ar­gjafar, útskýrir fyrir blaða­manni Kjarnans að end­an­leg nið­ur­staða liggi ekki fyrir í þeim við­ræðum, en að rætt hafi verið um að borgin taki til sín um 5.000 fer­metra land­bita af lóð­inni og bæti Sum­ar­gjöf það upp með því að láta sam­svar­andi land­skika norðan núver­andi lóðar í stað­inn.

Hún segir horft til þess að það land verði skipu­lagt sem grænt svæði fyrir börnin á leik­skól­anum og aðra borg­ar­búa. Ekki séu áform um upp­bygg­ingu fast­eigna á lóð­inni af hálfu Sum­ar­gjafar, nema ef til vill eins leik­skóla­hús­næðis til við­bótar.

„Það eru hug­myndir um að byggja þarna upp virki­lega skemmti­legt svæði fyrir borg­ar­bú­ana og það er það sem okkur langar að gera,“ segir Kristín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár