Flokkarnir auka útgjöldin til Facebook á lokametrunum

Dagana 14.-20. sept­em­ber vörðu Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins mestu fé í að koma aug­lýs­ingum sínum á fram­færi á Facebook og Instagram. Allir flokkar virð­ast vera að auka útgjöld sín á þessum miðlum á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar.

Flokkarnir hafa aukið útgjöld sín vegna auglýsinga á Facebook allnokkuð að undanförnu.
Flokk­arnir hafa aukið útgjöld sín vegna aug­lýs­inga á Facebook all­nokkuð að und­an­förnu. Mynd: Bára Huld Beck

Á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar hafa flokk­arnir flestir aukið nokkuð við aug­lýs­inga­kaup sín á sam­fé­lags­miðl­unum Facebook og Instagram. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins hafa varið mestu til aug­lýs­inga á miðl­unum tveimur þegar horft er til dag­anna 14.-20. sept­em­ber.

Á þessum sjö dögum greiddi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn alls rúm­lega 1,6 milljón króna í aug­lýs­ingar á miðl­unum í gegnum hinar ýmsu síður sem flokk­ur­inn, kjör­dæma­fé­lög hans og fram­bjóð­endur halda úti og Flokkur fólks­ins tæp­lega einni og hálfri milljón króna. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr aug­lýs­inga­banka Facebook varði flokk­ur­inn 357 þús­und krónum í aug­lýs­ingar þann 19. sept­em­ber.

Sam­fylk­ingin varði á þessu sjö daga tíma­bili rúm­lega 1,1 milljón á miðl­unum tveimur sem eru í eigu Facebook-sam­steypunnar, Framsókn rúm­lega milljón og Mið­flokk­ur­inn hátt í milljón, en aðrir flokkar lægri upp­hæðum í að koma sínum áherslum inn á skjái kjós­enda.

Miðflokkurinn með 3,4 milljóna útgjöld á 30 dögum

Þegar horft er á und­an­far­inn mánuð, eða dag­ana 22. ágúst til 20. sept­em­ber, hefur Mið­flokk­ur­inn varið meira fé en allir aðrir flokkar til aug­lýs­inga á miðl­unum tveimur, rúm­lega 3,4 millj­ónum króna. Flokkur fólks­ins kemur næstur með rúmar þrjár millj­ónir og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er skráður greið­andi aug­lýs­inga í aug­lýs­inga­banka Facebook fyrir alls um 2,8 millj­ónir á þessu tíma­bili.

Athygli vekur að Mið­flokk­ur­inn er með marg­falt fleiri aug­lýs­ingar en flestir aðrir flokkar í aug­lýs­inga­safni Facebook þessa dag­ana, eða alls tæp­lega fimm­hund­ruð. Margar þeirra eru ein­faldar myndir með merki flokks­ins og slag­orðum eða öðrum skila­boðum frá flokknum.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og kjör­dæma­fé­lög flokks­ins hafa svo keypt aug­lýs­ingar á Facebook fyrir rúmar tvær millj­ónir króna og að auki eru odd­vitar flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur búnir að kaupa aug­lýs­inga fyrir meira en 600 þús­und krónur til við­bótar.

[adspot]

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra er þar mun umsvifa­meiri en Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en hann hefur greitt Facebook 519 þús­und krónur fyrir birt­ingar á þessum 30 dögum á meðan að Lilja hefur varið rúmum hund­rað þús­und krónum. Ásmundur Einar er í sér­flokki þegar kemur að útgjöldum ein­stakra fram­bjóð­enda vegna aug­lýs­inga á Facebook und­an­far­inn mánuð, en hann er að sækj­ast eftir þing­sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, þar sem Framsókn á engan þing­mann í dag.

Aðrir flokkar eru með minni útgjöld und­an­farna 30 daga en virð­ast þó flestir vera að setja tölu­vert fé í aug­lýs­ingar á Facebook og Instagram núna á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár