Ásmundur Einar borgaði langmest allra oddvita í auglýsingar á Facebook

Facebook-síða Ásmundar Einars Daða­sonar hefur greitt miðl­inum rúma hálfa milljón í aug­lýs­inga­kostnað á síð­ustu 90 dögum. Þetta er rúm­lega tvö­falt meira en sam­an­lögð útgjöld allra odd­vita allra flokk­anna á Facebook á sama tíma.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason, félags­mála­ráð­herra og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi Norður, greiddi rúmar 540 þús­und krónur í aug­lýs­inga­kostnað í gegnum fram­boðs­síðu sína á Facebook frá 15. júní til 12. sept­em­ber. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum um aug­lýs­inga­kostnað fram­bjóð­enda sem Facebook heldur utan um.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Facebook borg­uðu 19 af 60 odd­vitum þeirra stjórn­mála­flokka sem bjóða sig fram í kom­andi kosn­ingum fyrir aug­lýs­ingar á miðl­inum á tíma­bil­inu. Af þessum 19 fram­bjóð­endum greiddu 16 þeirra að með­al­tali tæpar 15 þús­und krónur í aug­lýs­inga­kostnað, en eng­inn þess­ara 16 greiddi hærri upp­hæð en 30 þús­und krónur.

Nokkur munur er á aug­lýs­inga­kostn­aði odd­vita eftir flokkum, en eng­inn odd­viti í Flokki fólks­ins, Sós­í­alista­flokknum eða Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokknum greiddi fyrir aug­lýs­ingu á Facebook. Sömu­leiðis greiddu odd­vitar VG sam­an­lagt um 12 þús­und krónur í aug­lýs­inga­kostnað á miðl­inum, en útgjöld odd­vita Pírata nam 14 þús­und krónum.

Oddvitar Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu aftur á móti næst­mest allra flokka í aug­lýs­inga­kostnað á Facebook, en sam­an­lögð útgjöld þeirra á tíma­bil­inu nam 80 þús­und krónum. Þar voru hæst aug­lýs­inga­út­gjöld Guðlaugs þórs Þórð­ar­sonar í Reykja­vík Norður og Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, en þau námu rúmum 28 þús­und krónum hvor um sig.

Aug­lýs­inga­út­gjöldin voru þó lang­hæst á meðal odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins, en sam­tals námu þau rúmum 667 þús­und króna á tíma­bil­inu. Þessi mikli kostn­aður er fyrst og fremst vegna útgjalda Ásmundar Einars, en hann er tvö­falt meiri en kostn­aður allra hinna odd­vit­anna til sam­ans. Þar að auki greiddi Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, mennta­mála­ráð­herra og odd­viti flokks­ins í Reykja­vík Suður, rúmar 45 þús­und krónur á tíma­bil­inu og Ingi­björg Ólöf Isaksen, sem er odd­viti Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, greiddi svo rúmar 35 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár