Sviðin jörð eftir stríðið gegn fíkniefnum

Rúmlega 64 þús­und manns lét­ust úr of stórum skammti fíkni­efna í Banda­ríkj­unum í fyrra. Árang­ur­inn af „stríð­inu gegn fíkni­efnum“ hefur verið væg­ast sagt hörmu­legur. Stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, UNODC, boðar meiri áherslu á for­varnir og með­ferðir.

Ég er skráður á póst­lista minn­ing­ar­sjóðs um Layne Staley, sem var söngv­ari og for­sprakki hljóm­sveit­ar­innar Alice In Chains. Sjóð­ur­inn heitir Layne Staley Memorial Fund, og var stofn­aður eftir að söngv­ar­inn lést, ein­angr­aður og yfir­gef­inn, 5. apríl 2002. Hann hefur í seinni tíð einkum verið nýttur til að styrkja fjöl­skyldur fíkla á Seattle svæð­inu, og eru tíð­indum af styrkjum og við­burðum deilt með þús­undum sem skráð eru á póst­lista sjóðs­ins.

Staley var sprautu­fík­ill undir það síð­asta og lést úr of stórum skammti fíkni­efna. Móðir hans, Nancy McCallum, barð­ist fyrir son sinn og reyndi að hjálpa honum, en sú rimma tap­að­ist að lokum, eins og svo oft áður þegar fíklar finna ekki lækn­ingu.

Barðist í stríði

Á minn­ing­ar­tón­leikum um Staley í ágúst síð­ast­liðnum, var þess minnst að rúm fimmtán ár væru frá því að þessi óvenju­legi og hæfi­leik­a­ríki söngv­ari lést. Hann hefði orðið fimm­tugur 22. ágúst.

Móðir hans not­aði tæki­færið og tók til máls. Hún lét orðin lítið snú­ast um son sinn, en benti gestum á að hún hefði barist í „stríð­inu gegn fíkni­efnum“ og þekkti sárs­auk­ann og eymd­ina. En hún sagði það sorg­legra en orð fá lýst, að staðan hefði versnað jafn hratt og mikið og hún hefur gert und­an­farin ár í Banda­ríkj­unum. „Fíknin er eins og hver annar sjúk­dómur,“ sagði Nancy og kall­aði eftir ábyrgð á þeirri skelf­ingu sem ætti sér nú stað í Banda­ríkj­unum. „Áherslan ætti að vera á rann­sóknir og með­ferð,“ sagði hún í við­tali við Seattle Times af þessu til­efni. Hún lýsti líka skelf­ing­unni sem hún upp­lifði þegar lög­reglan kall­aði hana á vett­vang, þar sem sonur hennar fannst lát­inn, í Seattle borg. Lög­reglan sagði henni að fara ekki inn í her­bergið en hún lét það sem vind um eyru þjóta og örmagn­að­ist af sorg við sófann þar sem sonur hennar lá. „Ég ætl­aði alltaf að vera til staðar fyrir börnin mín,“ sagði hún, og rifjar upp ásak­anir og erf­iðar hugs­anir sem fylgdu dauðs­falli hans.

Nancy segir að fíknin sé dauð­ans alvara og að hún muni ekki hætta að berj­ast fyrir fíkla og aðstand­endur þeirra, fyrr en skiln­ingur er orð­inn útdbreidd­ari á alvar­leika máls­ins.

Ótrúlegar tölur

Tölurnar eru ógn­vekj­andi. Í Banda­ríkj­unum lét­ust 64 þús­und manns úr of stórum skammti fíkni­efna, þar af fleiri en 20 þús­und úr lækna­dópi, í fyrra. Um marg­földun er að ræða sé mið tekið af þróun mála síð­ustu 16 ár.

Árið 2000 lét­ust innan við 15 þús­und manns úr of stórum skammti. Meira en fjór­földun á 17 árum er ógn­væn­legt, og hafa ein­stök ríki Banda­ríkj­anna verið að glíma við far­aldur í þessum efnum und­an­farin ár.

Ohio er það ríki sem hefur verið að glíma við hvað alvar­leg­astan vanda. Á árunum 2013 til og með 2016 lét­ust 11,244 úr of stórum skammti í rík­inu, og hefur lög­reglan í land­inu sent frá sér hálf­gerð neyð­aróp vegna þess sem hefur verið að ger­ast. Hvað er til bragðs að taka? er spurt í örvænt­ingu.

Hefðbundin og óhefðbundin efni

Því fer raunar fjarri að vand­inn í Banda­ríkj­unum sé bundin við ein­stök ríki, því alls staðar hefur orðið mikil aukn­ing á dauð­dögum milli ára. Í fyrra lét­ust 44.800 karlar og 19.200 konur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem stjórn­völd í Banda­ríkj­unum tóku saman þegar átaki var hrint úr vör, til að reyna að sporna gegn þess­ari hrika­legu þróun. Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti sagði við það til­efni, að nú þyrftu Banda­ríkja­menn að standa saman. „Þessu verður að linna,“ sagði Trump.

Eitt af því sem nú hefur verið ákveðið að ráð­ast í hratt, um öll Banda­ríkin, er að byggja upp húsa­skjól fyrir fíkla sem búa á göt­unni í borgum. Þar mun í fyrstu verða mögu­legt að fá aðgang að snyrt­ingu en til fram­tíðar er að því stefnt að koma upp meiri heil­brigð­is­þjón­ustu.

Eitt af því sem hefur flækt bar­áttu yfir­valda í Banda­ríkj­unum gegn fíkni­efnum er að fram­boð af teg­undum hefur auk­ist til muna. Þannig hefur lyf­seð­ils­skyldum lyfjum (lækna­dópi) í umferð á svarta mark­aðnum fjölgað gíf­ur­lega og verk­smiðju­fram­leiddum fíkni­efnum sömu­leiðis.

Þá sýna tölur, sem teknar eru saman í skýrslu stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna sem berst gegn fíkni­efnum og skipu­lagðri glæp­a­starf­semi, UNODC, að mikil aukn­ing er nú á heims­vísu þegar kemur að fram­boði á ópíum­lyfjum, eins og heróíni, og síðan kóka­íni. Fram­leiðsla á þessum efnum er að aukast hratt og svo virð­ist sem nýir mark­aðir séu að verða til, ekki síst í Asíu, eftir því sem efna­hags­leg vel­sæld verður meiri. Oft hefur hag­sveiflan í svarta hag­kerf­inu hald­ist í hönd við það sem er að ger­ast uppi á yfir­borð­inu, og má sér­stak­lega nefna fram­boð á kóka­íni því til stuðn­ings.

Fram­leiðsla á því lyfi er að miklu leyti bundin við til­tekin svæði í Kólumbíu, Perú og Bolivíu, þó fleiri staðir í heim­inum séu einnig þar undir. Alls staðar er mikil aukn­ing milli ára, og þrátt fyrir að fjár­munir hafi verið settir í hert­ara landamæra­eft­ir­lit í Banda­ríkj­unum, vopn­aða bar­áttu við fíknefna­bar­óna og lög­reglu­að­gerðir af ýmsum toga, þá hefur lít­ill sem eng­inn árangur náðst. Þvert á móti hafa vanda­málin dýpkað mikið og svarta hag­kerfið stækkað.

Endastöð stríðsins?

Í júní 1971 lýsti Repúblikan­inn Richard W. Nixon, þáver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, yfir stríði gegn fíkni­efnum, og greip til ýmissa aðgerða í því, sem síðan áttu eftir að móta það hvernig yfir­völd í Banda­ríkj­unum hafa nálg­ast bar­átt­una gegn fíkni­efnum.

Aukin harka lög­reglu, skipu­lagðar aðgerðir með öðrum þjóðum, ekki síst í Suður-Ameríku, og þyngri dómar í fíknefna­málum, var eitt­hvað sem fylgdi þess­ari stefnu­mörkun. Gríð­ar­lega hröð fjölgun fanga liggur ekki síst í þessum aðgerðum gegn fíkni­efna­tengdum glæpum, því stór hluti þeirra 2,5 millj­óna sem eru í banda­rískum fang­elsum er þar inni vegna dóma fyrir slíka glæpi.

Ekkert þróað ríkið í heim­inum er neitt nálægt því að vera með svo hátt hlut­fall borg­ara í fang­elsi. Til sam­an­burðar þá er Þýska­land með 78 fanga á hverja 100 þús­und íbúa en Banda­ríkin rúm­lega 700.

Ára­tuga­bar­átta hefur litlum sem engum árangri skilað, öðrum en þeim að upp­lýs­inga­söfnun er orðin ein­fald­ari og betri nú en áður, og þar með kort­lagn­ing á hinu risa­vaxna svarta hag­kerfi. En það blómstrar sem aldrei fyrr, með skelfi­legum afleið­ingum og ótíma­bærum dauðs­föllum.

Í fyrr­nefndri skýrslu UNODC, sem byggir á frum­gögnum frá aðild­ar­ríkjum Sameinu þjóð­anna, má til dæmis greina nákvæm­lega hvar fíkni­efna­fram­leiðsla fer fram og hvaða leiðir efnir fara inn á markað og að end­ingu til neyt­enda, þar af stóru leyti til fíkla.

En hvers vegna er þá ekki fram­leiðsl­unni eytt? Kóka­ín­fram­leiðslan í Kólumbíu eyðilögð og ópíum­svæði í Afganistan her­numin og fram­leiðsla stöðvuð?

Þetta er ekki alveg svo ein­falt, svo ekki sé meira sagt.

Reynslan sýnir að því meiri hörku og krafti sem beitt er gegn skipu­lagðri fram­leiðslu þess­ara „grunn“ efna fíkni­efna­hag­kerf­is­ins, því meiri verður fram­leiðslan á verk­smiðju­fram­leiddum efnum. Þá eykst einnig eft­ir­spurn eftir lækna­dóp­inu, en í mörgum til­vikum eru það miklu sterk­ari og hættu­legri efni fyrir fíkla.

Þetta er raunar talin vera ein ástæða þess að vanda­málin hafa stig­magn­ast í Banda­ríkj­unum á und­an­förnum árum. Svarta hag­kerfið hefur orðið erf­ið­ara við­fangs, skipu­lögð glæp­a­starf­semi hefur náð enn betri tökum á fíkni­efna­mark­aðnum og gert yfir­völdum - og fólki vita­skuld - erf­ið­ara fyrir.

Tímamót

Í inn­gangi að skýrslu UNODC segir að það séu tölu­verð tíma­mót fyrir aðild­ar­þjóðir Sam­ein­uðu þjóð­anna, að hafa sam­mæl­ast um að nú sé þörf á breyttum aðferðum. Þar er helst horft til þess að byrja á öfugum enda, sé mið tekið af stríð­inu gegn fíkni­efnum. Það er að hjálpa fíklum, hlúa að þeim með betri heil­brigð­is­þjón­ustu og reyna að stuðla að enn betri upp­lýs­inga­flæði milli ríkja um hvað er að virka vel og hvað illa.

Þrátt fyrir lít­inn árangur og vax­andi útbreiðslu fíkni­efna þá telur UNODC að til­efni sé til bjart­sýni. „Í þessi skýrslu er sér­stak­lega dregið fram að þörf sé á því að efla for­varnir og þjón­ustu við fíkla,“ segir Yuri Fedotov, fram­kvæmda­stjóri UNODC, í inn­gang­inum.

Nancy McCallum, móðir Layne Staley, sagði í ræðu sinni á fund­inum þar sem minn­ingu Layne Staley var haldið á lofti, að dauðs­föll fíkla væru alvar­leg­asti vandi Banda­ríkj­anna um þessar mundir. Sviðin jörð dauð­ans blasir við hvert sem litið er. Það þyrfti að breyta um aðferðir og hjálpa fíklum með áhrifa­meiri hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár