75 prósent leikmanna vita ekki hvert er hægt að leita vegna ofbeldismála

Rúmlega 75 pró­sent leik­manna í karla- og kvenna­liðum í efstu tveimur deildum knatt­spyrnu á Íslandi sem tóku þátt í könnun Leik­manna­sam­taka Íslands telja sig ekki vita hvert þau geta leitað ef ofbeld­is­mál koma upp.

Fjallað er um könnun Leik­manna­sam­taka Íslands og sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs í til­lögum starfs­hóps KSÍ varð­andi vinnu­lag, við­horf og menn­ingu þegar kemur að kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Könnunin var lögð fyrir leik­menn í vor og heild­ar­nið­ur­stöður verða birtar síðar en í skýrslu starfs­hóps KSÍ sem birt var í gær segir að í óbirtum gögnum könn­un­ar­innar komi þó ýmis­legt í ljós sem skiptir máli varð­andi til­kynn­ingar um ofbeldi, og þá einna helst að yfir 75% svar­enda telja sig ekki vita hvert þau geta leitað ef ofbeld­is­mál koma upp.

Það eitt og sér, að mati starfs­hóps­ins, gefur „til­efni til að bæta veru­lega upp­lýs­inga­gjöf svo iðk­endum sé ljóst að greina eigi frá ofbeldi og að þeir viti ávallt hvert þeir geti leitað og hvert ferli slíkra til­kynn­inga er.“ Mið er tekið af þessu í til­lögum hóps­ins og því snýr ein þeirra sér­stak­lega að því að skýra leiðir og við­brögð við ofbeld­is­málum innan KSÍ og hjá aðild­ar­fé­lögum. Starfs­hóp­ur­inn er einn af fjórum sem KSÍ skip­aði í lok ágúst eftir að umræða um kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni lands­liðs­manna í knatt­spyrnu komu upp á yfir­borðið.

Þolendur geti tilkynnt um brot á heimasíðu félaga

[links] Tillaga hóps­ins er þrí­þætt. Í fyrsta lagi er lagt til að fram­kvæmda­stjóri, bæði innan KSÍ og hvers félags innan KSÍ, verði skil­greindur sem tengiliður við sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála. Hlutverk fram­kvæmda­stjóra verði að halda utan um töl­fræði mála, bregð­ast við til­lögum frá sam­skipta­ráð­gjafa og sinna eft­ir­fylgd með málum.

Í öðru lagi leggur starfs­hóp­ur­inn til að upp­lýs­ingar um til­kynn­ingar um ofbeldi og úrræði fyrir þolendur verði aðgengi­legar á heima­síðum KSÍ og öllum félögum innan þess verði gert skylt að til­kynna á heima­síðum sínum hvert þolendur geta leitað. Félögin skulu bjóða tvær leiðir en önnur úti­loki ekki hina. Þannig geta þolendur fengið að ræða við aðila innan félags ef aðeins er óskað eftir áheyrn og stuðn­ingi. Þolendum gefst einnig kostur á að leita til sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs þar sem mál fara í við­eig­andi ferli, en til­kynn­ingar þangað geta þó bæði verið form­lega og óform­legar. Þá leggur hóp­ur­inn til að forð­ast skuli að leysa mál innan félags eða á skrif­stofu KSÍ.

Í þriðja og síð­asta lagi leggur hóp­ur­inn til að stuðst verði við verk­ferla sem starfs­hópur sam­skipta­ráð­gjafa gefur út. Sú vinna stendur yfir og verður nið­ur­staða hennar kynnt í byrjun næsta árs og miðar að því að gildi fyrir öll íþróta­fé­lög Íþrótta- og ólymp­íu­sam­bans Íslands (ÍSÍ).

Leikmenn upplýsi um kærur vegna brota

Aðrar til­lögur starfs­hóps­ins fel­ast meðal ann­ars í að upp­færa siða­reglur og samn­inga þar sem skýrt skal kveðið á um ofbeld­is­mál. Meðal ann­ars er lagt til að bætt verði við sér grein um ofbeldi í siða­regl­urnar og opna kæru- og áben­ing­ar­leiðir fyrir öll sem starfa á vett­vangi KSÍ varð­andi brot á siða­reglum. Þá er einnig lagt til að leik­manna­samn­ingar inni­haldi ákvæði varð­andi ofbeld­is­brot, meðal ann­ars að leik­menn skuld­bindi sig til að upp­lýsa um kærur vegna kyn­ferðis- og ofbeld­is­brota.

Í til­lög­unum segir einnig að for­ysta KSÍ skuli taka skýra afstöðu gegn ofbeldi og sýni það í verki. Forystan eigi til að mynda að koma sér saman um orða­notkun og orða­lag sem notað er um jafn­rétti og ofbeld­is­mál og að sam­ræmi sé í orða­vali full­trúa, til dæmis í fjöl­miðla­við­tölum. Þá er lagt til að KSÍ geri átak og verði leið­andi á sviði jafn­rétt­is­mála innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar. Átakið felst meðal ann­ars í því að KSÍ og öll félög þessi verði með jafn­rétt­is­á­ætlun og innan hennar aðgerð­ar­á­ætlun sem fylgt er eftir. Þá er lagt til að ráð­ist verði í her­ferð gegn ofbeldi og skað­legri menn­ingu innan knatt­spyrn­unnar.

KSÍ mun ekki breyta samfélaginu en „er í einstakri stöðu til að hafa mikil og jákvæð áhrif“

Starfs­hóp­ur­inn er einn af fjórum innan KSÍ sem skip­aðir voru í haust til að fjalla um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar. Hópinn skip­uðu:

  • Arnar Sveinn Geirsson, for­seti Leik­manna­sam­taka Íslands
  • Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, for­kona jafn­réttis­nefndar Kenn­ara­sam­bands Íslands
  • Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttir, verk­efna­stýra Jafn­rétt­is­skóla Reykja­víkur og full­trúi í stjórn ÍSÍ. Formaður hóps­ins.
  • Sig­ur­björg Sig­ur­páls­dóttir, sam­skipta­ráð­gjafi Íþrótta- og æsku­lýðs­starfs
  • Sigurður Freyr Sig­urðs­son, lög­maður
  • Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, tals­kona Stíga­móta
  • Svandís Anna Sig­urð­ar­dóttir, sér­fræð­ingur í kynja- og hinseg­in­málum hjá Mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu Reykja­víkur

Í loka­orðum skýrsl­unnar segir starfs­hóp­ur­inn að umræðan og við­brögðin sem urðu til þess að þessi hópur var kall­aður saman sýni glöggt hversu mikil áhrif starf­semi KSÍ hefur á sam­fé­lagið og um leið hversu mikla ábyrgð stjórn og starfs­fólk þess ber. „Starfs­hóp­ur­inn hvetur KSÍ til þess að taka þessu ábyrgð­ar­hlut­verki alvar­lega og um leið fagn­andi. Sam­bandið mun ekki eitt og sér breyta sam­fé­lag­inu, en það er í ein­stakri stöðu til að hafa mikil og jákvæð áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár