Lagt upp með að „þétta raðirnar“ á landsfundi fyrir kosningar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í sárum eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar féll. Bjarni hyggst bjóða sig fram til áfram­hald­andi for­ystu í flokknum.

Bjarni Bene­dikts­son hefur ekki í hyggju að hætta sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ætlar að bjóða sig fram til for­ystu­starfa fyrir flokk­inn á lands­fundi hans, sem fer fram 3. til 5. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Í við­tali við Við­skipta­blaðið segir hann að það hafi ekki komið í huga hans, að stíga alveg til hliðar, og ástæðan sé ekki síst sú, að það sé margt óunnið enn í lands­stjórn­inni, og þar hafi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlut­verk.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur þing­flokk­ur­inn rætt það, að mik­il­vægt sé fyrir flokk­inn að ná fljótt að græða sár, „þétta rað­irnar“, eins og einn við­mæl­andi komst að orði, í starfi flokks­ins og und­ir­búa kröft­ugan lands­fund, áður en síðan yrði kosið.

Bjarni sagði á blaða­manna­fundi í Valhöll í dag, þar sem hann gerði atburða­rás­ina æsi­legu að umtals­efni, sem að lokum leiddi til falls rík­is­stjórnar hans, að honum hugn­að­ist best að kjósa í nóv­em­ber. Best væri að hleypa nú kjós­endum að sem fyrst, í ljósi stöð­unnar.

Hann tal­aði enn fremur fyrir því, að nú þyrfti að koma á meiri festu í stjórn­mál­unum og sagði flokka með „djúpar rætur“, sem ekki féllu við í fyrsta vindi, þurfa að koma að lands­stjórn­inni.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, mun á morgun funda með öllu for­ystu­fólki stjórn­mála­flokk­anna á Alþingi, og má búast við því að þá skýrist staða mála á hinu póli­tíska sviði. Leið­togar flokk­anna allra hafa talað fyrir því, að best sé að ganga til kosn­inga sem fyrst, og er því lík­leg­ast að það verði raunin innan ekki svo langs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár