Lífið á tímum kórónuveirunnar: Ætlar að rækta í sér krúttið og læra að fara í splitt

Rit­höf­und­ur­inn Kamilla Ein­ars­dóttir myndi að eigin sögn „skít­falla“ á opin­beru prófi í lífs­leikni svo hennar helsta ráð til þeirra sem leita til hennar út af COVID-19 er að taka alls ekki mark á henni.

Kamilla Einarsdóttir rithöfundur.
Kamilla Ein­ars­dóttir rit­höf­undur. Mynd: Aðsend

Kamilla Ein­ars­dóttir er orð­heppin kona. Hún sló í gegn með bók­inni sinni Kópa­vogskrónikkunni árið 2018 og til stendur að frum­sýna leik­verk sem byggt er á bók­inni í Þjóð­leik­hús­inu á þessu ári.

Hún er í hópi val­in­kunnra Íslend­inga sem Kjarninn leit­aði til og bað um að veita les­endum fimm góð ráð um hvernig hægt er að rækta lík­ama og sál á tímum kór­ónu­veirunnar.

Þó að Kamilla bendi á að hún hafi ekki „hunds­vit“ á COVID-19 tók hún bón Kjarnans vel.

„Ég er ekki með bíl­próf svo það ætti eng­inn að leita til mín með vand­ræði sín við að skipta um dekk á 16 hjóla trukknum sínum,“ segir Kamilla. „Ef ein­hver bæði mig samt um ein­hver ráð við því væri ég vís með að verða svo upp með mér að ég færi bara aða bulla eitt­hvað eins og að segja við­kom­andi drífa sig í að setja upp við­vör­un­ar­þrí­hyrn­ing í hæfi­legri fjar­lægð frá öku­tæk­inu. Segja honum svo að ná í tjakk og að end­ingu myndi ég pott­þétt hvetja hann til að vera ekk­ert að fikta neitt í knastásnum í bílnum.“

Og hún heldur áfram:

„Ekki vegna þess að fólk sé yfir­leitt mjög lík­legt til að fara að eiga við hann þegar það springur hjá því. Knastás er bara eina bíla­orðið sem ég kann svo ég myndi reyna að koma því að til að ganga í augun á þeim sem hefðu gerst svo vit­laus að spyrja mig.“

[adspot]

„Það er nú ekki til neitt opin­bert próf í lífs­leikni sem ég veit um, en ég er nokkuð viss um að ég myndi skít­falla í því ef svo væri.

Svo mitt helsta ráð til þeirra sem myndu leita til mín út af COVID-19 væri að taka alls ekki mark á mér. Við vit­leys­ing­arnir erum yfir það heila allt of til í að gefa alls konar ráð um hluti sem við höfum ekki hunds­vit á.

Að því sögðu er ég samt meira en til í að segja ykkur frá því sem ég er að gera þessa dag­ana til að kom­ast í gegnum þetta. En aðeins tím­inn mun leiða í ljós hversu mikið gagn af þessu verður svo í guð­anna bænum takið þessu öllu með fyr­ir­vara.“

Hér að neðan fara fimm ráð Kamillu.

Lesa Mannfækkun af hallærum eftir Hannes Finnsson

Þetta er sú sjálfs­hjálp­ar­bók sem hefur komið mér í gegnum flestar krísur lífs míns. Allt frá tíma­bundnum blank­heitum upp í sár sam­bands­slit.

Þó að tit­ill­inn á þess­ari bók sé frekar myrkur þá skrif­aði Hannes Finnsson þessa bók eftir móðu­harð­indin á 18. öld með það í huga að hún gæti verið okkur sem búum á Íslandi sem upp­lífg­andi hvatn­ing­ar­rit.

Upp­taln­ing­arnar í þess­ari bók á alls konar harð­indum í kjöl­far eld­gosa, haf­ísa og hung­ursneyða, fá kannski engan til að fara að val­hoppa skríkj­andi út um allan bæ. En það ætti hvort sem er helst eng­inn að gera það. Það er bara ekk­ert töff. Þar að auki er nokkuð ljóst að ef þessi umfjöll­un­ar­efni myndu fá ein­hvern til að fyll­ast ein­hverri kæti, þá væru miklar líkur á að sú mann­eskja ætti við alvar­legan skort á sam­kennd að stríða, sem væri nú ekki á okkur bæt­andi, á þessum síð­ustu og verstu.

En mér finnst þessi bók er alltaf svo góð áminn­ing um mik­il­vægi þraut­seigj­unnar. Við höfum kom­ist í gegnum allan and­skot­ann og við getum það flest líka núna.

Lesa aðrar bækur

Ég vinn á bóka­safni og er rit­höf­undur. Mitt ráð við öllu er að lesa eitt­hvað. Mér finnst skáld­skapur sér­stak­lega hjálp­legur. Í gegnum skáld­skap fáum við að hverfa frá öllum áhyggjum af hugs­an­legum kló­sett­papp­írs­korti, við­bjóðs­legu stroga­nof­fáti og því hvort að draumar okkar um að fá ein­hvern tím­ann að leiða mann­eskju sem við erum ást­fangin af um stræti Rómar og já, hugs­an­lega enn verri og raun­veru­legri áhyggju­efnum sem ég þori ekki einu sinni að nefna strax því það er bara eins og Kaninn segir: Too soon.

Ég myndi hvetja alla til að stökkva núna út í Mál og menn­ingu og kaupa sér bók eða panta nokkrar þannig á net­inu. Hell­ingur af bókum er líka til sem raf- og/eða hljóð­bækur. Ég lofa ykkur að bækur eftir Þórdísi Gísla, Auði Jóns, Guðrúnu Evu Mínervu, Júlíu Margréti Einars (sem er systir mín og þess vegna finnst mér hún extra best), Kristínu Svövu Tóm­as­dóttur, Jónas Reyni Gunnars, Brynjólf Þor­steins, Ástu Fanneyju, Dag Hjartar, Brynju Hjálms og ég gæti haldið svona áfram enda­laust, munu aldrei valda ykkur von­brigðum.

Það er til fárán­lega mikið af bókum sem gera líf okkar betra, nóg í gegnum margar vikur af sótt­kvíum.

Búa eitthvað til

Inter­netið segir að Shakespe­are hafi skrifað leik­ritið Lér kon­ungur í sótt­kví. Ég veit ekki hvort það er satt en það var alla vega nóg af plágum í gangi á hans tíma svo kannski skrif­aði hann öll sín verk meira og minna í sótt­kví.

Ég er núna að lesa þýð­ingu Þórarins Eldjárns á Hamlet sem var að koma út. Þórarinn er eitt besta skáld og íslensku­séní sem þessi þjóð hefur nokkurn tím­ann átt og ótrú­lega dýr­mætt fyrir okkur að hann nenni að standa í því að þýða svona mörg verk Shakespe­ares eins og hann hefur gert.

Í öðru atriði 11. þáttar spyr Hamlet vini sína hvernig þeir hafi það. Rós­in­krans svarar: „Rétt eins og fólk almennt” og Gull­in­stjarni bætir við: „Við erum alsælir með að vera ekki alltaf alsælir. Við erum ekki bein­línis dúsk­ur­inn í húfu ham­ingj­unnar.“

Mér finnst þetta svo ógeðs­lega fyndið og vel orðað. En svona líður senni­lega mörgum okkar þessa dag­ana. Alla vega tengi ég alveg full­kom­lega.

[links]Það er nú kannski ekki hægt að ætl­ast til að við förum öll að skrifa Lé kon­ung á meðan COVID-19 gengur yfir. Enda svosum óþarfi að end­ur­taka það. Mér sjálfri finnst frekar erfitt að skrifa þessa dag­ana. Það er bara svo mikið í gangi út um allt að ég næ ekki alveg ein­beit­ingu. Ég er of mikið að hugsa um spritt, hvað séu um það bil tveir metrar í alvöru og hvernig ég geti opnað allar dyr með hringsparki svo ég þurfi ekki að snerta hurð­ar­húna. Ég vona að það fari nú samt að lag­ast. Ég hef samt reynt að búa eitt­hvað til á hverjum degi. Í gær reyndi ég að kenna mér með hjálp jút­júb að binda pelastikk hnút (á ensku: bow line knot, ef þið viljið prófa líka).

Það eru hverf­andi líkur á að það muni nokkurn tím­ann hjálpa mér að kunna að hnýta svona hnút, en það kostar mig alltaf slatta af ein­beit­ingu að læra eitt­hvað svona rugl og þá get ég ekki velt mér upp úr öðrum áhyggjum rétt á meðan.

Næstu atriði á dag­skrá hjá mér að læra eru að: Teikna risa­eðlu, spila á lútu, fara í splitt og læra svo alla vega einn léttan spila­galdur til að slá um mig með í partíum, hvenær sem ég má nú fara aftur í ein­hver slík.

Það eru kannski ekki miklar líkur á að ég nái að læra að gera þetta allt á fág­aðan og glæsi­legan hátt. En að reyna að læra það mun slátra nokkrum hálf­tímum í lífi mínu og það er alveg nóg.

Ef þetta tekst allt, þá kannski reyni ég svo að gera eins og Shakespe­are og skelli í nokkrar sonn­etur, bara svona til gam­ans. Ég lofa að eng­inn þeirra verður um þessa fjand­ans veiru.

Góður matur

Fullt af veit­inga­stöðum eru farnir að bjóða upp á heim­send­ingu og take-away mögu­leika. Mér finnst að við ættum að vera dug­leg að nýta okkur það. Bæði vegna þess að góður matur mun gera allt þetta hangs okkar heima við svo miklu nota­legra og líka bara til að styðja við bakið á veit­inga­geir­anum sem þarf á því að halda núna. Við viljum hafa nóg af stöðum eftir til að sækja þegar þessu lýkur öllu saman.

Ég borða ekki dýra­af­urðir svo ég mæli til dæmis með því að koma við á Prikinu, allt þar er vegan og rosa­lega gott. Á Prikinu er líka hægt að kaupa stutt­erma­boli og peysur hljóm­sveit­ar­innar Une Misère. En það er líka hart í ári hjá sviðs­li­st­ar­fólki núna, eins og allir vita, og um að gera að reyna að hjálpa þeim með þeim leiðum sem eru í boði þegar við komumst ekki á tón­leika. Ættum að reyna að styrkja fullt af lista­fólki sem við fílum á patreon.com eða kaupa teikn­ingar, boli, lím­miða og bara alls konar.

Une Misère-bol­irnir eru sko alveg svaka­lega mjúkir sem er mik­il­vægt á svona tímum eins og þeim sem við erum að ganga í gegnum. Það á ekk­ert að vera stíft og sker­ast í inn bakspikið á okkur. Þetta eru líka töff bolir, en eins og allir vita er ekki til meiri textíls alslemma en að ein flík nái því að vera: Þægileg, töff og til styrktar góðu mál­efni.

Ég myndi svo koma við á Tíu Sopum á heim­leið­inni. Þar elska ég að fá mér eitt ógeðs­lega gott kombucha. Þar er líka alls konar áfengt sull fyrir þá sem það fíla og nóg af hand­spritti í boði húss­ins eins og barir bæj­ar­ins hafa verið svo dug­legir að skaffa, svo um að gera að hitta áfram vini sína á þannig stöðum án þess að káfa á þeim, blikkum þá bara og sendum fing­ur­kossa án þess að kyssa fing­urna í alvöru samt!

Krúttleg dýr

Það er kannski óþarfi að nefna eitt­hvað sem er jafn aug­ljóst, en krútt­leg dýr gera allt betra. Mín upp­á­halds­dýr á jút­júb eru: Þvotta­birnir, otrar og flóð­hestar. Á Instagram fylgist ég svo grannt með dýraupp­eldi vina minna á sínum hundum, köttum og músum.

Ég styð það alveg ef þið eruð mest að skoða eitt­hvað svalt eins og kennslu­vídjó í morse-kóð­anum, hvernig eigi að búa til mólotov-kok­teila eða smíða þyrlu­spaða úr gömlum Macintosh-dollum. En við þurfum líka að rækta í okkur krúttið, ann­ars er ekk­ert af þessu til neins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár