Lífið á tímum kórónuveirunnar: Í rauninni býr svo mikið skjól í manni sjálfum

Auður Jónsdóttir rithöfundur hvílir sig á rekaviðardrumbi eftir kvöldsund í Krossneslaug á Ströndum.
Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur hvílir sig á reka­við­ar­drumbi eftir kvöldsund í Kross­neslaug á Ströndum. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Það er skot­helt ráð að hlusta á tón­list til að næra sál­ina, segir Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur. Að skapa, sem getur verið allt frá því að búa til mat, teikna mynd eða skrifa sögu, kveikir flæði hið innra sem aftur veitir ham­ingju­til­finn­ingu. „Á meðan hug­ur­inn skapar gleymir maður sjálfum sér og umheim­inum og verður þess í stað fullur af ein­beit­ingu, sköp­un­ar­gleði og orku.“

Auður er í hópi val­in­kunnra Íslend­inga sem rit­stjórn Kjarnans bað um að veita les­endum góð ráð um hvernig hægt er að rækta lík­ama og sál á tímum kór­ónu­veirunnar.

Fimm ráð Auðar fara hér að neðan.

Góður göngutúr

Ráð númer eitt, sem mér finnst allra mik­il­væg­ast, er að fara í góðan göngutúr. Helst tvo á dag, ef maður kemur því við. Bara það að ganga opnar vit­und­ina, fyllir brjóstið af kjarki og súr­efni, svo ekki sé minnst á allt D-vítamínið þegar sólin skín, og heim­ur­inn stækkar úr því að vera tölvu­skjár fullur af ham­fara­f­réttum yfir í enda­lausa sjón­deild.

Ef ég finn fyrir dep­urð eða streitu bregst ekki að göngutúr kippir því í lag. Ef maður býr í Reykja­vík er til dæmis gott að rölta Skerja­fjörð­inn og Ægis­síð­una og/eða út í Gróttu. Svo skilst mér að göngut­úrar séu góðir fyrir ónæm­is­kerfið. Og súr­efn­is­mett­unin er kröft­ugri í úti­lofti en inni.

Hlusta á tónlist

Ráð númer 2 er að hlusta á tón­list. Tónlist getur haft svipuð áhrif á okkur og nánd, hún seður til­finn­ingar og veitir svörun. Svo ef maður þarf að hanga mikið einn, í sótt­kví eða bara því svo lítið er um að vera, þá er skot­helt að hlusta á tón­list. Helst alls­konar tón­list til að fá svörun við alls­konar til­finn­ingum og leyfa hug­anum að flæða.

Stunda sköpun

[links]Ráð númer þrjú er að stunda ein­hvers konar sköpun. List­sköpun getur falist í því að búa til mat, rétt eins og að teikna mynd, búa til vídeó, glamra á gítar eða skrifa sögu. Sköpun getur líka verið að sauma út, halda dag­bók, leira eða föndra, svo margt. Gjörn­ing­ur­inn að búa eitt­hvað til er sköpun. En við að skapa eitt­hvað kviknar flæði innra með manni og flæðið veitir ham­ingju­til­finn­ingu.

Á meðan hug­ur­inn skapar gleymir maður sjálfum sér og umheim­inum og verður þess í stað fullur af ein­beit­ingu, sköp­un­ar­gleði og orku – um leið og sköp­unin er far­vegur til að tjá alls­konar til­finn­ingar sem bær­ast innra með manni, hvort sem maður tjáir þær beint eða óbeint, en ein­beit­ingin veitir hug­arró. Sköpun tendrar góð boð­efni.

Hugleiðsla

Ráð fjögur er hug­leiðsla. Hvort sem sólin skín úti eða ekki, þá getur maður alltaf fundið sól innra með sér. Í raun­inni býr svo mikið skjól í manni sjálfum ef hug­ur­inn fær hvíld frá ert­andi hugs­unum og vit­undin leyfi til að hvíla í sjálfri sér. Á net­inu má finna ótelj­andi hug­leiðslur, þar geta allir fundið eitt­hvað við sitt hæfi. Eins er gott að gera jóga­æf­ingar og hug­leiða síðan. Nú fer að vora og þá er æðis­legt að gera jóga úti og hug­leiða í vor­gol­unni.

Að dansa

Ráð fimm er skot­helt og gæti líka verið fyrsta ráðið. Það er að dansa heima hjá sér. Blasta tón­list og bara dansa. Í dansi tjáir sjálfið sig í gegnum lík­amann og það fær útrás. Bara það að setja góða tón­list á og dansa getur umbreytt þreytu í orku. Ef ég er þreytt og finnst ég vera buguð af verk­efnum og áreiti getur dans í tutt­ugu mín­útur umbreytt líð­an­ina í atorku og gleði. Dans tendrar líka góð boð­efni og styrkir and­lega og lík­am­lega vellíðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár