Lífið á tímum kórónuveirunnar: Sérstaklega róandi að litaraða öppunum í símanum

Bjart­sýn­is­mað­ur­inn Bragi Valdimar Skúlason gefur lands­mönnum fimm góð ráð til að við­halda vellíðan og efla tengslin á meðan sam­komu­bann og „faðm­flótti“ er í gildi.

Bragi Valdimar Skúlason, bjartsýnismaður.
Bragi Valdimar Skúlason, bjart­sýn­is­maður. Mynd: Spessi

Við megum ekki safn­ast saman í stórum hópum og í minni hópum eigum við að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. Kossaflens er alfarið út úr mynd­inni og engum skal heilsa með handa­bandi. Sam­komu­bann og ýmsar aðrar tak­mark­anir eru í gildi á Íslandi á meðan far­aldur nýju kór­ónu­veirunnar gengur yfir.

Þetta eru ekki beint hlý­legar aðgerðir þó nauð­syn­legar séu og því ákvað Kjarninn að biðja nokkra val­in­kunna Íslend­inga að gefa lands­mönnum góð ráð um hvernig hægt er að rækta lík­ama og sál á meðan þetta ástand varir.

Sá sem ríður á vaðið er bjart­sýn­is­mað­ur­inn Bragi Valdimar Skúlason. Hann bendir hér að neðan á fimm atriði sem hægt er að gera á tímum „faðm­flótta“ eins og hann leggur til að enska hug­takið „social distancing“ verði þýtt á íslensku.

Skrúfa frá streyminu

Nú þegar íslenski tón­list­ar­brans­inn getur hvergi komið fram er mik­il­vægt að spila íslenska tón­list og streyma henni með lög­legum leiðum, þannig að aur­inn renni til lista­fólks. Helst kaupa hana eða styrkja upp­töku­verk­efni á net­inu.

Litaraða öppunum í símanum

Þetta er rétta tæki­færið til að taka til í snjall­sím­anum, það er sér­stak­lega róandi að litar­aða öllum öpp­unum á skjá­inn sinn, pínu klikkað vissu­lega, en róandi. Staf­rófs­röð virkar líka.

Fréttaskömmtun

Hættið að end­ur­hlaða allar frétta­síður, alltaf. Það er fínt að skammta sér bara hálf­tíma á dag til að taka við vondu­frétta­skammti dags­ins. Annað er bara mann­skemm­andi. Hlustið frekar á hljóð­bækur, tón­list eða spjallið saman — um eitt­hvað annað en bévít­ans pest­ina.

Spila

Nú er auð­vitað sér­lega góður tími til að setj­ast með fjöl­skyld­unni og spila saman. Það er til enda­laust af frá­bærum borð­spilum. Svo er líka hægt að púsla eða grípa bara spila­stokk­inn. Spila­búð­irnar senda pott­þétt heim, en ég hugsa að Pandemic hljóti að fara að klár­ast úr hill­unum.

Muna góða skapið

Ef þið þurfið endi­lega fréttir, farið þá reglu­lega inn á vef­svæðið Ástæður til að vera í góðu skapi, reasonstobecheerful.world. Það er síða sem lista­mað­ur­inn David Byrne stofn­aði og hefur ein­göngu að geyma góðar, upp­lífg­andi fréttir frá öllum heims­hornum. Mann­bæt­andi dags­skammtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár