Byggingarleyfi komið: Hafnartorg mun rísa

Reykja­vík­ur­borg hefur gefið út bygg­ing­ar­leyfi fyrir reit­inn við Aust­ur­bakka 2. Teikn­ingum Sig­mundar Davíðs af Hafn­ar­torgi var hafnað og munu fram­kvæmdir á upp­runa­legum hug­myndum hefj­ast síðar í apríl.

Reykja­vík Develop­ment ehf. fékk bygg­ing­ar­leyfi 5. apríl síð­ast­lið­inn fyrir reit­inn við Aust­ur­bakka 2. Reit­ur­inn hefur verið gríð­ar­lega umdeildur en nú stendur til að húsa­þyrp­ingin sem fengið hefur nafnið Hafn­ar­torg muni rísa þar. Óvænt útspil fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, hefur verið mikið í umræð­unni en hann vildi að verk­takar myndu hlusta á gagn­rýni á Hafn­ar­torg og end­ur­hanna teikn­ingar. Þessum hug­myndum Sig­mundar Davíðs hefur verið hafnað eins og Stundin greindi frá.

Guðni Rafn Eiríks­son, einn eig­enda Reykja­vík Develop­ment ehf., sem sér um fram­kvæmdir við reit­inn, stað­festir við Kjarnann að bygg­ing­ar­leyfi frá Reykja­vík­ur­borg sé komið og að fram­kvæmdir hefj­ist í mán­uð­inum. 

Sigmundur Davíð með sérstakan áhuga á Hafnartorgi

Fram hefur komið að Sig­mundur Davíð gerði alvar­legar athuga­semdir við útlit bygg­ing­anna. Mynd af teikn­ingu Sig­mundar Davíðs birt­ist í Reykja­vík Viku­blaði en mik­inn mun má sjá á henni og þeim upp­runa­legum hug­myndum sem komið hafa frá PK arki­tekrum og Reykja­vík Develop­ment. 

Í Stund­inni kemur fram að hug­myndum Sig­mundar Davíðs hafi verið hafnað en þær sam­ræmd­ust ekki deiliskipu­lagi. Turninn var of hár á teikn­ingu Sig­mundar Davíðs og sam­kvæmt skipu­lag­inu áttu tvær efstu hæðir húss­ins að vera inn­dregnar en teikn­ing Sig­mundar gerði ekki ráð fyrir því.

Munu leita réttar síns

Kjarninn sagði frá því í jan­úar að í fyrra ákvað Minja­stofnun Íslands, sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neytið, að skyndi­friða hafn­ar­garð sem er á lóð­inni. Lóð­ar­hafar höfðu sagt að frið­lýs­ing á hafn­ar­garð­inum muni að lág­marki valda þeim 2,2 millj­arða króna tjóni. Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra var sett for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og til­kynnti um frið­un­ina. Reykja­vík­ur­borg hafði dregið í efa stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Davíðs til að taka afstöðu til máls­ins, meðal ann­ars vegna greinar sem hann birti um skipu­lags­mál í Reykja­vík í ágúst 2015. Á end­anum náð­ist sátt um að færa hafn­ar­garð­inn á meðan fram­kvæmdir standa yfir en setja hann svo upp aftur. 

Guðni segir að mesti kostn­að­ur­inn sé við að setja upp garð­inn en það þurfti að taka hann í burtu stein fyrir stein. Þeir séu búnir að borga fyrir mesta tjónið en að ekki sé útséð fyrir frekara tjón. Hann stað­festir að Reykja­vík Develop­ment muni leita réttar síns vegna garðs­ins sem mun lík­lega hlaupa á tugum millj­óna.

Stefán Thors, húsa­meist­ari rík­is­ins, telur aftur á móti að Reykja­vík develop­ment geti ekki kraf­ist skaða­bóta vegna fram­göngu rík­is­ins við skipu­lag Hafn­ar­torgs. Þetta kemur fram á frétta­vef RÚV.

Stórt verkefni á vinsælu svæði

Allt í allt eru níu bygg­ing­areitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Reykja­vík Develop­ment ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­unum. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni segir:

„Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­víkur. Samkvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka, 21.400 m2 ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinnu­starf­semi, s.s. versl­anir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla.“

Umdeild tilfærsla forsætisráðuneytis

Kjarninn fjall­aði um til­færslu Minja­stofn­unar í októ­ber 2015. Þar kom fram að á síð­asta þingi voru sam­þykkt lög um vernd­ar­svæði í byggð. Flutn­ings­maður þeirra var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Samkvæmt lög­unum getur for­sæt­is­ráð­herra, en ekki sveit­ar­fé­lög, tekið ákvörðun um vernd byggðar að feng­inni til­lögu sveit­ar­stjórnar eða Minja­stofn­unar Íslands. Minja­stofnun var færð undir for­sæt­is­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs tók við völdum. Hún heyrði áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið. Var þetta gert sér­stak­lega að ósk þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem er mik­ill áhuga­maður um skipu­lags­mál. Minja­stofnun er eina eft­ir­lits­stofnun lands­ins sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neytið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár