Sigmundur Davíð vill að verktakar hlusti á gagnrýni á Hafnartorg og endurhanni

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra telur að þeir sem ætla að byggja upp Hafna­torg í mið­borg Reykja­víkur verði að hlusta á gagn­rýni sem fram hefur komið á verk­efnið og end­ur­hanna reit­inn með hlið­sjón af þeim sjón­ar­miðum. Sig­mundur Davíð hefur sjálfur lagt fram mikla gagn­rýni á fram­kvæmd­ina, sagt hana vega að mið­bænum og því yfir­bragði sem þar er á byggð­inn og kallað fram­kvæmd­ina skipu­lags­slys.

Sig­mundur Davíð segir í Morg­un­blað­inu í dag að ótækt sé að verk­takar geti beðið með að sýna teikn­ingar af fyr­ir­hug­uðum bygg­ingum þangað til rétt áður en ætl­unin er að sam­þykkja útlitið.

Það sé sér­stak­lega mik­il­vægt að breyta þessum vinnu­brögðum þegar upp­bygg­ing í mið­borg Reykja­víkur er ann­ars vegar.

Myndir af þeim húsum sem fyr­ir­hugað er að byggja á Hafn­ar­torgi, norðan Lækj­ar­torgs, birt­ust fyrst í fjöl­miðlum snemma á þessu ári, mán­uði eftir að skipu­lags­yf­ir­völd sam­þykktu fram­kvæmd­ina 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Sig­mundur Davíð telur að þeir sem standa að upp­bygg­ingu Hafn­ar­torgs ættu að hægja á verk­efn­inu og hlusta á gagn­rýni á það.

For­sæt­is­ráð­herra segir að hann hafi miklar skoð­anir á mál­inu og hafi haft þær um nokk­urt skeið. „Það er búið að vera við­var­andi vanda­mál mjög lengi að fólk fær ekki aðgang að þessum upp­lýs­ingum fyrr en það er komið það nálægt fram­kvæmdum að menn leyfa sér, þegar fram koma athuga­semdir, að segja að það sé of seint. Það er frá­leitt fyr­ir­komu­lag. Auðvitað skiptir útlit húsa máli, ekki síður en stað­setn­ingin eða umfangið. Það á sér­stak­lega við mið­bæ­inn, svæði sér­stakrar bygg­ing­ar­listar og sögu. Ég tel mik­il­vægt að menn breyti þessu og það er líka í anda þess sem menn gera kröfu um nú til dags; betri aðkomu almenn­ings að ákvörð­unum, betri upp­lýs­inga­gjöf og gagn­sæi.“

Þetta eru ekki einu deil­urnar sem for­sæt­is­ráð­herra hefur blandað sér í varð­andi fram­kvæmdir á þessum reit. Á síð­asta ári ákvað Minja­stofnun Íslands, sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neytið, að skyndi­friða hafn­ar­garð sem er á lóð­inni. Lóð­ar­hafar höfðu sagt að frið­lýs­ing á hafn­ar­garð­inum muni að lág­marki valda þeim 2,2 millj­arða króna tjóni. Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, var sett for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu og til­kynnti um frið­un­ina. Reykja­vík­ur­borg hafði dregið í efa stjórn­sýslu­legt hæfi Sig­mundar Davíðs til að taka afstöðu til máls­ins, meðal ann­ars vegna greinar sem hann birti um skipu­lags­mál í Reykja­vík í ágúst. Á end­anum náð­ist sátt um að færa hafn­ar­garð­inn á meðan að fram­kvæmdir standa yfir en setja hann svo aftur upp. Áætlaður kostn­aður verk­taka við þá fram­kvæmd er um 500 millj­ónir króna og ætla þeir að sækja þann kostnað til rík­is­sjóðs fyrir dóm­stólum semj­ist ekki um greiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár