Sigrún Magnúsdóttir sett forsætisráðherra í máli hafnargarðarins og ákvað að friða

Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, var sett for­sæt­is­ráð­herra í máli sem snýr að friðun hafn­ar­garðar á Aust­ur­bakka við Reykja­vík­ur­höfn. Hún ákvað sem settur for­sæt­is­ráð­herra að frið­lýsa hafn­ar­garð­inn í heild.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þar segir einnig að for­sæt­is­ráðu­neytið ætli á næst­unni að kalla saman hags­muna­að­ila máls­ins til að kanna hvort ásætt­an­leg lausn finn­ist í mál­inu, „sem tryggir vernd þess­ara merku menn­ing­arminja en stuðlar jafn­framt að því að bygg­ing­ar­á­form á lóð­inni nái fram að ganga í ein­hverri mynd.“

Þá segir for­sæt­is­ráðu­neytið að tvær minjar séu á lóð­inni, ann­ars vegar ból­verk í suð­aust­ur­enda lóð­ar­innar hlaðið árið 1876 og hins vegar umræddur hafn­ar­garður hlað­inn árið 1913. Báðar minjarnar eru eldri en 100 ára og eru því frið­aðar sam­kvæmt lögum. Enginn ágrein­ingur er um aldur ból­verks­ins og því ekki þörf á sér­stakri frið­lýs­ingu vegna þess. Hafn­ar­garð­ur­inn var fluttur fram um sjö metra árið 1928. Sú til­hliðrun ein og sér er ekki talin breyta aldri garðs­ins, enda er um að ræða sama mann­virki.“

Ákveðið að skyndifriða - gríðarlegt tjón að mati lóðarhafa


Minja­stofnun Íslands ákvað að skyndi­friða hafn­ar­garð­inn í síð­asta mán­uði. Lóð­ar­hafar hafa sagt að frið­lýs­ing á hafn­ar­garð­inum muni að lág­marki valda þeim 2,2 millj­arða króna tjóni. Lóð­ar­hafar hafa sagst ætla að sækja það tjón úr hendi Minja­stofn­unar og því myndi það lenda á rík­is­sjóði Íslands verði tjónið stað­fest. Skyndi­frið­unin og nú frið­lýs­ingin setur fram­kvæmdir í upp­nám og kemur í veg fyrir að hægt sé að byggja neð­an­jarðar.

Kjarninn greindi frá því að lög­maður lóð­ar­haf­anna Lands­stólpa geri alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð Minja­stofn­unar og að tjón vegna þess­arar ákvörð­unar væri að lág­marki 2,2 millj­arðar.

Kröfðust þess að Sigmundur viki


Ekki er greint frá því hvers vegna Sigrún Magn­ús­dóttir var sett for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu, en lík­lega er það vegna þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hafði verið sak­aður um van­hæfni í mál­inu. Reykja­vík­ur­borg fór fram á að hann viki sæti þegar ákvörð­unin væri tekin, meðal ann­ars vegna þess að hann hefur tjáð sig um málið.

Stærsta byggingaverkefni til þessa í hjarta Reykjavíkur


Bygg­ing­ar­reit­ur­inn að Aust­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­metrar að stærð og liggur frá Ing­ólfs­garði, yfir Geirs­götu að Tryggva­götu. Lóð­ar­hafar eru Tón­listar- og ráð­stefnu­hús ohf., Situs ehf., Kolufell ehf., Lands­bank­inn og Bíla­stæða­sjóður Reykja­víkur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið hennar, lóð­ina sem Lands­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­húss­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­areit neð­an­jarðar. Sá bygg­ing­areitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­ara á tveimur hæðum með þjón­ustu og bíla­stæðum.

Allt í allt eru níu bygg­ing­areitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Land­stólpar þró­un­ar­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­unum. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni segir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­víkur. Samkvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka, 21.400 m2 ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinnu­starf­semi, s.s. versl­anir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­kvæmd­unum á að ljúka árið 2018 sam­kvæmt áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár