Borgin vill að Sigmundur víki sæti í friðunarmáli og dregur stjórnsýslulegt hæfi hans í efa

Reykja­vík­ur­borg hefur farið fram á að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra víki sæti þegar ákvörðun verður tekin um hvort hafn­ar­garður á lóð við hlið Toll­húss­ins í Reykja­vík verði frið­aður. Borgin dregur í efa stjórn­sýslu­legt hæfi for­sæt­is­ráð­herra til að taka afstöðu til máls­ins, meðal ann­ars vegna greinar sem hann birti um skipu­lags­mál í Reykja­vík í ágúst. Reykja­vík­ur­borg telur einnig að friðun muni hafa í för með sér "stór­kost­legan kostnað fyrir rík­is­sjóð“. Þetta kemur fram í bréfi Krist­bjargar Steph­en­sen borg­ar­lög­manns til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sem sent var í síð­ustu viku, og Kjarninn hefur undir höndum.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­haf­arnir sem um ræðir telji að frið­lýs­ingin muni að lág­marki valda sér 2,2 millj­arða króna tjóni verði hún stað­fest af Sigmundi Davíð. Loð­ar­haf­arnir munu sækja það tjón úr hendi Minja­stofn­unar og því myndi það lenda á rík­is­sjóði Íslands verði tjónið stað­fest. Sig­mundur Davíð hefur til 22. októ­ber að ákveða hvort hann muni stað­festa frið­lýs­ing­una eða ekki.

Byrjaði allt með nýjum lögum

Á síð­asta þingi voru sam­þykkt lög um vernd­ar­svæði í byggð. Flutn­ings­maður þeirra var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. Samkvæmt lög­unum getur for­sæt­is­ráð­herra tekið ákvörðun um vernd byggðar að feng­inni til­lögu sveit­ar­stjórnar eða Minja­stofn­unar Íslands, ekki sveit­ar­fé­lögin sem byggðin er í. Minja­stofnun var færð undir for­sæt­is­ráðu­neytið þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók við völdum. Hún heyrði áður undir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið. Var þetta gert sér­stak­lega að ósk Sig­mundar Davíðs, sem er mik­ill áhuga­maður um skipu­lags- og vernd­ar­mál. Minja­stofnun er eina eft­ir­lits­stofnun lands­ins sem heyrir undir for­sæt­is­ráðu­neytið.

Lögin hafa verið gagn­rýnd harka­lega, meðal ann­ars af Sambandi íslenskra sveita­fé­laga. Halldór Hall­dórs­son, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sagði í vor að frum­varpið stríði gegn skipu­lags­valdi og sjálf­stjórn­ar­rétti sveit­ar­fé­lag­anna, og að minnsta kosti sé farið mjög nálægt því að brjóta ákvæði stjórn­ar­skrár­innar með því.

Þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn ákvað Minja­stofnun að skyndi­friða hafn­ar­garða við Aust­ur­höfn­ina í Reykja­vík. Friðunin gildir í sex vikur og þarf for­sæt­is­ráð­herra að ákveða hvort garð­ur­inn verði frið­lýstur fyrir 22. októ­ber næst­kom­andi.

Heiða Kristín Helga­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, beindi fyrir­spurn til Sig­mundar Davíðs fyrir nokkrum vikum og vildi fá að vita hvort hann hefði haft ein­hverja aðkomu að skyndi­friðun garðs­ins. Fyr­ir­spurn­inni hefur enn ekki verið svarað.

[caption id="attachment_41351" align="alignnone" width="800"] Reit­irnir sem um ræðir eru í hjarta Reykja­víkur og fram­kvæmdir á þeim munu hafa mikið áhrif á brag mið­borg­ar­innar.[/caption]

Kjallari á tveimur hæðum

Lóðin að Aust­ur­bakka 2 er um 55 þús­und fer­metrar að stærð og liggur frá Ing­ólfs­garði, yfir Geirs­götu að Tryggva­götu. Lóð­ar­hafar eru Tón­listar- og ráð­stefnu­hús ohf., Situs ehf., Kolufell ehf., Lands­bank­inn og Bíla­stæða­sjóður Reykja­víkur. Um er m.a. að ræða lóð­ina sem Harpa stendur á, lóð­ina sem lúx­us­hótel á að rísa á við hlið hennar, lóð­ina sem Lands­bank­inn hefur haft hug á að reisa sér höf­uð­stöðvar og lóð­ina við hlið Toll­húss­ins.

Á lóð­inni er gert ráð fyrir bygg­ing­areit neð­an­jarðar. Sá bygg­ing­areitur nær yfir alla lóð­ina. Um er að ræða kjall­ara á tveimur hæðum með þjón­ustu og bíla­stæðum.

Allt í allt eru níu bygg­ing­areitir á Aust­ur­bakka 2. Félagið Land­stólpar þró­un­ar­fé­lag ehf. á tvo þeirra. Í apríl 2015 var tekin fyrsta skóflustunga vegna upp­hafs fram­kvæmda á reit­unum. Í frétt á heima­síðu Reykja­vík­ur­borgar af því til­efni segir: „Fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir eru hluti af stærsta bygg­inga­verk­efni fram til þessa í hjarta Reykja­víkur. Samkvæmt deiliskipu­lagi má byggja á reitum 1 og 2 við Aust­ur­bakka, 21.400 m2 ofanjarðar. Áætlað er að þar verði íbúðir og fjöl­breytt hús­næði fyrir ýmsa atvinnu­starf­semi, s.s. versl­anir, veit­inga­hús, skrif­stofur og þjón­ustu. Auk þess verður byggður bíla­kjall­ari á reitnum sem verður sam­tengdur öðrum bíla­kjöll­urum á lóð­inni, allt að Hörpu. Áætlað að sam­eig­in­legur kjall­ari rúmi um 1.000 bíla“.

Fram­kvæmd­unum á að ljúka árið 2018 sam­kvæmt áætlun.

Skyndifriðun setur framkvæmdir í uppnám

Skyndi­friðun hafn­ar­garð­anna hefur hins vegar sett þær fram­kvæmdir í upp­nám, sér­stak­lega sá nýrri. Hafn­ar­garð­arnir tveir eru nefni­lega á reitum Lands­stólpa. Þessir tveir hafn­ar­garðar, standi þeir frið­aðir, koma bein­línis í veg fyrir að hægt veðri að byggja neð­an­jarðar.

Gamli garð­ur­inn telst sann­ar­lega til forn­leifa, þar sem hann er yfir 100 ára gam­all. Minja­stofnun hafði í ágúst til­kynnt lóð­ar­hafar að hann ætti því að standa en að heim­ilt væri að hylja hann að fullu, sem lóð­ar­hafar sam­þykktu.

Hinn garð­ur­inn, sá nýrri, var reistur 1928 og er því ekki forn­minjar sam­kvæmt 100 ára skil­grein­ing­unni. Umræddur garður stóð auk þess í tíu ár eftir að hann var byggður. Þennan garð stóð til að fjar­lægja. Þrátt fyrir þetta til­kynnti Minja­stofnun um skyndi­friðun alls garðs­ins án afmörk­unar 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Borgin vill að Sigmundur Davíð víki

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­hafar hafi gert alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð Minja­stofn­unar. Þeir segja enn­fremur að ef for­sæt­is­ráð­herra kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að frið­lýsa nýrri garð­inn muni það valda þeim gríð­ar­legu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 millj­arða króna að lág­marki og segj­ast munu sækja það til Minja­stofn­unar ef nýrri garð­ur­inn verður frið­lýstur. Ef Minja­stofnun myndi bera ábyrgð á því tjóni þyrfi að greiða það úr rík­is­sjóði.

Reykja­vík­ur­borg hefur einnig sent athuga­semdir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna skyndi­frið­un­ar­innar. Kjarninn hefur bréf borg­ar­innar, sem borg­ar­lög­maður sendi 9. októ­ber síð­ast­lið­inn, undir höndum. Þar er meðal ann­ars farið fram á að Sig­mundur Davíð víki sæti við með­ferð máls­ins. Borgin dregur í efa stjórn­sýslu­legt hæfi for­sæt­is­ráð­herra til að taka afstöðu til erindis Minja­stofn­unar, m.a. vegna greinar sem hann birti á heima­síðu sinni 27. ágúst síð­ast­lið­inn.

[caption id="attachment_31052" align="alignnone" width="547"] Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að lóð­ar­hafar hafi gert alvar­legar athuga­semdir við máls­með­ferð Minja­stofn­unar. Þeir segja enn­fremur að ef for­sæt­is­ráð­herra kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að frið­lýsa nýrri garð­inn muni það valda þeim gríð­ar­legu tjóni. Þeir meta það tjón á 2,2 millj­arða króna að lág­marki.[/caption]

Í nið­ur­lagi grein­ar­innar, sem fjallar um það sem for­sæt­is­ráð­herra telur ugg­væn­lega þróun í skipu­lags­málum Reykja­víkur, skrif­aði Sig­mundur Davíð: „Forn­leifar sem fund­ust á lóð­inni við hlið Iðn­að­ar­banka­húss­ins verða frið­aðar sem og hafn­ar­garð­ur­inn við hinn enda Lækj­ar­göt­unnar“. Þar er hann að vísa í hafn­ar­garð­anna tvo sem frið­aðir voru. Í bréfi borg­ar­lög­manns segir að það verði að telja „að ráð­herr­ann tjái sig þarna um skoðun sína á friðun hafn­ar­garðs­ins með afger­andi hætti. Í annan stað upp­lýsti for­stöðu­maður Minja­stofn­unar Íslands um það á fundi borg­ar­ráðs 1. októ­ber sl. að for­sæt­is­ráð­herra væri nú þegar búinn að koma að málum á fyrri stigum. Upplýsti for­stöðu­mað­ur­inn um að ráð­herra hefði á fundi í ráðu­neyt­inu síð­ast­liðið sumar fengið kynn­ingu frá stofn­un­inni á því sem komið hefði í ljós við forn­leifa­rann­sóknir á svæð­inu. Ljóst er að sú kynn­ing fór fram um það leyti sem greina má að stefnu­breyt­ing hafi orðið á afstöðu Minja­stofn­unar Íslands í mál­inu“.

Í borg­ar­lög­maður telur, í ljósi þess að Sig­mundur Davíð hafi áður tjáð skoðun sína á friðun hafn­ar­garðs­ins með afger­andi hætti og átt aðkomu að mál­inu að fyrri stigum, þá leiði „öll rök til þess að draga megi í efa stjórn­sýslu­legt hæfi hans til að taka nú afstöðu til máls­ins með vísan til hæf­is­reglna stjórn­sýslu­rétt­ar­ins. Gerir Reykja­vík­ur­borg því þá kröfu að for­sæt­is­ráð­herra víki sæti við með­ferð erindis Minja­stofn­unar Íslands um til­lögu að frið­lýs­ingu hafn­ar­garðs­ins“.

Afstaða Reykja­vík­ur­borgar til frið­unar hafn­ar­garðs­ins er einnig skýrð í bréf­inu. Þar segir að þegar allir fletir máls­ins hafi verið virtir sé ljóst að mati borg­ar­innar að ekki hafi verið nauð­syn­legt að grípa til jafn íþyngj­andi úrræðis og skyndi­friðun garðs­ins sé. Gengið sé mun lengra en nauð­syn­legt sé. „Það er því von Reykja­vík­ur­borgar að ná megi sam­komu­lagi um ásætt­an­lega lausn í mál­inu sem ekki hefði í för með sér veru­legt tjón fyrir þá aðila sem eiga rétt­indi á lóð­inni og stór­kost­legan kostnað fyrir rík­is­sjóð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár