„Fremur ólíklegt“ að COVID-19 hafi verið dánarmein ferðamannsins

Sótt­varna­læknir segir að það sé „fremur ólík­legt“, miðað við þau ein­kenni sem ástr­alskur ferða­maður sem lést á Húsavík í gær hafði, að and­lát hans megi rekja beint til COVID-19. 225 smit hafa greinst á Íslandi til þessa.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir efast um að dán­ar­mein ástr­alsk ferða­manns sem lést á Húsavík í gær hafi verið COVID-19. Þrátt fyrir að veiran sem veldur sjúk­dómnum hafi fund­ist í mann­inum að honum látnum, væri það „fremur ólík­legt miðað við þau ein­kenni sem greint hefur verið frá,“ sagði Þórólfur á blaða­manna­fundi í Skóg­ar­hlíð í dag.

Andlát manns­ins er til rann­sóknar, en hann var á ferð um Ísland með eig­in­konu sinni, þegar veik­indi tóku sig skyndi­lega upp hjá honum. Hann lést skömmu eftir kom­una á heilsu­gæsl­una á Húsavík. Eig­in­kona hans er einnig smituð af COVID-19. Hún er í ein­angrun og 22 heil­brigð­is­starfs­menn nyrðra eru í sótt­kví.

[links]

Tvö­hund­ruð tutt­ugu og fimm manns hafa greinst með COVID-19 smit hér á landi, sam­kvæmt nýj­ustu tölum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum. Þórólfur sagði á upp­lýs­inga­fundi dags­ins að fram­vegis yrðu töl­urnar ein­ungis upp­færðar einu sinni á dag, á vefnum covid.is, alltaf um hádeg­is­bil.

Tuttugu og tvö smit hafa greinst í sýna­tökum Íslenskrar erfða­grein­ingar sem hófust fyrir helgi og er hlut­fall smit­aðra sem þangað koma um 1 pró­sent, sem bendir til þess að lítið smit sé í sam­fé­lag­inu almennt.

[adspot]

Veiru­fræði­deild Land­spít­ala hefur greint 198 smit, en þar eru greind sýni úr þeim sem koma frá áhættu­svæðum erlendis, hafa verið í sótt­kví vegna sam­skipta við ein­stak­linga með stað­fest smit og ann­arra sem sýna ein­kenni COVID-19. Hlutfall sýktra úr þeim hópi er um 10 pró­sent.

Þórólfur greindi frá því að nú væru fjórir sjúk­lingar á Land­spít­ala með stað­fest COVID-19 smit, þar af tveir á gjör­gæslu. Hvorugur þeirra er í önd­un­ar­vél.

Gæti orðið hörgull á veirupinnum á næstunni

Sótt­varna­læknir sagði að fyr­ir­séð væri að það gæti á næst­unni orðið hörgull á veir­upinnum, sem not­aðir eru til að skima fyrir COVID-19. Unnið væri að því að reyna að fá fleiri pinna til lands­ins, en eft­ir­spurnin á heims­vísu væri mjög mikil, eins og gæfi að skilja.

Ekki er þó útlit fyrir að tak­marka þurfi hve mörg sýni séu tekin hér á landi og yfir­völd vilja, að sögn Þórólfs, halda áfram að taka sýni úr stærra mengi en til dæmis bæði Svíar og Danir, sem taka ein­göngu sýni úr þeim sem þurfa að leggj­ast inn á spít­ala vegna ein­kenna.

Þórólfur sagði Íslend­inga vilja halda áfram að „prófa víða“, leita og finna smit­aða, beita sótt­kví, þar sem það væri enn talin væn­leg­asta leiðin til að hefta útbreiðsl­una á þessum tíma­punkti. Það kynni þó að breyt­ast og væri metið dag frá degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár