„Þurfum að fara í miklu róttækari aðgerðir gagnvart heimilum í landinu og fólkinu sjálfu“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar blikni í sam­an­burði við björg­un­ar­pakka nágranna­ríkj­anna. For­sæt­is­ráð­herra and­mælir því.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að rekja megi bætur í hluta­bóta­leið­inni og skil­yrði fyrir brú­ar­lán­unum til til­lagna stjórn­ar­and­stöð­unnar en ekki – eins og komið hafi fram í yfir­lýs­ingum fjöl­margra ráð­herra – að frum­kvæði rík­is­stjórn­ar­innar. Þó sé ekki hlustað á allt sem stjórn­ar­and­staðan segir.

Þetta kom fram í máli Loga í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun en hann spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvenær von væri á frek­ari aðgerðum í þágu fyr­ir­tækja og fólks, hvort rík­is­stjórnin myndi leggja til hækkun á barna­bótum og auka fram­lag til vaxa- og hús­næð­is­bóta til að auka hús­næð­is­ör­yggis fólks og hvort hún myndi beita sér fyrir hækkun grunnatvinnu­leys­is­bóta.

„Rík­is­stjórnin hefur kynnt eitt­hvað sem hún kall­aði stærstu efna­hags­að­gerðir Íslands­sög­unnar – fyrir utan að vera auð­vitað ýkjur – þá blikna þær í sam­an­burði við björg­un­ar­pakka nágranna­ríkj­anna. Þrátt fyrir að vand­inn hér sé mikið meiri vegna gríð­ar­legs umfangs ferða­þjón­ust­unnar,“ sagði hann.

Logi telur að stjórn­völd þurfi að hugsa um fleira en fyr­ir­tæki. „Við þurfum að fara í miklu rót­tæk­ari aðgerðir gagn­vart heim­ilum í land­inu og fólk­inu sjálfu.“ Hann sagði jafn­framt að barna­bóta­auk­inn hefði verið ágætis leið en þó væri ein­ungis einu pró­senti af heild­ar­upp­hæð björg­un­ar­pakk­ans varið í hana og þar fyrir utan væru engar sér­stakar aðgerðir að finna til að hjálpa ein­stak­lingum og fjöl­skyldum – engar aðgerðir sem sneru til að mynda að hús­næð­is­ör­yggis eða heim­il­is­rekstri.

„Atvinnu­lausir ein­stak­lingar eru í sér­stak­lega erf­iðri stöðu núna og því kemur á óvart að ekk­ert hafi til dæmis heyrst um að til standi að hækka atvinnu­leys­is­bætur,“ sagði Logi.

Fagnar því hvernig vinna í nefndum hefur gengið

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagð­ist ekki vilja „fara í kritur“ um það hver sagði hvað fyrst. „Ég hef litið á það sem sam­vinnu­verk­efni í nefndum þings­ins að vinna úr þeim til­lögum sem stjórn­völd eru að vinna gríð­ar­lega hratt og leggja inn til þings­ins.“

Þá ítrek­aði Katrín fyrri orð sín að hún fagn­aði því hvernig vinna í nefndum hefði gengið. „Ég fagna því hvernig vinna í nefndum hefur gengið og held ég að það sé óþarfi að fara í ein­hverjar kritur um það,“ sagði hún.

Hlutabótaleiðin líklega mikilvægasta aðgerðin

Katrín sagði enn fremur að aðgerðir stjórn­valda yrðu end­ur­metnar mjög reglu­lega vegna þess að óvissan væri mikil og að ekki væri nokkur rík­is­stjórn núna, sem væri að eiga við þennan far­aldur, sem gæti sagt með vissu að hún væri komin með end­an­legan pakka. „Það er bara ekki þannig í raun­veru­leik­anum.“

Þegar þau í rík­is­stjórn­inni kynntu sínar aðgerðir þá hefði það verið svo að þær skipt­ust í bein rík­is­út­gjöld, brú­ar­lán til atvinnu­lífs og síðan færslu fjár­muna til fólks og fyr­ir­tækja. „Ég vil ítreka það að sú leið sem við getum kallað hluta­bóta­leið er lík­lega það mik­il­væg­asta fyrir fólkið í land­inu núna, því það sem er að ger­ast núna er tekju­fall hjá fyr­ir­tækjum og mik­il­væg­asta verk­efnið okkar er að tryggja það að fólk haldi afkomu sinni með því að halda vinn­unni, með því að halda ráðn­ing­ar­samn­ingi við fyr­ir­tæki.“

Ekki svo ólíkar aðgerðir

Hvernig þau væru að setja fram sínar aðgerðir í rík­is­stjórn­inni væri ekki ósvipað því hvernig nágranna­löndin væru að gera. „Þó er fram­setn­ingin ólík, til dæmis til­taka Danir sér­stak­lega áhrif sveiflu­jöfn­unar á hag­kerfið upp á 2,5 pró­sent af lands­fram­leiðslu sem við gerum ekki þótt sjálf­virkir sveiflu­jafn­arar á Íslandi séu mjög miklir, þ.e.a.s. ann­ars vegar vegna tekju­falls og hins vegar vegna auk­inna útgjalda,“ sagði Katrín.

Þá svar­aði hún Loga varð­andi hækkun atvinnu­leys­is­bóta á þann hátt að það hefði verið hún sem beitti sér fyrir því að bætur yrðu hækk­aðar árið 2018 í sam­vinnu við verka­lýðs­hreyf­ing­una, ásamt því sem greiðslur úr ábyrgð­ar­sjóði launa hefðu þá einnig verið hækk­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár