Búið að samþykkja að veita næstum helmingi meira í hlutdeildarlán en greitt hefur verið út

Við lok árs 2021 var búið að greiða út 2,5 millj­arða króna vegna hlut­deild­ar­lána úr rík­is­sjóði. Á sama tíma var búið að sam­þykkja að veita hlut­deild­ar­lán að and­virði 4,9 millj­arða í heild­ina.

Búið var að sam­þykkja 578 umsóknir að hlut­deild­ar­lán fyrir alls 4,9 millj­arða króna um ára­mótin, þrátt fyrir að ein­ungis hafi verið búið að greiða út 302 lán fyrir 2,5 millj­arða króna á þeim tíma­punkti. Þetta kemur fram í svari Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) við fyr­ir­spurn Kjarnans. Í upp­hafi mán­aðar voru því næstum jafn margir komnir með sam­þykkt hlut­deild­ar­lán og til­búnir að fjár­festa í íbúð og höfðu náð að klára kaup, eftir að hafa fengið hlut­deild­ar­lán.

Í upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk frá HMS segir jafn­framt að alls hafi 945 umsóknir borist um hlut­deild­ar­lán frá því síðla árs 2020. Þá var úrræðið, sem felur í sér að tekju­lágum fyrstu kaup­endum er veitt afborg­ana­laust lán úr rík­is­sjóði fyrir allt að 20-30 pró­sentum af virði íbúðar, sem síðan er greitt til baka þegar íbúðin er seld. Ríkið ger­ist þannig með­fjár­festir, en lán­taki þarf að reiða fram að minnsta kosti 5 pró­sent kaup­verðs­ins sjálfur.

578 umsóknir hafa verið sam­þykktar, sem áður segir, sem þýðir að lánin eru 8,5 millj­ónir króna að með­al­tali. 276 umsækj­endur um hlut­deild­ar­lán eru því með vil­yrði fyrir láni frá rík­inu, en hafa e.t.v. ekki fundið íbúð til þess að kaupa – eða bíða þess að íbúð sem er í bygg­ingu verði til­búin. Afar fáar íbúðir sem komið hafa inn á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á und­an­förnum mán­uðum hafa verið í þeim verð­flokki sem hlut­deild­ar­lánin ná utan um.

Of háar tekjur helsta ástæða synjunar

Í töl­unum frá HMS segir að 132 umsóknum hafi hins vegar verið synjað. Í 235 til­fellum var svo ýmist hætt við umsókn­ina eða gögn vant­aði. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá HMS er helsta ástæðan fyrir synjun umsókna sú að umsækj­and­inn hafi haft of háar tekjur til að geta fengið hlut­deild­ar­lán.

Hlut­deild­ar­lánin eru sam­kvæmt reglu­gerð sem um þau gilda ein­ungis veitt ein­stak­lingum með undir 7,56 milljón króna tekjur á und­an­förnum 12 mán­uðum eða þá hjónum og sam­búð­ar­fólki sem hafa sam­an­legt 10,56 millj­óna króna tekjur á sama tíma­bili. Við leyfi­legar hámarks­tekjur bæt­ast reyndar 1,56 millj­ónir króna fyrir hvert barn eða ung­menni að 20 ára aldri sem er á fram­færi umsækj­anda eða býr á heim­il­inu.

Tæpar 700 milljónir lánaðar í Reykjavík

Flest hlut­deild­ar­lán af þeim sem eru hafa verið greidd út eru í Reykja­vík, sam­kvæmt nýlegu svari Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar inn­við­a­ráð­herra við þing­fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata.

Alls eru lánin í Reykja­vík 80 tals­ins að and­virði 693,5 millj­óna króna. Flest eru þau í póst­núm­eri 108 í borg­inni, eða 35 tals­ins.

Fram kemur í svari HMS til Kjarnans að rekja megi fjölda lána í því póst­núm­eri til nýbygg­inga við Síðumúla og Grens­ás­veg, sem fóru í sölu á sein­asta ári. Ef horft er á póst­núm­erin í Reykja­vík hafa næst­flest hlut­deild­ar­lán verið veitt í 112 Graf­ar­vogi, eða 23 tals­ins, en undir tíu í öllum öðrum póst­núm­erum innan borg­ar­markanna.

Þegar horft er til sveit­ar­fé­laga, á mynd­inni hér að ofan, sést að fyrir utan Reykja­vík­ur­borg hafa næst­flest lán verið veitt í Reykja­nesbæ, eða 65 tals­ins. Þar hafa tæpar 517 millj­ónir króna verið greiddar út vegna lán­anna. Á Akureyri hafa svo 46 hlut­deild­ar­lán verið greidd út, að and­virði 318 millj­óna króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár