ISIS lýsir árásinni á hendur sér - myndir birtar

Yfirvöld í Belgíu hafa birt myndir af hryðjuverkamönnunum á flugvellinum í Brussel í morgun.
Yfirvöld í Belgíu hafa birt myndir af hryðju­verka­mönn­unum á flug­vell­inum í Brussel í morgun.

Hryðju­verka­sam­tökin Íslamska ríkið hafa lýst árásinni í Brussel á hendur sér. Að minnsta kosti 34 eru látnir og 200 særðir eftir hryðju­verkin í morgun og varar for­sæt­is­ráð­herra Belgíu, Charles Michel, við frek­ari árásum.

RÚV greinir frá því að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi í sam­ráði við lög­reglu­stjór­ann á Suð­ur­nesjum ákveðið að efla við­búnað og við­veru vopn­aðra lög­reglu­manna á Kefla­vík­ur­flug­velli eftir hryðju­verkin. Sérsveit rík­is­lög­reglu­stjóra mun veita lög­reglu­lið­inu á flug­vell­inum aðstoð sína.

Búið er að birta myndir af ódæð­is­mönn­unum úr brott­far­ar­sal Zavantem flug­vall­ar­ins, sem sprengdu sig í loft upp í tveimur spreng­ingum um klukkan 8 að stað­ar­tíma í morgun. Ósprungið sprengju­belti fannst á vell­inum.

Tvær spreng­ingar, sem taldar eru hafa verið sjálfs­morðs­sprengju­árásir, urðu í brott­far­ar­sal Zavantem flug­vell­inum í Brussel um klukkan 8 að stað­ar­tíma í morgun, nálægt inn­rit­un­ar­borði American Airlines. 14 lét­ust í þeirri árás og um hund­rað særð­ust. Stuttu síðar var þriðja sprengjan í neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi Brussel, þar sem að minnsta kosti 20 lét­ust og yfir hund­rað særð­ust, þar af margir lífs­hættu­lega.

Bretar hafa aukið við­bún­að­ar­stig í land­inu. Útgöngu­banni hefur verið lýst yfir í Brussel og eru allar sam­göngur og opin­berar bygg­ingar lok­aðar. Þjóð­ar­leið­togar hafa send Belgíu sam­úð­ar­kveðjur og lýst yfir stuðn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár