„Það sem fólk óttaðist hefur gerst“

Fyrrverandi framkvæmdarstjóri hjá Evrópusambandinu, Neelie Kroes, náðist á mynd þegar hún fékk fregnir af hryðjuverkunum í Brussel í morgun.
Fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri hjá Evr­ópu­sam­band­inu, Neelie Kroes, náð­ist á mynd þegar hún fékk fregnir af hryðju­verk­unum í Brussel í morgun. Mynd: EPA

Að minnsta kosti 34 eru látnir og 200 særðir eftir hryðju­verka­árás­irnar í Brussel í morgun. For­sæt­is­ráð­herra Belgíu varar við frek­ari árásum. Útgöngu­banni hefur verið lýst yfir í borg­inni og eru allar sam­göngur og opin­berar bygg­ingar lok­aðar.

Tvær spreng­ingar, sem taldar eru hafa verið sjálfs­morðs­sprengju­árásir, urðu í brott­far­ar­sal Zavantem flug­vell­inum í Brussel um klukkan 8 að stað­ar­tíma í morgun, nálægt inn­rit­un­ar­borði American Airlines. 14 lét­ust í þeirri árás og um hund­rað særð­ust. Stuttu síðar var þriðja sprengjan í neð­an­jarð­ar­lesta­kerfi Brussel, þar sem að minnsta kosti 20 lét­ust og yfir hund­rað særð­ust, þar af margir lífs­hættu­lega.

Charles Michel, for­sæt­is­ráð­herra Belgíu, segir dag­inn myrka stund fyrir belgísku þjóð­ina. Hann biðlar til fólks að sýna still­ingu og sam­stöðu á þessum erf­iðu tímum.

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir að þjóðir heims þurfi að standa saman með belgísku þjóð­inni þar sem árásir geta gerst hvar sem er.

Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, segir á fundi í Kúbu, að hugur sinn sé hjá belgísku þjóð­inni. Hann segir Banda­ríkin, ásamt öðrum þjóðum heims, munu bregð­ast við árás­unum.

Frétta­þulur Sky sjón­varps­stöðv­ar­innar segir að „það sem fólk ótt­að­ist hefur gerst.” Vitni lýsa fyrir Sky að öskur á arab­ísku hafi heyrst rétt fyrir spreng­ing­arnar á flug­vell­inum. 

Hús­leitir eru hafnar í Brussel vegna hryðju­verk­anna. Enginn hefur lýst árásinni á hendur sér enn sem komið er. Fyrir fjórum dögum hand­tók lög­reglan í Belgíu Salah Abdeslam, mann­inn sem skipu­lagði hryðju­verka­árás­irnar í París í fyrra.

Fjöldi Íslend­inga í Brussel hefur merkt sig „örugga” á sam­fé­lags­miðlum í morgun. Utan­rík­is­ráðu­neytið beinir því til fólks í Brussel að nota frekar sam­fé­lags­miðla og SMS til að láta vita af sér þar sem gríð­ar­legt álag er á sím­kerf­inu. Öll borgin er nán­ast lokuð, að sögn Hall­gríms Odds­sonar, frétta­rit­ara Kjarnans í Brussel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár