Seinkun verkefnis gæti orðið kostnaðarsöm fyrir skattgreiðendur

Reikn­is­stofa bank­anna lagð­ist í árs­byrjun 2015 í verk­efni um end­ur­nýjun grunn­kerfa fyrir Íslands­banka og Lands­bank­ann. Verk­efnið er ári á eftir áætlun, en rík­is­bank­arnir bera hlut af kostn­aði vegna þess.

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna
Friðrik Þór Snorra­son, for­stjóri Reikni­stofu bank­anna Mynd: Reiknistofa bankanna

Verkefni Reikni­stofu bank­anna um end­ur­nýjun grunn­kerfa hjá Íslands­banka og Lands­bank­anum er enn ólokið, en því átti að ljúka fyrir ári síðan. Búist er við því að sein­kunin verði kostn­að­ar­söm fyrir neyt­endur, en hann leggst að hluta til á bank­ana.

Í jan­úar 2015 samdi Reikni­stofa bank­anna um end­ur­nýjun helstu grunn­kerfa sinna við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Sopra Banking Software. Markmið sam­starfs­ins var að auka hag­ræði og sparnað við end­ur­nýjun á inn­lána- og greiðslu­kerfi Reikni­stofn­unar. Lands­bank­inn og Íslands­banki sömdu báðir um notkun nýju kerf­anna, en Arion banki ákvað að sitja hjá fyrst um sinn.

Til stóð að verk­efnið myndi taka 18 mán­uði, en því er ekki enn lokið. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hafði það einnig komið til umræðu á aðal­fundi félags­ins hversu langan tíma verk­efnið hafi tekið. Í sam­tali við Kjarnann segir Friðrik Þór Snorra­son, for­stjóri RB, standa til að verk­efnið muni klár­ast í sept­em­ber eða októ­ber á þessu ári. Hins vegar bendir hann á að meg­in­mark­miðið muni nást, núver­andi lausnir í grunn­kerfi bank­ans muni fær­ast í nútím­ann.

Friðrik Þór segir að verk­efnið hafi dreg­ist vegna ýmissa ástæðna. Verið sé að inn­leiða kerfi í tveimur bönkum, sam­ræma þurfi þjón­ustu­skil á gagna­lagi og ákveðið var að fara var­lega af stað og starfa í sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. Einnig nefnir Friðrik að íslenska greiðslu­miðl­un­ar­kerfið hafi valdið nokkrum töfum. Þar sem Íslend­ingar eru með greiðslu­miðlun í raun­tíma sé flókn­ara og tíma­frekara að inn­leiða nýtt kerfi, og líkir hann aðgerð­inni við véla­skipti á fljúg­andi flug­vél.

Aðspurður um hver beri kostn­að­inn af þess­ari seinkun segir Friðrik að náðst hafi sátt milli Reikni­stofu, Sopra Banking og rík­is­bank­anna tveggja um að deila kostn­að­inum á milli sín. Ekki er vitað hversu hár kostn­að­ur­inn er vegna seink­unar, en Friðrik segir hann vera trún­að­ar­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár